Templar - 04.01.1904, Blaðsíða 3

Templar - 04.01.1904, Blaðsíða 3
TEMPLAR. VIII. ár. Reykjavík, 4. Janúar 1904. 1. blað. Kaupendur og lesendur. Með þessu blaði byrjar „Teinplar" átt- unda ár sitt, og þakkar hann kaupendum sínum og útsölumönnum fyrir trygð þá •og vináttu er þeir hafa sýnt honum. — Hann vonar og óskar, jafnframt og hann -árnar þeim gleðilegs nýárs, að þeir reynist sem fyr góðir stuðningsmenn, og að kaup- ■endur hans fjölgi. Með þessu blaði fær „Templar" einnig nýan ritstjóra. Ritstjórinn er óvanur blaðamensku, og öllinn ■ þeim störfum er þar til heyra. Kaupendur eru því vin- samlega beðnir að virða á betri veg, þótt sitthvað fari í handaskolum framan af, vonandi ba.tnar það. Ef mönnum þykir eitthvað fara í ólagi, vil eg helzt að menn láti mig vita það beina leið, en forðist að bakbíta blaðið eða mig íyrir það. Þótt það sé gamall og innlendur siður, gerir hann hvorki kaupendum nó blaðinu gagn, heidur er hann óheppilegur og getur verið til tjóns. Með þessu blaði hefir „Templar“ og færst i ásmeginn, og stækkað "ekki svo lítið. "Yonandi fjölgar kaupendum að sarna skapi. Það heflr hingað til verið. fundið'að „Templar" að hann flytti ónógar bindind- isfréttir, bæði innlendar og útlendar, og mun eg reyna að bæta úr því eftir mætti. Hn til þess að „Templar“ geti flutt sem beztar innlendar fréttir, verða menn að rita honum það sem ber til tíðinda. Það hefir oft verið sagt, og það með réttu, að vér bindindismenn -— templarar — ættum að leggja undir okkur landið, og eitthvert bezta vopnið til þess ætti Templ- ar að vera, mun hann og reyna að gera sitt tfl þess, þess vegna eigið þið að skrifa i Templar. Innanregiumál hafa oft verið lítið rædd, og það svo að mörgum heflr þótt það hrein vandræði; úr þessu vill „Templar" bæta. Auk bindindismálsins -telur „Templar“ aór og heimilt að ræða ýmö fræðandi og ;skeintandi mál, hann ætlar að flytja rit- ■dóma um hverja þá bók, er honum verð- ur send. Sérstaklega getur hann þó bind- indisbóka með ánægju. Einnig mun hann flytja sögur, skrítlur, dulrúnir o. fl. því um líkt mönnum til skemtunar. Vetrar- kvöldin eru oft svo löng í sveitinni og htið til skemtunar, og ef hann gæti eitt- nvað stytt þau fynr kaupendur sína telur hann það vel farið. Að öðm leyti þarf ekki að tala um stefnu „Templars“, hún er kunn, en geta má þess, að hann mun framfylgja að- flufhingsbanni á áfengi eftir mætti. Reykjavik, 29. Desember 1903. létur Zóphóníasson. Þórður J. Thoroddsen. Fyrir siðasta stórstúkuþing, var all-tiðrætt um það meðal G.-T. hvern ætti að kjósa sem stórtemplar. Það var kunnugt, að sá, er haíði verið það vildi eigi taka á móti endurkosningu, enda var hann búinn að þjóna embættinu af miklum dug í langan tíma. Ýmsir templarar voru tilnefndir, en sitt var að hverjum, og þótt eg vildi Pál, þá vildi Jón hann ekki. Svona gekk það, þar til daginn fyrir stórstúkuþingið. Þá voru nokkrir fulltrúar, er voru mættir, að tala um kosningarnar, og kom þeim öllum sam- an um, að kjósa br. Þ. Thoroddsen. Áð- ur hafði raunar litilfjörlega verið minnst á hann, en svarið verið: „já — en liann er búsettur suður í Keflavík“. Nú hafði kvisast, að liann yrði búsettur minnsta kosti fyrst um sinn í Reykjavík. Brátt urðu fulltrúarnir svo sammála um þessa kosningu, að þótt einhver annar hefði ver- ið í kjöri, sem ekki varð, mundi hann hafa fengið fá atkvæði. Og fulltrúana þarf ekki að iðra þess, betri og duglegri mann til þess að fylgja fram aðflutningsbanninu hefðu þeir trautt geta fengíð, m það er það mál, er fram- kvæmdarnefndin á aðallega að beita Bór fyrir. Annars ættu fulltrúar yfirleitt að muna það, að fremur á að kjósa br. N. N. vegna þess, að hann er kunnugur reglu- málum, hefur starfað vel fyrir Regluna, og síðast en ekki sízt fyrir shoðanir hans á hinum helztu Reglumálum. Þegar þetta getur farið sem mest saman, hlýtur vel að fara, og svo var hér: En br. N. N. ætti enginn að -kjósa vegná þess, að hann hef- ir lengi starfað, og er í þessari og þessari stöðu í mannfélaginu. Síðan br. Þ. Th. tók við, hefir Reglan og aukist allmjög, enda hefir mikið verið gert að því að breiða út Regluna. Það liafa þannig verið stofnaðar níu nýar stúkur frá því 18 Ágúst í sumar. Vér óskum þess að framhaldið verði jafngott og byrjunin. Br. Þórður Thoroddsen er fæddur í Haga á Barðaströnd 14. Nóv. 1856. Foreldrar hans voru Jón sýslumaður og skáldið Thoroddsen og Kristín Ólína Þorvaldsdóttir frá Hrappsey. Úr lærðaskólanum útskrif- aðist hann með fyrstu einkun, og úr læknaskókuium útskrifaðist hann 1881 sömuleiðis með fyrstu einkun. Síðan var hann kennari við gagnfræðaskólan á Möðru- völlum, en þaðan varð hann læknir í 2. læknishéraði (Gullbringusýslu) og hefir hann þjónað því embætti síðan. Ái ið 1895 varð hann alþingismað'ur, og var hann það þar til við siðustu kosningar, að hann gaf ekki kost á sér. Þótti hanu góður þingmaður, og var haus getíð þannig í Sunnanfara X, 2. af Birni ritstjóra, en í Þjóðólfi frá því í ár, má víða íinna rit- gerðir er sýna að Hanues ritstjóri hefir hið sama álit á honum. Að þessir tveir heiðruðu ritsjórar hafa getað verið sam- dóma um þelta efni, ímynda eg mér að flestir tolji fullgilda sönnun. Amtráðsmaður heflr br. Þ. Th. verið síðan árið 1900, auk þessa hefir hann haft mörg opinber störf á hendi, sýslunefnd, hreppsnefnd o. s. frv. Kona hans er Anna dóttur Péturs heit. Guðjóhnssens orgauleikara. P: Z.

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.