Templar - 03.07.1910, Blaðsíða 2

Templar - 03.07.1910, Blaðsíða 2
38 T E M P L A R. Templar kemur út á hverju 20 daga fresti, minst 18 blöð. Verð árgangsins 2 kr„ er borgist fyrir 1. júlí. Upp- sögn skrifieg fyrir i.okt. og þv( að eins gild, að kaupandi sé þá skuldlaus. Afgreiðsla blaðslns er á skrifstofu Stórstúkunnar, utanáskrift: Afgreiðsla „Templars“, Box A 21, Rvik, og ber að senda þangað alt er viðkemur afgreiðsl- unni. Þar er veitt móttöku borgun fyrir blaðið og kvittað fyrir. Afgr. er opin hvern virkan dag, kl. 7—8 síðd. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Arnason, Box A 21, Reykjavík og sendist honum alt, er snert-, ir ritstjórn þess. Hann veitir og auglýsingum móttöku. var stofnuð hér st. »Framtíðin« nr. 13 og í nóv. (17.) um haustið var stofnuð »Einingin« nr. 14. Það sama sumar voru stúkur stofnaðar í Hafnarfirði, Eyr- arbakka og Stokkseyri, Garði og Kefla- vík. Og árið eftir (1886) eða tæpu ári síðar, var Stórstúkan stofnuð 24. júní. Frá þeim tíma hefir Stórslúkan haft á liendi aðalumsjónina með starfi Regl- unnar og útbreiðslu hennar og leysti hún þá st. Verðandi af hólmi sem aðal- stoð Reglunnar í þeim efnum. Stúkan Verðandi sýndi það brátt, að hún var skipuð góðum og tryggum fé- lögum og hefir starf hennar verið alla- jafna fremur kyrrlátt, en fast og ákveð- ið, og má segja, að hún hafi haldið sess- inum sem leiðandi stúkan hér á landi. Út frá henni hafa gengið hollir straum- ar og jafnan hefir hún verið laus við æsing og framhleypni í reglumálum. Hún hefir því notið mikillar virðingar, bæði fyrr og síðar, á þessum 25 árum, sem hún hefir lifað. Hún hefir átt innan sinna vebanda marga af Reglunnar færustu og hæfustu inönnum og má þá benda á, auk þeirra, sem áður er getið, bræðurna Arna Gísla- son, ieturgrafara, sem með valmensku sinni og ljúfu framkomu og áhuga hefir unnið Reglunni meira gagn en flestir aðrir og vakið virðingu manna á henni, Guðlaug Guðmundsson, nú bæjarfógeta á Akureyri, Indriða Einarsson, endurskoð- ara og Jón Ásmundsson; svo og látnu br. Gest Pálsson, skáld, Jón Jónsson, skipa- smið, Bened. Pálsson, prentara, Erlend Magnússon, gullsm., Jónas Helgason, or- ganleikara og Hjálmar Sigurðsson, skrif- ara, sem allir unnu mikið fyrir stúkuna á ungdómsárum hennar; þá má og nefna systurnar: Mörtu Pctursdóttur, Ingunni Loftsdóttur, Porbjörgu Hafliðadóttur, fyrsta konan, sem gekk inn í Regluna hér á landi, Halldóru Hinriksdóttur og Margréti Pálsdóttur, sem allar hafa á ýmsan hátt stutt stúkuna bæði fyrr og síðar. Þess ber að geta, að elzti templarinn í stúkunni er br. Árni Gíslason, póstur; hann gekk fyrst inn í st. Aurora nr. 2 á ísafirði og fluttist í st. Verðandi skömmu eftir stofnun hennar. Þá má minnast á nokkra af yngri fé- lögunum, sem hafa mikið unnið í stúk. síðari árin, svo sem bræðurna: Halldór Jónsson, nú umboðsm., Pétur Zóphónas- son, Harald Níelsson, Pétur Halldórsson, Aðalbjörn Stefánsson, Július Arnason, Pórð L. Jónsson og núverandi Æ.T. Jón Pórðarson, kaupm., Árna Helgason, skó- smið; svo ogsysturnar: Agústu S. Magn- * úsdóttur, Kristjönu Pétursdóttur, Guðlaugu Arnadóttur, Guðrúnu Clausen og Guðrúnu Porsteinsson. Auk þeirra, sem hér eru taldir, hefir stúkan átt fyrr og siðar marga ágæta starfsmenn, sem mikið hafa fyrir hana unnið og er ómögulegt að telja þá alla upp liér. Eins og áður er sagt, liefir st. Verð- andi verið svo heppin að eignast mjög marga góða og hæfa starfsmenn. Hún hefir þannig haft siðan Stórstúkan tók til starfa, lilutfallslega langfiesta starf- andi menn þar og það hefir og lcomið fyrir, að hún hefir átt um nokkurt skeið innan sinna vebanda fulla helft fram- framkvæmdanefndarinnar. Þetta sýnir hve vel hún hefir staðið að vígi í störf- um Reglunnar og stjórn hennar. Stúkan »Verðandi« hefir ætíð verið frjálslynd i skoðunum og framkomu í ýmsum málum og lialdið taum hinna frjálsari lireyfinga innan Reglunnar; má í því efni benda á málið um fjölgun stúkna hér i Rvík, húsmálið svo kallaða o. fl. Stúkan »Verðandi« er fyrsta stúkan á Suðurlandi og með henni nær Reglan fótfestu í Rvík. Áður gekk, eins og sjá má á