Templar - 14.07.1914, Blaðsíða 3

Templar - 14.07.1914, Blaðsíða 3
39 25 og á öllum aldri getur það verið skaðlegt fyrir hvern sem er. Baráttan Ég hugsa mér nú að Unglinga- aukin. reglan vilji nú af ýmsum ástæð- um leggja mikið kapp á barátluna gegn tóbakinu með það mark fyrir augum að útrýma því með öllu. Eg býst ekki við að ég geti bent á hvað bezt væri fyrir Regluna að gera í þessu máli. Ráð- legt gæti það virst að koma á tóbaks- bindindisfélögum eða nýjum stúkum með tóbaksbindindisheiti, er tækju við af barnastúkunum. Þeir menn standa bezt að vígi til að ráða fram úr þessu máli, sem kunnugastir eru högam barna- stúknanna, og þeir ættu -ekki að setja ljós sitt undir mæliker. Breytt starf, Eftir að bannlögin eru kom- ný málefni. jn á hlýtur I.O.G.T. að breyt- ast frá því sem nú er. Það verður ekki lengur þörf á að ná mönnum í vínbind- indi eins og liingað til. Aðalstarfið verð- ur fólgið í því að fræða þjóðina um gildi bannlaganna og skaðsemi áfengis. Til þessa starfs notast ekki allir þeir kraftar, sem Reglan hefir nú yfir að ráða, og ef þeir eiga ekki að rýrna, þarf að fá þeim nj7tt viðfangsefni, og ef Regl- an sjálf á ekki að dej'ja út með víninu — en það má ekki verða — þarf hún að snúa sér að nýju eða nýjum viðfangs- efnum. Þótt langt kunni að vera þang- að til að Bakkus er með öllu landræk- ur, virðast einmilt timamótin vera nú til að velja hina nýju stefnu. í minum augum er tóbaksbindindismálið beinast fyrir og frá þjóðfélagsins sjónarmiði er það meira velferðarmál en ílest af þvi, sein kallað er þjóðmál. Vitanlega er í Reglunni margt manna, sem neyta tó- baks og vilja ógjarnan leggja þann vana niður; en þótt þeir neyti tóbaks, ættu þeir að geta séð, að hér er um velferð- armál að ræða. En það er líka í Regl- unni margt karla og kvenna, sem ekki neyta tóbaks. IJeim mönnum þarf að fá hið nýja málefni í hendur og þannig á að auka baráttuna við tóbakið eftir því sem vínið hverfur úr sögunni. Þetta mál er þess vert, að um það sé rætl og ritað og síðan undirbúið fyrir stórstúku- þing til endanlegra úrslita. Vegur Ég mintist á það, að i flest- íslands. um siðuðum löndum væru kom- in á sambandsfélög milli tóbaksbind- indisfélaga i viðkomandi landi. Nú er það í undirbúningi að öll þessi félög myndi veraldarsamband, tit að kosta vísindalegar rannsóknir í skaðsemi tó- baks, gefa út alþjóðlegt tímarit um það efni o. s. frv. Það væri sómi fyrir ís- land, ef íslenzkir tóbaksbindindismenn gætu beitt sér fyrir þessu máli og sómi væri það lika ef ísland yrði fyrsta land- ið til að losa sig við tóbakið. IJess mun getið í veraldarsögunni, að ísland var fyrsta land í Evrópu til þess að gera Bakkus útlaga, en því má ekki gleyma, að ísland á að vera öndvegisland á sem flestum sviðum og í tóbaksbindindismál- inu er ótvírætt leikur á borði. Jón Dúason. T E M P L A R. f Sigurður Sæmundsson (i Akurhúsum i Garði) fæddur 27. ágúst 1861 — dáinn 20. maí 1914. Kveðja frá stúkunni Friðsemd ur. 165. Vinur og bróðir! Pá er úti þrautin. Tig hefir Drottinn kallað heim úr stríði. Nú er þér orðin blessun þyrnibrautin — blessunarríkust er hún, þó að sviði. Pökk fyrir shíðið! þú átt heimvon góða, þú átt nú vist með góðum hirði þjóða. Glaður i von þú gekst að þínu verki: »Guð er mín hjástoð, engu þarf að kvíða«. Vissir þig ávalt undir Drottins merki, ótrauður réttu’ að hlýða, góðs að bíða. Þökk fyrir starfið! þú átt heimvon góða, þú átt nú vist með hjálparanum þjóða. Fórnfúsir, eins og þú, við viljum vera, vona hins bezta, örugt skeiðið þreyta, rótfasta trygð til Reglu vorrar bera, rækja vor störf, því Guð mun sigur veita. Pökk fyrir dœmið. Guðs hinn góði andi, gel'ðu, að Friðsemd á þvi hjargi standi! B. J. Heilsusamleg'ar nautnir, í danska blaðinu „Frisk Luft“ stendur eftirfarandi klausa: Við lifum á öld nautnanna. Allir sækj- ast eftir nautnum, frá þeim lítilmótlegasta til hins mikilhæfasta; en hve ólíkar eru ekki nautnirnar! Satt er það, að