Templar - 17.10.1906, Page 3

Templar - 17.10.1906, Page 3
TEM PLAR. 67 Br. Guðmundur Guðmundsson versl- unarmaður á Seyðisflrði sendi oss skeyti þetta. Eins og kunnugt er, þá hefir nú síðustu ár engin vínsala ver- ið á Seyðisfirði, og það er gleðilegl, að Seyðtirðingar hafa hrundið henni enn þá á bak aftur. Aðeins er þess ósk- andi, að ])að verði með enn þá meiri atkvæðamun næsl. Frá stúkunum. Vikinflabálkur. St. Víkingur nr. 104 samþ. á síðasta fundi sínum að senda öllum stúkum landsins kveðju sfna. Stúkan hefur haft til umræðu á nokkrum fundum bróðurkærleikann f Reglunni, og liefir komist að þeirri niðurstöðu, að hann væri harla lítill, bæði meðal meðlima stúknanna innbyrðis og eins á milii stúkna, nema ef vera kynni, að bróðurkærleiki kæmi fram í umburð- arlyndi, þar sem að útlit er fyrir að brotlegir meðlimir komist áfram með að drekka nokk- uð lengi í laumi, sem kallað er, án þess að verða kærðir þótt tök væri á því, en Iremur mun það stafa af deyfð og áhugaleysi, en af eintómum bróðurkærleika. Bróðurkærleikinn getur best komið að gagni með því (innan stúkna) að hinir eldri og reynd- ari templarar láti sér annara, en þeir gera, um þá, sem ungir eru og óreyndir. Þegar nýr meöl. er tekinn inn í stúkuna er honum sagt, að allir, sem fyrir eru, séu reiðubúnir til að styðja hann cg styrkja, vernda hann og varð veita gegn freistingum, en hvernig eru loforð þessi haldin? Hversu lengi eru hendur út- réttar til verndar hinum veiku. Alveg saina verður uppi á teningnum þegar nýar stúkur eru stofnaðar. Mundu ekki sum- ar stúkur standa lengur ef þær öðruhvoru yrðu varar við að kærleiksyl andaði að þeim við og við frá hinum eldri og reyndari stúkum. En þvl er ver, bróðurkærleikinn er kaldur, hann er ekki nema á vörunum. Stúkurnar standa og starfa hver út af fyrir sig sem mest má verða, líkt eins og þær hefðu okkert sarnan að sælda, jaínvel náungakritur og úlfúð á sér sumstaðar stað. Eitt af því, sem orðið gæti til þess að stúkur kyntust bet- ur hver annari, er það að þær skiftist á bréf- um og í því augnamiði sendir st. Víkingur þetta bréf til að byrja með. Af störfum stúkunnar er lítið að segja; hún er enn ekki tveggja ára;hún var stofnuð með rúmum 100 meðl. og hefur nú um 150 og álít- ur fleiri meðlimi í einni stúku ekki heppilegt, betra að hafa stúkurnar fleiri. Það má kannske segja, að stúkunni hafi illa sókst til manna og fjár, getur verið, en starls- krafta sína hefir hún ennþá ólamaða og heið- ur sinn óflekkaðan. Stúkan getur stært sig af því, að hafa einn hinn mesta og áhugasamasta bindindismann þessa lands í vlkingatölu sinni, nfl. br. Ólaf Ólafsson frlkirkjuprest og hefir oft verið vel lagt út I því rúmi) sem hann skipar. I sumar hafa fundir verið fremur daufir, en þó hefur altaf orðið fundarfært, sem þó má furðu gegna, þar sem flestir karlmenn stúkunnar eru sjómenn. Með haustinu vonum vér að fjölga taki á fundum, og að skyldir verði fægðir og vopnin brýnd og víkingum skipað í rúm og liði fylkt til sóknar gegn Bakkusi og öllum hans árutn og undir sumarið vonum við að geta sagt, hvað ágengt hafi orðið 1 vetrarvlking. í trú, von og kærleika. 