skýrslum þeim, sem lagðar voru fram á stofnunarþingi Stórstúkunnar, starfið fremur erfiðlega og í molum, sem vonlegt var. En eftir að stúkan tók lil starfa og fór að beita áhrifum sínum, ásamt þeim stúkum, sem komu upp á Suðurlandi, fór Reglan að ná föstum tökum á þjóðinni og má því með mikl- um rétti halda því fram, að stofnun hennar hafi verið framtiðar- og tilveru- skilyrði fyrir Regluna og málefni henn- ar í landinu. Vér óskum stúkunni »Verðandi« nr. 9 til hamingju á þessum tuttugu og fimm ára aímælisdegi hennar og vonum og óskum, að hún lifi og starfi um ókomn- ar aldir og skipi þann sess, sem hún hefir með sóma skipað hingað til, til styrktar þeirri göfugustu stofnun, sem til er og málefni hennar til verndar um aldur og æfi. Yfirlýsing1. Eins og getið var um í síðasta blaði, hélt stúkan »ÁrsóI« nr. 136 fund með nokkrum konum, sem eru hér á kenn- aranámsskeiðinu. Út af umræðum þeim, sem urðu á fundinum, hefir »Tpl.« bor- ist eftirfarandi yfirlýsing, sem hann leyfir sér hér með að birta með þakklæti til allra þeirra, sem undir hana hafa skrifað: Vér undirritaðar, námsmeyjar á fram- haldsnámsskeiði kennaraskólansíReykja- vík, viljum hérmeð samkvæmt tilmælum kvennstúkunnar »Ársól« nr. 136, lýsa því yfir, að vér munum af fremsta megni leitast við að efla og auka allan góðan félagsslcap meðal barna og unglinga, eft- ir því sem staðhættir frekast leyfa oss. Vér teljum það eitt hið allra nauðsyn- legasta meðal fyrir andlegan þroska is- lenzkra ungmenna. Álítum vér einnig lieppilegast að hafa slíkan félagsskap með sama eða svipuðu fyrirkomulagi og er í barnastúkunum. Ennfremur teljum vér það skyldu vora sem kennara, að veita börnum sem ná- kvæmasta og sannasta fræðslu um skað- semi áfengra drykkja, hvort sem litið er á nautn þeirra frá heilsufræðislegu, efna- legu eða siðferðislegu sjónarmiði. Kennaraskóla íslands, Reykjavík, 14. júní 1910. Ingibjörg Benediktsdóltir. Sesselja Stefánsdóttir. Elinborg Björnsdóltir. Guðrún Sveinsdóttir. Guðbjörg Porsleinsdóttir. Oklav. Pórðardótlir. Krislín Guðmundsd. Guðrún Guðmundsdóttir. Elísabet Friðriksdóttir. Ingibjörg Jóhannsdóttir. Kristin Runóljsdóttir. Elín Vigfúsdóttir. Sigriður Jónsdóltir. Oddný Finnsdóttir. Sigríður Björnsdótlir. Ingibjörg Finnsdóttir. Sleinunn Bjartmarsdótlir. Síra Fr. J. Bergniann gefur stutt og ljóst yíirlit yfir bindindishreyfinguna í heiminum í siðasta hefti Breiðablika (IV 12) og lýkur máli sínu með þessum á- lyktunarorðum: — Á þessu yfirliti, sem styðst við langa ritgerð í frægu ensku blaði, má sjá, að þar sem menningin er skemst á leið komin, er áfengisnautn mest og minst gjört til að hnekkja henni. En aftur á hinn bóginn: Þar sem menning er mest og framsóknarhugur fólksins sterkastur, þar er að því starfað af mestum áhuga og ötulleik að koma á algerðu áfengis- banni. — Lærdómsrík staðreynd fyrir þá, sem ætla að áfengisbannið færi oss íslend- inga í hóp skrælingja! Saklausir gjalda. Það var laugardagskvöldið fyrir hvíta- sunnu. Þriðja stórhátíð ársins var að ganga í garð ; kirkjuklukkurnar voru byrj- aðar að gefa það til kynna og boðuðu þær guðs frið yfir lög og láð. Það hvíldi líka ró og friður yfir allri náttúrunni þetta kveld. Á hæðunum, sem lágu fyrir ofar. kaupstaðinn, þar sem saga þessi gerðist, ríkti líka ró og friður, því þar var logn, svo varla blaktaði hár á höfði. Og fénaðurinn, sem þar var á beit, virtist una vel hag sínum og fagna um- skiftunum, því vorblíða og gróður var kom- inn í stað vetrarhörku og vornæðinga. Á höfninni ríkti líka gleði og friður. Hún var spegilfögur og slótt í kveldkyrð- inni og alþakin fiskiskipum og flestir þeirra, er á þeim voru, voru glaðir í anda, því þeir höfðu aflað vel og nú voru þeir komnir til lands í faðm ástvina sinna og gátu með þeim þakkað drotni veitta vernd og blessun. í flestum húsum kauptúnsins var mikill undirbúningur undir morgundaginn, bæði vegna hátíðarinnar og ekki síður vegna þess, að þá átti að staðfesta mörg af ung- mennum kaupstaðarins. í húsi nokkru bjuggu hjón með fimm börnum sínum, fjórum sonum og einni

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.