Templar - 08.04.1908, Blaðsíða 3
51
gisti- og veitinga-
hús Góðtempl-
ara og bindindis-
manna í Reykjavík, hýsir gesti, sel-
ur mat, og margs konar áfengis-
lausar veitingar, t. d. kókó. sjókó-
laði, kaffi, te, óáfengt öl, gosdrykki,
o. í. I. alt með mjög sanngjörnu
verði. — Allir Góðtemplarar, bindind-
indismenn og bindindisvinir gera það að
skyldu sinni að koma á Hotel ísland og
hafa einhver viðskifti við það.
fiulda Skallagrím$$on, smáleikur sá, er getið hef-
fr verið hér fyr, var endurtekinn á Föstudags-
kveldið. Ágóðinn rennur til heilsuhælisins.
Raflý$ing er í ráði að komist á bráðlega bæði
f Isafjarðarkaupstað og á Patreksfirði. Hr. Jóhann-
es Revkdal rafmagnsfræðingur frá Hafnarfirði var
pantaður nýlega vestur þangað, og kvað honum
hafa litist vel á báða staðina til þeirra hluta.
Vatnsafl nóg og allskamt frá.
Patreksfirðingar eru einnig að hugsa um að
'koma sér upp vatnsveitu saþitímis.
Kauptún þessi verða líklega bæði á undan
Reykjavík með þessar mikilsverðu framfarir.
(ísaf.)
Espcrattto. Hr. Þorsteinn f’orsteinsson kand.
polit. hefir samið kenslubók í esperanto, og er
von á að hún verði gefin út í sumar. Pað mun
gleðja marga teinplara, því nauðsyn er fyrir þá
•að læra hjálparmál þelta, ef það, eins og út lítur
fyrir, verður viðtekið fyrir Regluna.
Prcittarafciagið hélt afmæli sitt hátiðlegt síðast-
liðið Laugardagskvöld. Voru fyrst skemtanir, br-
'Guðm. Magnússon las upp sögu, br. Herbert Sig-
mundsson söng einsöngva, Friðfinnur Guðjóns-
son lék sjónleik og, síðast en ekki síst, str. Stef-
anía Guðmundsdóttir söng gamanvísur. Að skemt-
unum þessum loknum var boiðhald og þar voru
ræðuhöld (Ágúst Jósefsson, Guðin. Magnússon og
Þorv. Þorvarðarson) og fleira til fróðleiks og
skemtunar.
THannalát. Hinn 3. þ. m. andaðist hér bæn-
um br. Þórður Guðmundsson verslunarmaður frá
Hól, bróðir Helga læknis á Siglufirði. Br. Þ. G-
var fæddur 3. Okt. 1850 hér í bænum, og var
hér allan aldur sinn, og naut stakrar hylli fyrir
samviskuserni sína og lipurð. Hinn 25. Nóv.
1902 gerðist hann meðlimur stúk. Verðandi nr. 9,
og var hann það síðan til dauðadags og 4. Mars
1906 tók haim stórstúkustigið. Slúkan hefir inist
þar trúan og dyggan meðlim er hann var. Hann
starfaði einnig i stúkunni og sótti vel fundi með-
an heilsa hans vanst, en hún var slæm síðustu
árin. Hann lætur eftir sig ekkju, Str. Sigríði Hans-
dóttur, og mörg börn, en þau eru uppkomin. Af
börnum hans eru Sigriður kona Eiríks Kerúlfs
læknis, Guðmundur verslunarm., Simon í lærða-
skólanum og Hansína, Valgerður, Helga o. fl
dætur ógiftar hjá móður sinni.
Burtfararpróf af Flensborgarskóla var haldið
31. f. m. luku 15 nemendur og fengu þeir þessar
‘einkunnir:
1. Magnús Stefánsson frá Þorvaldsst. N.
Múlas.................................5,58
2. Jón Guðnason Bálkast. Hún. . . . 5,56
3. Snæbjörn Jónsson Saurb. Bf. . . . 5,39
4. Jón Pálsson Leví Heggsst. Hún. . 5,39
5. Magnús Jónass. Völlum. Kjalarn. . 5,31
6. Sigurjón Högnason Vestm. . . . 5,25
7. Páll Stefánsson Þóroddsst. Hún. . 5,22
8. Þorbjörg Jónsdóttir ísafirði. . . . 5,19
9. Magriús Kristjánss. Hvoli Mýrdal 5,19
10. Solveig Mattíasd. Rvík...............4,85
11. Böðvar Pálsson Vatnsfirði............4,83
12. Jón Gestur Vigfúss. Hafnarf. . . . 4,81
13. Magnea Einarsd. Sandg. Gullbrs. . 4,69
14- Guðríður Guðmundsd. Hafnarf. . . 4,67
J.5. Sigrún Jónsdóttir ....... 4^64
pt f 1 1 r ••*
T E M P L A R
Drukkltun. Hinn 1. þ. m. fórst vélabátur í
Vestmannaeyum með mönnum og öllu er á var.