við er- um sennilega ekl:i látin vera héf á jörð- unni til þess eins að draga fram lífið í kveini og kvölum, án allra nautna og lífs- gleði, það er langt í frá. Það er séð fyrir því, að náttúran veitir þær nautnir, sem fullnægja öllum. Gaktu um í skóginum um bliðan sum- ardag, hlustaðu á fuglasönginn, athugaðu blómskrúð merkurinnar, dragðu að þér ilminn frá þúsundum ilmjurta, drektu tæra vatnið úr fossandi lækjarsprænunni, dragðu að þér hreina loftið í djúpum andardrátt- um. Er lífið þá án nautna ? Eða — farðu niður að ströndinni og fleygðu þér í svalandi sjóinn og þú munt finna til þæginda þeirra, sem hin réttu lyf náttúrunnar veita þér, og þegar sólargeisl- arnir gefa líkamanum þann náttúrlega hita, mun þá ekki taugakerfið hafa fengið þá örfun, sem æskileg er. Og ef þú sezt svo að óbrotinni máltíð og neytir með góðri lyst nærandi rétta, þá er það einnig nautn. Lífið er í sannleika nautn, en mennirn- ir hafa eigi gert sig ánægða með það og hafa, því er miður, komist inn á braut skaðlegu nautnanna. Barnablaöid »ÆSKAI(( vill komast iTiii á öll bnrnnheimili á íslnndi. Pnntið Iinnn í nfgreiðslunui Lnugnveg 68. Verð árg. 1 kr. 20 nur. „Templar“s- iírgangarnlr 1910, 1911, 1912 og 1913 fást hjá iltgefanda innheftir og kosta 75 a. liver, en allir í einu lagi 2 kr. auk hurðargjalds. Frá stúkunum. Skemtiför fóru barnastúkurnar í Rvík suður í Kópavogshvamma sunnudaginn 5. þ. m. Lagt var af stað kl. 10 árd. og gengið í skrúðgöngu með stúkufánum og smáflöggum um nokkrar aðalgötur bæjar- ins. Lúðrafélagið „Sumargjöfin" gekk í far- arbroddi og lék á hljóðfæri sín, en í göng- unni voru um 180 manns og bæt.tust þó nokkrir við síðar á skemtistaðnum, þar á meðal nokkrir félagar barnastúkunnar „Sól- ey“ á Álftanesi. Áð var á Öskjuhlið og smakkað á nestinu og síðan haldið áfram þar til á skemtistaðinn var komið. Var þá búið að reisa þar stórt tjald og blakti templarafáninn yfir því, eins og hann væri að bjóða alla velkomna. í tjaldinu var selt kaffi, mjólk, limónaði o. fl. Þegar búið var að borða og hvíla sig, var tekið til íþróttanna. Var fyrst kapphlaup og tóku um 80 þált í því. Siðan var hástökk, en þátttakendur færri. Þrenn verðlaun voru veitt í hvorri grein og voru það mest bækur, sem barnablaðið „Æskan“ hafði gefið. Að því búnu var farið i ýmsa leiki, þangað til kl. 5 síðd.; þá var farið að týgja sig til heimferðar og komið heim kl. 6U2. Veður var hið bezta allan daginn og hjálpaði það mjög til að gera þetta ferðalag skemtilegt. 1. Frá útlöndum. Upplýsingaskrifstofu í Kristjaniu hafa bindindismenn í Noregi sett á fót. Hefir sambandsstjórnin veitt forstöðumannsstarfið O. S. Solnördal málaflutningsmanni. Almenningur hafði samt búist við því að starfið yrði veitt br. P. A. Pedersen, yfirprentara, sem hefir í nærfelt 20 ár starf- að að Utvegun upplýsinga, bæði í Noregi og utan Noregs. En líklega mun lögfræð- fræðisprófið hafa mátt sín meira en verk- lega reynslan og dugnaðurinn. Danska bannnefndin. Eins og lofað var, þegar rótnemastjórnin komst að völdum í Danmörku, þá hefir verið ákveðið að setja nefnd til að athuga og gera tillögu um bannlög í Danmörku. 15 eða 17 manns eiga að vera í nefndinni og eiga hvor þing- deild um sig að kjósa 4 menn í nefndina, en stjórnin skipar hina. Þessir eru þegar skipaðir af þinginu: frá Rótnemum Ferdi- nand Nielsen, frá Vinstri mönnum Laurs Kvist og Eising, frá Hægri mönnum Poul Rasmussen og Abrahamsen. Formaður nefndarinnar verður C. Ussing, þjóðbanka- stjóri, sem átti sæti í bindindisnefndinni 1903. Afengisbann i norska hernum. Þriðjud. 16. f. m. var til umræðu í stórþinginu áfengisbann í land- og sjóhernum. Um það urðu auðvitað langar umræður. Stjórn- in viðurkendi tillöguna eins og hún var orðuð að lokum. Hún hljóðar svo: „Skorað er á sfjórnina að sjá um að bann gegn notkun áfengisdrykkja verði á- kveðið í sambandi æfingarnar bæði í land-

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.