Templar - 25.07.1906, Síða 4
T E M P L A R.
56
Nytt g’óðtemplaraliús er verið að byggja í
Arósum. Þegar hyrningarsteinninn var lagður
var fjölmenn samkoma þar, og múrað í stein-
inn langt skjal viðvíkjandi húsmálinu. S. g. k.
Jul. Andersen verksmiðjueigandi bauð menn
velkomna, en Grönlund kennari hélt aðal ræð-
una. A eftir var skemt sér. Stúkurnar ætlast
til þess. að þær geti haldið 25 ára afmæli sitt
í nýa húsinu.
Siinniidagsfagnadur. Með þessari yfirskipt
flytur „Agitatoren".
Afmæli bindindisfélagsins í Lemvigvar haldið
með minlum fagnaði. Um morguninn var
gengið eptir götum bæarins með hljóðfæra-
slætti, síðan farið til Vrist og loks hátíðaganga
er um 4000 manns tóku þátt í. Claus Johann-
sen (fólksþingmaður), Bjerre prestur og Will
Petersen töluðu.
I Skanderborg talaði Opperman kennari frá
Holstebro um bindindi og hófsemi.
I Fridrikshöfn sagði Amold Möller læknir
að hann sæi engan mun á drykkjumönnum
og hófsmönnum, og hann efaðist um, að þeir
hefðu rétt til þess, að geta afkvæmi. Nonboe
málfærslumaður, var eigi ánægður með velvild
eingöngu, því hann vildi afnema með öllu vín-
nautnina, en það yrði með sjálfsstjórn fólksins,
almenns og jöfnum kosningarrétti og góðri
samvinnu.
J Hötrhig talaði Michelsen háskólastjóri um,
að börnin yrðu að þola fyrir brot feðranna.
Borgarstjóri Knudsen staðfesti það sem dómari
að af hverjum 100 glæpum sem væru framdir
öttu go rót sína að rekja til vínnautnarinnar.
I Vejle var skrúðganga og tóku um 1400
manns þátt í henni. (Ræður voru haldnar
meðal a). Dr. Harboe er vildi fá lög um að
þeir sem giptust hefðu heilbrigðisvottorð.
I)ie konigliche Gcsellschaft der Aerzle> helzta
læknisfélagið í Ungverjalandi, hefir skipað nefnd
manna til þess, að rannsaka áfengisspursmálið.
Formaður nefndarinnar er Dr. Pettik háskóla-
kennari 1 lífskurðarfræði. Hann er bindindis-
maður, og nefndin er þannig skipuð, að trygg-
ing er fyrir þvf, að hún reki starf sitt af al-
vöru og áhuga.
Félag þetta, hefir áður skipað samskonar
nefndir viðvíkjandi krabbameini, fransós og
tæringu.
Mannalát. 2. Maí s. I. dó fyrv. alþ. templ.
br. D. H. Matin, stórtemplar í New York og
hefir hann gegnt því starfi síðan 1883. Hann
var 78 ára gamall og mjög ern. A síðasta
hástúkuþingi var hann, og setti þar inn em-
bættismennina. Enginn efi er á því, að það
hefir verið einhver vinsælasti og færasti maður
hástúkunnar.
Sama dag dó í Rochester, New York, fyrv.
alþ. gjaldkeri, br. Martin Joncs, sérlega góður
ræðumaður, en mjög afturhaldsmaður. Á meðal
Ameríkumanna, var hann mjög vinsæll. Á há-
stúkuþinginu í Stokkhólmi var hann í kjöri á
móti br. Blume.
Ennfremur er nýdáinn Sir Will. Lawson, og
verður hans síðar getið nánar.
G o o tl-T em j> l u,i*-í 1 ö íí'íí'
(borðflögg) úr silki, með stöng, eru til sölu,
Jón Arnason, S. <i. U. T.
Kcikniugur
Yfir tekjur Stórstúku íslands
frá 1. Febr. til 1. Maí 1906.
1. Skattur frá undirstúkum .... kr. áoS.95
2. Stofngjöld undirstúkna — 61,00
5- Andvirði bóka og eyðublaða . — 19,40
4- Stórstúkustigsgjöld — 32,00
Alls kr. 7i8,35
Reykjavík 1. Maí 1906.
Borgpór Jósefsson.
st. r.
Keikniiigur
yfir tekjur Stórstúku Islands
1. Nóv, ’o5 til 1. Febr. 1906.
1. Skattur frá undirstúkum . . . . kr. 582,05
2. Stofngjöld undirstúkna.......— 144,00
3. Andvirði bóka og eyðublaða . — 84,40
Alls kr- 810,45
Reikning samhljóða þessum hefi eg afhent
ritstjóra „Templars" í eigin hendur fyrir mörg-
um mánuðum síðan, stundvíslega kl. 5 síðdegis
í anddyri Landsbankahússins. Síðari reikning-
inn hefi eg þar á móti ekki sent honum í tæka
tíð; gjörði það nú fyrir nokkrum döguin (10/7)
með bæarpósti, en tæplega hefði það getað
talist ókurteysi, þó að ritstj. „Templars" hefði
getið þess, að hann væri kominn til sín, þó
hann ekki tæki hann f blaðið strax.