Báturinn hét Ástríður og formaður hans Arni
Ingimundarson. Á'|oátnum voru alls 6 menn, er
allir drukknuðu.
Samsatfi, með svipuðu fyrirkomulagi og var í
fyrra. ætlarjj hótelnefndin að gangast fyrir á
sumardaginn fyrsta, og má búast við því að
margir templar'ár taki þátt í því. Samsætið í
fyrra var að allra viðstaddra dómi, besta sam-
sæ.tið er þeir hafa setið í. Gefið því gætur að
auglýsingu um það, sem er ájjjöðrum stað hér í
blaðinu.
Druknun. Það-slys vildi til á Hvalfirði snemma
síðastliðinn Sunnudag, að bát hvoltdi þar og tveir
menn druknuðu. það voru Jón Vestdal,Tj ungur
maður og ógiftur, og Vernharður Fjeldsted giftur
maður/'báðir héðan úr bænum. Var Vernharður
síðastliðin sumur með Englendingum inn við
Ell'ðaár, en Jón heit^ rak] þangbrenslu suður á
Seltjarnarnesi.
Þei r"voru á ferðalagi um Hvalfjörðinn; komu
að Þyrli á Laugardardagskveld, en gerðu eigi
vart við sig, en sváfu þar í hlöðu um nóttina.
Um morguninn gerðu þeir vart við sig,sen lögðu
þá á stað yfir Hvalfjörð, en veður mátti þá heita
slæmt. Nokkuð snemma dagsins sá fólkið á
LitlaSandi bát á hvolfi út á nœrfelt miðjum firði,
og tvo menn á kylinum. Bátur er þar enginn,
og var farið út að Brekku til að fá þar bát og
mannhiálp, en það tók talsverðan tíma að koma
bátnum Iram, því leiða þurtti hana Iangann veg
á landi, yfir kletta snös. Er að var komið, var
Vernharður heitinn bundinn við bátinn en drukn-
aður, en Jón hafði tekið burtu. Slys þetta er
sorglegt og svijilegt, því báðir þessir menn,
einkum Jón. voru hirir mannvænlegustu.
Skip$kaðar. Hinn 2. þ. m. fórst bátur á
Stokkseyri, með öllum þeim, er á bátnum
voru. Rennan dag var brim mikið, og sjór
slæmur. a landi í Stokkseyri eru gefin
merki til sjómanna um það, hvernig leiðin
inn á höfnina er, því langt fyrir framan
höfnina eru brimgarðar miklir, og er stórir
sjóir eru, loka þeir með öllu innsiglingunni.
Pennan dag voru, eins og endranær mörg
skip á sjó, en snögglega herti veðrið. Merki
voru gefin, og sum skipin gegndu þeim
og héldu til lands, en sum þeirra héldu
áfram, þar til þau voru tilbúin.
Þegar að skerjaboðanum kom láu þar
margir bátar og biðu lags. Þau er lagið
áttu vildu eigi nota það, og Ingvar Áarels-
son er kemur þar með bát sinn vill nota
það. En rétt er hann hefir gefið skipun um
að nota lagið, og báturinn er kominn ör-
lítinn kipp hrífur brimgarðurinu og ósjór-
inn bátinn og keyrir alt í kaf. Allir skip-
verjar druknuðu nema einn, Brynjólfur Magn-
ússon frá Bár í Hraungerðishreppl, er hin
skipin er lágu fyrir utan gátu bjargað.
Þeir er druknuðu voru:
Formaðurinn Ingvar Karelsson, Hvild
í Stokkseyrarhverfi, kvæntur, röskleikamaður
um fertugt,
Gísli Karelsson Sjávargötu á Eyrar-
bakka, kvæntur,
Jón Gamalíelson Votmúla í Sandvík-
urhreppi,
Gunnar Gunnarsson Gíslakoti í Ása-
hreppi,
Helgi Jónsson frá Súluholtshjáleigu,
nú á Stokkseyri,
Jón Tómasson sonur bóndans á Gegn-
ishólum í Gaulverjabæarhreppi,
Tryggvi Eiríksson á Stokkseyri (bróð-
ir Eiríks bakara þar) og
Guðjón Jónsson(?) Gneistastöðum í
Villingaholtshreppi.
Flestir þeirra er druknuðu voru rúmlega
tvítugir, Gísli og Gunnar á fertugsaldri;
alt dugnaðarmenn.
Hin skipin björguðust út í Þorlákshöfn.
