Templar - 21.01.1904, Page 2

Templar - 21.01.1904, Page 2
6 TEMPLAR Blað stórstúku íslands. Argaugúrinn 24 l)15ð uni árið (og aukablöð). Verð : innanlands 2 kr. árg., utanlands 2 kr. 50 aur., i Ameríku 75 eent. Einstok númer 10 aur. Útsölum en n ó s k a s t; þeir fá 20% í sölu- laun, ef þeir selja 5 eint. eða meira. A u g 1 ý s i n g a r : 1 kr. 25 aur. þumlungurinn. Afsláttur þagar mikið er auglýst, eftir samkomu- lagi. Afgreiðslumaður GIJÐM. GAMA- LÍELSSON, Hafnarstræti 16, Rvík. Bústaðaskifti kaupanda verður að tilkynna skrif- lega og geta um leið fyrverandi bústaðar. Ritstjóri og ábyrgðarmaður PÉT- UR ZÓPHÓNÍ ASSON, P. 0. Box 32 A. Reykjavík, og sendist honum alt viðvíkjandi rit- stjórn blaðsins. „Bindindisfólög ættu allir að styrkja" (bls. 55;. , Slík rit ,,sem þessi hljóta að vera oss Templurum velkomin, og þá ekki síst þeg- ar landstjórnin gefur þau út, og útbýtir þeim til manna. Meðal margs annars fróðleiks, og varn- arregla er í 17. kafla talað um matvæla- sala, og brýnt fyrir þeim og öðrum hve nauðsynlegt það er að hins ítrasta þrifn- aðar sé gætt, og að brauðin sáu strax úr ofninum látin á hrein pappírsblöð. Það cr auðséð að þýð. hefir eigi breytt þess- nm kafla, fremur en þeim um áfengið, því þessi kafli er ófullnægur hér. Til hvers er að bakararnir láti brauðin á hi ein pappírsblöð þegai- þau koma úr ofninum, og þau síðan eru sett innan í gömul dag- blöð? Eg veit minsta kosti ekki betur en flestir matsölumenn noti gömul dag- blöð sem umbúðir utan um matvæiin. Nattúrlega liggur það í augum uppi, að það er mjög hættulegt fyrir heilsu manna, en þeir hugsa ekki um það, heldur að það er ódýrara. í New York, og víst al!- staðar erlendis t. d. í Kaupm.höfn er aftur á móti bannað að nota annað en hreinan og óbrúkaðann pappír, sem úmbúðir utan um matvæli. Yæri ekki full þörf á því að fá slík lög hér? í 12. kaflanum eru mjög fróðleg ráð, er hver einstaklingur ætti að kynna sér, eigi síður en annað sem er í bókinni, það er (bls. 27) svohljóðandi kafli: „Að gera sér far um glaðiyndi, að lifa .reglusömu lífi, að eta góðan mat en ó- kryddaðan, að varast aiia áfenga drykki, að hugsa um að hafa góðar hægðir á hverjum degi, að gæta þess að líkaminn só jafnan allur hreinn og sofa að minnsta kosti 8 tima á hverjum sólarhring - það eru helstu ráðin tii að lialda góðri heilsú“. Bók þessi hefir verið prentuð í 6000 eint. og fær hver hana ókeypis hjá næsta læknir eða presti. Bókina ættu allir að lesa og það vandlega. P. Z. Vinnufólkseklan. Nú á siðari árum, hefir mikið veríð rætt og rítað um landbúnaðinn, og flestir eða allir, er hafa ritað um hann, hafa sagt það, að eitthvert mesta mein hans væri vinnu- -fólksleysið. Það efc.Tíka enginn efi á því, að viunufólkseklan er mjög miki),-.svo mik- il, að brýn þörf er fyrir alla föðujrlandsviní að athuga hana nánar, og reyna að ráða bætur á henni. Einhver helzta orsökin til þess að vinnufólksleysið er svo mikið, er það, hversu margir flytja úr sveitinni til sjávarins og til Ameríku. Skýrslur þær, er birtast um" fólksfjölda í hinum ýmsu sveit- um sýna Ijóst, að þetta eru engin skrök. Og það hefir reynst svo, að það nægir ekki eingöngu að prédika móti þessu öfug- streymi. Það hefir verið gert, en komið að litlu haldi. Það verður að finna af hverju þetta kemur, og að reyna að ráða bót á orsökunum. Sumir, er flytja til sjávarins, gera það vegna þess, að þeir halda, að þeim aukist fé á því, það hefir margoft verið sýnt, að svo er oftastnær ekki. Þótt ungir menn flytji til sjávarins, og hafi þar næga at- vinnu, þá er auður þeirra nauðalítill og oft enginn. Þeir fá oft raunar meira kaup, en þeir eyða jafnframt meiru, svo að þeg- ar*alt kemur til als, þá veiður það vana- lega óheppilegra fyrir fjárhag þeirra en vera í sveitinni, Að flytja burt úr sveit- inni af þessari ástæðu er því vanráðið. Aðrir, og þeir munu vera flestir, flytja burtu vegna þess að þeim leiðist í sveit- unum. Það eru „leiðindin í sveitunum", er gera það að verkun, eins og blaðið Norðurland hefir haldið fram. Og úr þess- um leiðindum ætti að mega bæta. A mörgum heimilum er heimilislífið sjálft, eigi eins aðlaðandi og skemtilegt og vera ætti. Húsfeðurnir hugsa oft svo litið um það, þeir hugsa meira um vinnuna, og gæta þess oft og tíðum ekki, að það er nauðsyn fyrir þá og sveitarfólag þeirra, bæði að heimilislífið sé skemtilegt, og svo að einhverjar skemtanir sóu í sveitinni. En úr þessu ætti að mega bæta mjög mikið ef vilji væri. Það er strax mikil bót, ef að eitthvað fróðlegt eða skemtilegt væri lesið upp á kveldvökunni, það gerði meiri frið og ánægju á heimilihu, og eg er sannfærður um, að fólkið inni betur verk sitt og væri ánægðara. Og þau heiroili, er tíðka það eru líka sjaldnast í ráðaleysi með þa.