Fyrirspurn br. Jóns Árnasonar og svar br.
P. Z. í síðasta »Templar«, sem er dags. 12.
Júlí, prentaður‘13. Júlí og borinn um bæinn í
dag, gat náð tilgangi sfnum eins fyrir það.
Reykjavík 14. Júlí 1906.
Borgpór Jósefsson.
Athugasemd.
Það er talsvert misminni hjá stórr. að
minna það að hann hafi afhent mér Febr.reikn.
fyrir löngu síðan. Eg hefi aldrei séð hann fyr
en nú. En satt er það, að str. hefir sagt mér
að hann væri tilbúinn er vildi. Viðvíkjandi
síðari reikningnum skal eg taka það fram, að
síðasta blað Templars var að öllu afgreitt frá
mér að kveldi 9, Júlí, og samkvæmt umtali
við setjarastjóra Gutenbergs átti það að prent-
ast í síðasta lagi að morgni 11. þ. m., en kl.
um 9 árd. þann 11. þ. m. fékk eg Maíreikn.
stórritara sem er dags. T/s s. 1. Annars hefði
mér eigi komið til hugar annað en geta um
það. Eg vissi sjálfur eigi fyr en síðar, að
Templar var eigi prentaður fyr en 12. Júlí —
eða daginn eptir, — en ekki 13. Júlí eins og stórr.
segir. Annars væri það æskilegt, að stórr.
tæki upp þá reglu, að dagsetja reikningana
þann dag er hann sendir þá. Það er óvið-
kunnanlegt að sjá reikninga dags. 25. Febr.
afhentan síðast í Marz (Templar 1905 bls. 20),
6. Nóv. afh. um 10. Janúar og 1. Maf afh. 10.
Júlí. Þá gæti hann líka séð hvað lengi hann
lægi hjá ritstjóranum.
Svar mitt er því rétt, og það er ekkert annað
en skyldusvar. Templar er skyldur, að flytja
reikningana jafnskjótt og þeir berast, og því
getur hver meðlimur krafist þeirra þar, bæði
s. g. u. t. og aðrir. Og í þetta sinn á stórr.
sök á drættinum en ekki Templar.
Ritstj.
Bindindismenn og góðtemplarar ættu að muna
að líftryggja sig
í LlFSÁBYRGÐARFÉLAGINU „DANU, sem er eina félagið
á Norðurlöndum, er veitir bindindismönnum, er tryggja líf
sitt sérstök hlunnindi, meiri bónus en öðrum. Auk
þess er „DANU langódýrasta félagið (o: iðgjöldin lœgst).
Aðalumboðsmaður fyiir Suðurland :
H). ^>stlu.nd, Roykjavík.
Hinar skemlilegustu
SÖGUItÆIiUK
fást í
<3/ó‘
orns
verslun
P óréarsonar.
M.V.Biering-
6 Laugaveg1 6.
Selur útlendan og innlendan
^kófatnad
af ýmsum gerðum fyrir karla
og k o n ur. — Ennfremur íl. teg.
SKÓÁBURÐ góð an og ódýran o. fl.
Ágætar ilanskar H.ARTÖFL1UK
fást í
verslun
cRjörns Þór&arsonar.
Ffölbreytt TEFIAÐARVARA
ávallt í
verslun
cftjörns Þór&arsonar.
Gjalddag;i Templars er 1. Júlí
þetta eru kaupendur beðnir að athuga.
Ritstjöri og ábyrgðarmaður:
PÉTUR ZÓPHÓNÍASSON.
Pi'ontsmiðjan Gutenberg.
wmísöa
f' heitir nýfundið bindindismannavín, sem
I þegar hefir hlolið álmannalof viða um
II U Iieim fyrir gæði, svalandi og' hressandi
áhrif, en þó alveg óáfengt. Þetta er það
vin, sem mennirnir hafa leitað eftir margar aldir. Ágættvín,
seni er laust við eitur áfengisins. Yín, sem er hreinn lögur
vínberjanna, ójastaður (ugæret), með náttúrlegum ilm og
smekk. Vín, sem ekki gerir menn ölvaða. Þessi uppfundn-
ing er einhver sú blessunarríkasta uppfundning, sem gerð
heíir verið í heiminum. — Þrjár tegundir eru þegar til, sem
kosta: Vi fl. 3,00, 1,40, 140; í' V* 11. 1,80, 0,90, 0,90. — Þelta
ágæta vín fæst nú að eins í vcrsluniiuii UDIIltORG
í Reykjavík, sem hefir einkasölu á því á íslandi.