12. Sept. igoó. Olló N. Pórláksson. r. Unijlst. »Æskan« nr. I varð 20 ára 9. Maí síð- astl. Var afmælið haldið hátíðlegt að viðstödd- um nær 300 barna og unglinga. Byrjaði sam- koman með því að allir sungu „Eldgamla Isa- fold“ og því næst talaði br. Jón Arnason s.g.u.t., setn er félagi stúkunnar, nokkur orð fyrir minni hennar og mintist hins helsta, er á daga hennar hefði drifið þessi 20 ár, en á eftir var sungið nýort kvæði, sem prentað er á öðrum stað í þessu blaði. Þá söng br. lialldór Jónsson og nokkrir af félögum stúkunnar »Skólameistarann og börnin". Því næst sýndi br. Magnús Ólafs- son skuggamyndir, bæði útlendar og innlendar, og að því búnu lék nefndm, er undirbúið hafði afmælið, dálítinn sjónleik. Að lokum var dans- að um stund áður en menn skildu. Var alt gert, sem unt var að gera, til þess að gera sam- komuna sem skemtilegasta og minnisstæða þeim, sem nú voru félagar hennar á þessurn tímamót- um. Boðið var embættismönnum hinna ungl.st., sem heima eiga hér í bænum, Svövu og Umiur, og gæslumönnum þeirra. — Samkvæmt skýrslu stúkunnar voru félagar hennar, eldri og yngri, full 300, og í sjóði átti hún þá yfir 200 kr., svo að hagur hennar er að því leyti góður, og þar sem margir af félögum hennar eru góðir og á- hugasamir starfsmenn, má búast við góðum á- rangri af starfinu eftirleiðis. Æ. t. stúkunnar var þá s. Asa Clausen. og hafði hún verið það nokkra undanfarna ársfjorðunga, en v. t. s. Softi'a Ólafsdóttir. Reykjavikurstúknrnar. Stúkan Skjaldbreið hélt hér um kveldið skemtun tyrir meðlimi sína. Var það gert til að efla innbyrðis fjör í stúkunni, þar voru ræður og sjálfráðar skemtanir. Stúk- an Einingin hélt og fyrir skömmu kveldskemt- un, þar söng meðal annars systir Stefanía Guð- mundsdóttir gamanvísur, og hlaut mikið lof fyrir. Þar voru og ræðuhöld. Slðastliðið Sunnudagskveld hélt stúkan Bifrösl afmæli sitt, en með því að Templar var eigi boðið þangað, kann hann engin tíðindi þaðan. ílomlowl cr ?dÝrasta °B frjálslvndasta lífsábyrgöarfé- UtdllualU logiö. f’að tekur allskonar tryggingar, alm. lifsábvrgð, ellistyrk, íjárábyrgð, barnatrygg- ingar o. íl. Umboðsm, Pét-ur ^óphóníasson. rit-tjóii Bergstaðastræti 3. Heima 4—5. Fjölbreytt TEFMÐARVAM ávallt í verslun c3/örns Póréarsonar. WliÖG VANDAÐUR Skófatnaður ódýrastur i verslun BJÚKNS ÞÓRÐARSONAIL Am Æ Am Am heitir nýfundið dindindismannavin, sem pegar hefir hloiið almaimalofvíða um heim fyrir gæði, svalandi og hressandi áhrif, en þó alveg óáfengt. Þetla er það vín, sem mennirnir hafa leitað eftir margar aldir. Ágætt vín, sem er laust við eiliir áfengisins. Yín, sem er hreinn lögur vínberjanna, ójastaður (ugæret). með náttúrlegum ilm og smekk. Yín, sem ekki gerir menn ölvaða. Þessi uppfundn- ing er einhver sú blessunarrikasta uppfundning, sem gerð heiminum. — Þ. rjar i/, tegundir ern þegar til, sem hefir verið kosta, Vifl. 3,00, 1,40, 1,40; i Va 11. 1,80, 0,90, Ö,90. — Þetta ágæta vín fæst nú að eins í vcvsluuiuni E ]) 11 II O R G í Reylijavík, sem lieíir einkasölu á þvi á íslandi. yðteiplara-toiuliúlai verður haldin í Góðtemplara-húsinu Laugard. 3. og Sunnud. 4. Nóv. Gjöfum til hennar verður þakksamlega veilt móttaka af undirrituðum. Reykjavik 15. Okt. 1906. Pétur Zóphóníasson, Ivlapparst. Helgi Helgason, Óðinsg. 2 Andrés Bjarnason, Lv. 11. Kristjana Pétursd., Suðurg. Gróa Andersen. Aðalslr. 9. Magnús Gislason, Ijósin. Sveinn Jónsson, Þingh.str. 28. Karl H. Bjarnason, Hvcrfisg. 5. Vilborg Guönadóttir, Laugav. 27. D. Ostlund, Þingh.stræti 23. Einar Finnsson, Klapparst. 13. Pórvaldur Guðmundsson, Bankastr. 3. Kristinn Magnússon, Aðalstr. 3. Páll Halldórsson, Sjómannaskólanum, Puríður Sigurðardóttir, Hegningarhúsinu.

x

Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.