ð að fá vinnafólk. En það er ekki nóg, það verða að vera við og við ein- hverjar samkomur þar sem gleðifagnaður er, þar sem er fróðlegur upplestur, i æðu- höld, söngur, glímur ef hægt er, tafl, dans o. fl. Það er gert alt of lítið að því. Og af hverju kemur það ? Þessu gamlameini sundrunginni. Ef hún væri eigi mundi þjóðfélag vort vera á annan veg. Og ekk- ert megnar jafn vel að eyða sundrunginní og brjóta' hana á bak aftur og félagsskap- ur. Fólagsskapur er og verður það, sem er nauðsyn fyrir þjóð vora sem aðrar þjóð- ir, og því nauðsynlegri er félagsskapurinn sem þjóðirnar eru fátækari og hver einstakl- ingur másín minna. Og í þessum efnum, að eyða leiðindunum í sveitiuni, er sá fólags- skapur beztur, sem jafnframt því, að fræða og lífga meðlimi sína, bindur þá einhverj- um föstum félagsböndum. Fólag, er lifði á skemtunnm mundi fijótt deya, að minsta kosti virðist reynslan benda á það. Glímu- félóg hafa sjaldan orðið langlíf. Eitthvert hið bezta félag, sem hægt er að fá, til þess að bæta sveitina er Goodtemplarstúka. Það er alkunna, að málefni það, er þær fylgja er þannig, að það bætir hvern ein- Stakling áð fýlg.ia þeim að málum, heilsa hans verður betri, líf hans lengra og heimilis- lífið betra, auk ótal fleira, t. d. fjáreyðsl- unni. Að fá stúku upp í sveitinni er því til stórra framfara fyrir hverja sveit, hversu reglusöm sem hún er, því jafnframt því, að stúkurnar vinna að þessu máli, er fé- lagsskipunin betri og styrkari þar en í öðrum félögum, og fundir þeirra eru vanal. fræðandi og skemtandi, þar eru ræðuhöld, upplestur, söngur o. fl. Auk þess má hafa ýmsar skemtanir í sambandi við stúkuna, þót.t stúkan eigi sjálf gangist fyrir þeim. Það er í mínum augum enginn efi á því, að leiðindin í sveitunum minkuðu stórum, ef góð stúka væri í hverri sveit. Og svo er eitt, sem eigi má gleyma, sá er hefir verið meðlimur í Reglunni og starfað þar, er vanalega mikið betur fær en ella mundi til þess að skemta bæði sér og öðrum. Það gerir félagslífið í Beglunni, og fundar- sköp stúknanna. Náttúrlega geta skemtanir verið of mikl- ar, og það ættu allir að forðast, því ofmikl- ar skemtanir eru til skaða fyrir alla, fyrst og fremst fyrir félagið, er gengst fyrir þeim, þá og fyrir þá er njóta þeirra, þeir fá leið á þeim o. fl. Það er ekki svo lítils virði fyrir bænd- ur að fá vinnufólk, að eg held þeir ættu að reyna hvað i þeirra valdi stendur til þess að ráða bót á leiðindunum í sveitun- nm, svo að þeim gengi betur að fá vinnu- fólk. Og eitt verða menn að muna, og það er það, að það er skaði fyrir þá sjálfa, ef einhver býr illa, þó sórstaklega fyrir sveit hans, og þeir eiga því að greiða götu annars og hjálpa þeim, í þessu efni sem öðrum. Bezta ráðið til þess að minka leiðindin og auka félagslífið er: að stofna stúku, halda henni við og vinna af kappi fyrir hana og málefni hennar. Þá, þegar menn eru farnir að vinna af alhug fyrir eitthvert málefni, gott málefni, minka leiðindin, þeir verða ötulli, áhugasamari um önnur mál og nýtari borgarar í stöðu, sinni. Arvalatr. Vertu ekki með drykkjumönnum. . Fyrir mörgum öldum sagði Salómon konungur til þjóðar sinhar: „Vertu ekki með drykkju- né óhöfsmönhum, því drykkju- menn verða snauðir og mikill svefn klæð- ir í tötra“ (Orðskv. Salom. 23. kap. 20—21). Þessi orð lýsa ljóslega þekkingu hans á verkun vínsins, og skaðsemi vínnautnar- innar, og þó að þessi orð séu fyrir löngu töluð, vantar þó mikið á það að þekking- in só almenn, og það að menn hlýðnist þeim. Orð þessi eru töluð til allra manna á jörðinni, af þeim manni er hefir haft skömm að vínnautninni, og eigi þótt niður- laging í bindindi, þótt hann væri konung- ur. Mörgum er drykkjuskapurinn hefir leitt afvega, mætti koma til hugar hversn

x

Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.