Templar


Templar - 08.04.1908, Síða 2

Templar - 08.04.1908, Síða 2
54 T E M P L A R Ccmplar cr útbrciddasra blaö landsins, upplag 4,000 - og pví langbcsta auglýsingabiaðið. Br. Svcinn 3ónsson trcsmiður, Þingbolst- strccti 2$, tckur á móti auglýsingum í blaðið. Jllla afgrciðslu blaðsins annast br. Davið 0 $ 11 u n d prcntsmiðjucigandi, Þingboltsstr. 23. Það eru hin beinu útgjöld þjóðarinn- ar til áfengiskaupa. Og eg hygg, að eg verði ekki með sanngirni sakaður um neinar öt'gar, þótt eg segi, að önnur eins fjárhæð fari forgörðum í óbein gjöld, sem af á- fengisnautninni stafa. Hér er mein að vöntun hagfræðis- skýrslna um þetta efni. Á Englandi telst hagfræðingum svo til, að sjöttung alls vinnutíma sé eytt við drykkju, — auk hvíldartíma, er til þeirrar iðju ganga. Er ástæða til að ætla, að miklu minni tíma sé til þessa varið hér tiltölulega? Og þegar svo þar við bætist heilsu- tjón, er af áfengisnautninni leiðir, slys- farir, stytting mannsæfinnar, hnekkir andlegs og líkamlegs þroska, glappa- skot og mistök í viðskiftalífi, misráðin ráð o. fl. o. fl. — þá mun síst of mik- ið í lagt, þótt kaupverð áfengisins sé tvöfaldað. Eftir því gefur þjóðin 1,200,000 kr. — eina miljón og tvö hundruð þúsund krónur — fyrir áfengi á ári. — Það eru 75 kr. á hvern af áðurnefndum 16 þús- undum manna. En af þessari fjárhæð ganga 160 þús. kr. til almennra þaría: — áfengistollur í landssjóð. það er til jafnaðar 10 kr. frá hverjum manni (16 þús.) Væri nú hins vegar áfengistollinum eöa jafnri fjárhæð jaínað á alla þjóðina. 80 þús. manna, þá kæmu 2 kr. á hvert bak * * * Hvar er að finna réttast mat á gjald- þoli þjóðarinnar til almennra þarfa? Að minni hyggju er það í fjárlögun- um. Pau eru samin með mikilli vandvirkni og nákvæmni af fulltrúum þjóðarinnar. Og síst mun um það kvartað, að gjaldþolið sé þar vanmetið. í núgildandi fjárlögum, fyrir 2 ár, 1908—1909, eru tekjurnar taldar rúmar 2 milj. og 800 þús. kr. Það ætti þá að vera rétt mat á gjald- þoli þjóðarinnar til landsþarfa. En þar frá virðist bera að telja 500,000 kr. lán, sem talið er með tekjunum; ennfremur nokkrar smærri fjárhæðir, sem erlendir menn greiða. Ætla má, að eftir verði rúmar 2 milj. kr. Ársgjaldþol ið er þá rúmlega ein miljón króna. Það er með öðrum orðum hér um bil jöfn fjárhæð og þjóðin ver til áfeng- iskaupanna, að frádregnum áfengistoll- inum. Gjaldþolið er 12 kr. 50 a. á mann; en áfengisbyrðin var 75 kr. á mann. Væri nú áfengsbyrðinni varpað í sjó- inn, og gjaldþolinu sem við það ynn- ist, bætt við það sem fyrir er til ai- mennra þarfa, þá tvöfaldaðist burð- armagn þjóðarinnar. það yrði 25 kr. í staðinn fyrir 12,50 á mann. Mundi þjóðarbúinu ekki vera betur borgið rneð þeim hætti? Nú er þess ennfremur að gæta, að því þyngri sem áfengisbyrðin er, þeim mun minna leggja þeir af mörkum til almennra þarfa, sem hina bera, eins og áður var sagt. Byrðin skiftist misjafnt á einstaklingana. Sumir í því liði bera lítið af henni, en gjalda aftur mikið til opinberra þarfa. En aðrir rogast þar með þyngra hiass en þrótturinn leyfir, og er síður en svo, að á þá verði bætt. Þar eru fleiri liðléttingar og óbermi en í hinum hópnum. Og það sem mestu skiftir: Bakkusar- fylkingin eykur ómegð svo mikla á þjóðarbúinu, að gjaldþol hinna efnaðri í þeirri fylkingu hrekkur naumlega fyrir framfæri hennar, eins og sýnt er með framanskráðum tölum. Auðvitað má véfengja tölurnar, þar sem ekki er hægt að byggja þær á hag- fræðisskýrslum. En eg hygg að það megi þá gera á báða bóga, og því haggist ekki grundvöllurinn til muna. Og ef þetta er nú rétt athugað: — að töluverður hluti þjóðarinnar — segj- um einn fimti —, sé henni gagnslítill í lífsbaráttunni og framfaraviðleitninni, hvað er þá til ráða? Stuart Mill segir svo: Sérhver sá, er verndar nýtur af mann- félaginu, er skyldur að endurgjalda því þá velgjörð. Og af því að menn lifa í mannlegu félagi leiðir það óhjákvæmi- lega, að hver maður er skyldur til að gæta nokkurra hegðanarreglna gagnvait öðrum. Bessi hegðun er . . . í því fólgin, að hver maður beri sinn hluta af skyldukvöðum þeim og byrðum, er nauðsynlegar eru til að verja mannfé- lagið og meðlimi þess tjóni og árásum. Þessara skilyrða hefir mannfé'agið rétt til að annast um að gætt sé, og það hvað sem það kostar þá, er undan vilja skorast að rækja þau. Árni Jóhannesson. @j\ ® Hvað