* *
*
Sama dag hlekktist á báti f lendingu á
Loftsstöðum í Árnessýslu (formaður Jón Er-
Iendsson bóndi) og druknuðu þar:
Sigurður Rorgeirsson frá Hofi í
Ásahreppi.
Friðfinnur Rorláksson frá Galtastöðum
í Gaulverjabæarhr.
Stefán Jóhannesson frá Skógsnesi(bróðir
Kristjáns kaupm. Jóhannessonar á Eyrar-
bakka og
Bjarni Filippusson á Hellum í Gaul-
verjabæarhr. ættaður frá Sandhólaferju, kvænt-
ur maður frá sjó börnum flestum áómagaaldri.
Sauðárkrók 7 Apríl. Tíða'rfar hér er gott. í
gær var ofsarok og hláka, Almenn vellíðan. Engin
tíðindi.
Blöðitt. í’jöðólfur flutti nýlega grein eftir ein-
hvern er ritar undir merkinu L. P. og er grein
sú móti aðflutuingsbanninu. Grein þessari hefir
verið svarað rœkilega. í ísafold er ágætt svar
gegn henni eftir br Árna Jóhannsson biskups-
skrifara og Lögrétta fiytur ágæta grein gegn
henni eftir Halldór Jónsson bankagjaldkera.
Fjallkonan flytur og grein með aðflutningsbann-
inu, er eftir byrjun að dæma, er hin besta.
Templar kann blöðum þeim, er styðja baráttu
vor bannlagamanna með því að| flytja greinar
með aðflutningsbanninu hinar bestu þakkir.
Kafla úr grein br. Árna höfum vér tekið “hér
upp, en sem allra flestir ættu að lesa allar grein-
arnar.
Kappglimur
voru háðar hér 1. þ. m., samkvæmt auglýsingu
frá glímufélaginu Ármann um silfurskjöld er það
hafði Iátið búa til. Skjöldur þessi er mjög lag-
legur og þungur eftir stœrð, kostar um 150 kr.
Á hann er mótaður maður (Ármann) og nafn
félagsins ritað á hann með höfðaletri. Félagið
hefir mælt svo fyrir, að glímt verði um skjöldinn
1. Febrúar ár hvert, og að sá beri hannerflesta
vinninga fær, en vinni sami maður hann þrisvar
í röð, er skjöldurinn eign hans.
Glímurnar voru hinar bestu. Glímt af snild
mikilli, og auðséð að æfing var góð. Hafa aldrei
betri glímur verið sýndar hér, og á félagið
miklar þakkir skilíð fyrir það. Og aðsóknin var
mikil, húsið troðfult, og jafnvel fram yfir það, og
margir urðu frá að hverfa; aldrei verið meir
en þar.
Tólf menn ætluðu að taka þátt í glímunum
en af þeim mætti ekki Hermann Stefánsson, og
var því talið svo að hann tapaði öllum glímum
sínum. Á meðan á glimum stóð gengu þeir
Snorri Einarsson, Ól. Magnússon og Eyólfur
Björnsson frá sem óvígir, áður en þeir höfðu
glímt við alla; og var þar lika talið svo, að
þeir hefðu tapað þeim glímum er þeir áttu eftir
að glíma.
S C
tA c
C <n
o c tr.3
«0 30
V) W CtX) V
g w - t;
•r. c c/í w
33
• p p
'V -o
^ c c
3 D P
^EH
'0*0*0
C
o
C/5
n'’3 2 g
c c C q
»0 a> 'rt z
u V, w O
* g c^
C-S = C
.5 i- ™ rt
° ME"
i—1 «*
C
o
cn
V)
C *p o
O ^ w
C/J P C/J
w tx *-
cfö
tuO
u. s-i •—
'O a
^•0 cW
P ‘O
L. O
3 1-1 h
C 3 S
•rt bc an y
Bened. Sveinsson »iooooioiiop 5
Eyólíur Björnsson o»ooooioiooi 3
Guðm. Sigurjónss. ii»oioioiioi 7
Guðm. Stefánsson iii»ioiiiioi 9
Guðj. Kr. Jónass. iioo»oiooioi 5
H. Benidiktsson iiiii»iiiiii 11
Herm. Stefánsson oooooo»ooooo o
Jónat. Þorsteinss. iiioioi»iioi S.
Ól. Magnússon ooooioio»ooi 3
Sig. Sigurðsson oiooooioi»oi 4
Sigurj. Pétursson iiiiioiiii»i io
Snorri Einarsson 00000010000» 1
Hallgrímur Benidiktsson hlaut því skjöldinn,
sem besti glímumaður Reykvíkinga, með 11
glímur unnar en enga tapaða. Næstur honum
varð Sigurjón Pétursson verslm. með 10 unnar.
og eina tapaða.
Brxðrabilta var ekki talin, en glímt aftur.