er að frétta? Elding drap hesta austur í Hornafirði hinn 5. f. m. Eað var hjá Benidikt bónda Kristjánssyni í Einholtum. Henni laust . niður í hesthús, en í því voru fimm hestar. > Um morguninn, er að var komið, voru þrír hestarnir dauðir, en tveir voru lifandi, annar blindur á öðru auga, en hinn sakaði hvergi. Göt voru á þakinu og sum all- stór, og engir áverkar sáust á hestum þeim, er dauðir voru. Slys af eldingu eru ákaflega sjald- gæf hér á landi, en aftur harla tíð í Canada. Hctauciði í í’orlákshöfn er góð, veiðist þar nægur þoskur, en því er kunnugir menn segja, er það í fyrsta sinn sem sú veiðiaðíerð er notuð þar. Uatltsocitan. Á síðasta bæarstjórnarfundi var samþykt að taka tilboði tveggja erlendra manna, G. Lössl í Damr.örku og V. Kjögs hér í bænum, uin gróft fyrir vatnsleiðsluna frá Rauðarárholti að Elliðaánum fyrir 18335 kr. til tryggingar framkvæmd verksins setja þeir 3600 kr. Alls komu 7 tilboð um verk þetta, hæsta boðið var 54 þúsund krónur, en flest voru frá 24—35 þúsund krónur. Tilboð það, sem bæarstjórnin tók, var lang lægsta tilboðið. HÖtt fcnnir. í II tbl. Norðra er þessi saga sögð: > Fimtudaginn 27 Febr. hvarf ungur köttur; er Hallgrimur Davíðsson veislunarstjóri á Akureyri á, og urðu allar leitir að honum árangurslausar, en fyrra laugardag (7. Mars) heyrði kvennfólk, er var að hengja þvott til þerris, kattarmjálm i- snjóskafli. Var þá grafið niður og fanst köttur- inn bar lieill á húfi undir járnplötu, er lá ská- halt í fönninni. Hann hafði þá legið þarna í 9 sólarhringa, án þess að hafa nokkuð til matar. Þess sáust merki, að hann hafði frosið að aftan, og var hann því máttfarinn að aftanverðu, en að öðru leiti furðu hrsss, og lifir uú við bestu heilsu. Scktaðir botnpörpungar. Varðskipið tók 29 f. m. tvo botnvörpunga í landhelgi suður í Garðsjó. Annað þeirra frá Grimsby, var að veiðum, en skipsstjóri þrætti fvrir brotið og urðu liðsmenn Eálkans að vinna eið í málinu; hann var dæmd- ur í 1 600 króna sekt og afli og veiðarfæri gert upptækt, en sökum þess að hann hafði áður bjarg- að íslenskum skipshöfnum, fékk hann leyfi til að kaupa aflann eftir mati dómkvaddra manna fyrir 2500 kr. Hitt skipið var frá Hull og hlaut 400 króna sekt. Samsöngur Brynjólfs Þorlakssonar, á lögum Svbj. Sveinbjarnarsonar var endurtekinn hér sið- astliðið Sunnudagskveld fyrir fullu húsi, og öllum viðstöddum tíl mikillar ánægju. Dý gitt eru br. Guðm. H. Guðnason og str. Nikolina Sigurðardóttir ungfreya, bæði meðlimir í stúkunni Einingin nr. 14. Jrönsk fiskiskúta hefir farist undir Álftaveri í Skaftafeilssýslu í ofviðrinu 24. f. m., og hefir ým- islegt rekald af henm fundist á fjörum þar. Mann- björg varð engin nema ef útlend fiskiskip hafa getað bjargað mönnunum, sem ólíklegt er. (ísaf.) Rlööur fuku á tveim stöðum í ofviðrinu 24. f. m. það er til liefir frést, önnur á Fjósum í Mýr- dal, ný hlaða allstór, bygð í sumar sem leið, Og hin á Úlfljótsvatni í Grafningi; hún lenti á timb- urgeymsltihúsi og braut það til muna, og sömu- leiðis á baðstofunni, sem skemdist nokkuð. ísaf. íslcndingur, nýa botnvörpuskipið hér í Reykja- vík kom inn á Laugardagsmorguninn með 15000 fiska í salti, og mikinn afla að auki á þilfari. Afla hafði hann fengið við Vestmanneyar á 4 —5 dögum. Hann lagði út aftur um kveldið. Jon Jorscti heitir nýtt félag, sem hefir, að því er Vestri skýrir frá, verið stofnað nýlega á Isa- firði. Tilgangur þess er að beita sér fyrir fjár- söfnun í því skyni að reisa Jóni heit. Sigurðssyni forseta minnisvarða á íafirði árið 1911. | EBotnvÖrpuskip’hafa nokkrir Önfirðingar keypt á Englandi og er skipiö nýlega komið hingað ti landsins og tekið að hefja veiðarfrá Önundarfirði í félagi þessu eru þeir bræður TJáll og Kristján Torfasynir á Sólbakka og munu þeir vera aðal- frumkvöðlar þess. Umsóknir. Um Viðvíkurprestakali; sækja prest- arnir sr. Einar Pálsson í Gaulverjabæ, sr. Jón- mundur Halldórsson á Barði og sr. ^Þorleifur Jónsson á Stað í Öxarfirði og enn fremur guð- fræðingurinn Sigurbjörn Á. Gíslason. Gaddapírsgirðing sú, er vér gátum í síðasta blaði eftir Lögréttu, á að vera fimmþætt, og veitir Bún- aðarfélagið 5 au. styrk til hennar fyrir hvern hlaupandi faðm, svo styrkurinn verður alls fullar 600 kr., því girðingin verður yfir 3 inílur að lengd.

x

Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.