Templar - 28.10.1915, Qupperneq 1

Templar - 28.10.1915, Qupperneq 1
TEMPLAR. XXVIII. Reykjavik, 28. okt. 1915. 15. blað. Stefnuskrá Good-Templaru. I. Algerð afneitun allra áfengisvökva til drykkjar. II. Ekkert leyíi f neinni mynd, hversu sem á stendur, til að selja áfengisvökva tildrykkjar. ■3II. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð samkvæmt vilja þjóðarinnar íramkomnum 1 réttu lagaformi, að viðlögðum þeim refsing- um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar. TV. Sköpun heiisusamlegs almenningsálits á máli þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á alla þá vegu, sem mentun og mannást eru kunnir. V. Kosinng góðra og ráðvandra manua til að framfylgja lögunum. 'VI. Staðfastar tilraunir til að írelsa einstaklinga og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun, þrátt fyrir allskonar mótspyrnur og örðug- leika, þar til vér höfum borið sigur 6r být- nm um allan heim. Pær stúkur, sem eigi hafa enn sent meðmæli sin með Umboðsmanni Stór-Templars, eru beðnar að gera það liið bráðasta. Pað eru stúkurnar nr. 2, 7, 15, 23, .24, 32, 46, 48, 50, 60, 65, 69, 73, 75, 102, 122, 128, 131, 132, 136, 144, 152, 159, 163, 165, 166, 167, 169. Meðmælin sendist mér. Skrifstofu Stór-Ritara, 28. okt. 1915. Jón Árnason. Innflutning'ur á víni. Legar »Sterling« kom til Vestmanna- eyja síðast á leið hingað til lands, þá barst sú fregn »MorgunbIaðinu«, að sumir liásetanna á skipinu hefðu verið seklaðir í Leilli fyrir áfengi, sem þeir hefðu haft með sér ólöglega. Sumir skip- verjanna hefðu jafnvel fengið 11 sler- lingspunda sekt og undirstýrimaðurinn liafði verið settur í varðhald. Þetta vakti mikla athygli, því líkur þóllu miklar fyrir því, að alt það áfengi, sem þeir höfðu undir höndum, mundi hafa átt að fara í land hér á landi, enda hefir skipið ekki sem bezt orð á sér í þeim efnum. Því hefir verið hald- ið fram — líklega til þess að fegra þessa framkomu — að þelta sé algengt og að slíkt hafi líka komið fyrir á íslenzku skipunum, að skipsmenn liafi verið sekt- aðir fyrir ólöglegt áfengi. Ekki getur það þó talist nein afsökun fyrir Pétur þó að Páll fremji lagabrot. Það er auð- vitað minkunn fyrir hlulaðeigandi menn og félögin, sem þeir vinna hjá, að þeir fái það orð á sig, að þeir liggi i laga- brotum. Það er venjulega svo, að heiðarlegir menn vilja aldrei láta það um sig spyrj- ast, að þeir hrjóti lög, og vilja jafnvel gefa mikið fé til þess að hafa og halda því álili almennings, að þeir séu góðir og æruverðir horgarar. Að öðru leyti er þetta mál lærdóms- ríkt. Það sýnir að útlendu valdsmenn- irnir ganga ríkt eftir að lögum sé hlýtt. Þeir láta ekki gabba sig og þess vegna taka þeir fast í strenginn þegar þeir verða varir við eitthvað grunsamt, enda er það nauðsynlegt, því að öðrum kosti mundu þeir tapa öllum tökum. Það verður oft og tíðum að beita há- um sektum fyrir lagabrot, því það er ekkert annað sem lcennir sumum að lifa en vöndurinn; það er eins og þeir verði alt af að liafa hann ylir höfði sér lil þess að þeir geri ekki sambörgurum sínum skaða. jMorgunblaðið1 og áfengið. Mikill er liann áfengisþorstinn þeirra »Morgunblaðs«-feðranna. Þeirnota hvert tækifæri, sem þeir geta, til þess að kveina og barina sér út af bannlögunum og sýngja áfenginu lof og dýrð, enda sitja þeir sig ekki úr færi ef einhversstaðar er leka að fá til að svala þorsta sínum. En þó þeir fái nú stundum ofurlitið »tár«, t. d. þegar skipin koma eða ef einhver heldur veizlu, sem áfengisbyrgð- ir á, þá nægir það ekki, lieldur verða þeir þess í milli að fylla dálka blaðsins lofgjörðarsón uin gagnsemi brennivíns- ins. Sunnudaginn 24. þ. m. ílutti hlað- ið grein með ummælum eftir Amundsen, heimskautsfara, þar sem liann á að lof- syngja áfengið í öðru orðinu, en kveður það þó óþarfa í hinu og sendir svo bindindismönnum hnútur um leið. Það er óhælt að segja, að ef þessi grein á að vera nokkuð ábyggilegt álit í þessu máli, þá þurfi maðurinn, sem bygt er á, að sýnast dálílið óvilhallari en hann er, ef Morgunblaðið skýrir þá rétt frá. En blaðinu láðist að tilfæra ummæli Nansens um áfengið á heimsskautaferð- um. Hann kveður það alveg óhafandi og liættulegt til drykkjar á slíkum ferð- um. Þetta vita menn; en þeim hefir lilaupist yfir það, þeim vísu Morgun- blaðs-feðrum. Og ekki ætli það að rýra álit Nansens í þeirra augum, að hann er mjög ákveðinn andbanningur, og ekki getur það verið bannofstæki, sem hefir knúð hann til þess að láta þetta álit sitt í ljósi. Það er nauðsynin, sem þar hefir ráðið mestu um. í þessari grein blaðsins er þar af leið- andi ekkert sönnunargildi innifalið, en hún æsir áfengisþorsla nokkurra manna og það er afleiðingin, ef nokkur er. En þetla sýnir aflur, að siðferðis- og ábyrgðartilfinning »Morgunblaðs«-feðr- anna er enn þá ekki komin á það stig, að þeim sé trúandi fyrir leiðsögu í mik- ilvægum þjóðmálum. Hið hærra þjóðfélag. (Framh.). Síðast var minst á embættismenn vora og stjórnmála. Um það mætti auðvitað margt segja; en rúmsins vegna verður ekki lengra farið út í þá sálma, því það er í lleiri horn að lita. Þá komum við að viðskiftalifinu. Greindir menn og athugulir hafa oft látið sér það um munn fara, að við- skiftalíf vort — einkum síðari árin — sé sjúkt, og munu þeir, því miður, hafa mikið til síns máls. Það skal nú þegar tekið fram að ýmsar ágætar og heiðarlegar undantekn- ingar eru frá þessu og er það auðvitað þeim að þakka, að ekki liefir alt fallið hér í kalda kol. Það er kunnugra en frá þurfi að segja að margir liafa leikið þá list að hafa fé af öðrum og koma þeim þannig á vonarvöl. Margir kaupmenn hér á landi hafa haft þá grundvallarhugsun í sinu slarfi, að reyna að ná sem allra mestu hjá viðskiftamönnum sínum; það væri nærri því alveg sama hvernig maður næði í fé þeirra, bara að fá það — og verða ríkur. En þeir hafa, sumir hverj- ir, ekki gætt þess, að því fleiri af við- skiftamönnum þeirra, sem tapa á við- skiftunum og verða öðrum til byrði fyrir þá sök, því hættara verður kaupmann- inum sjálfum að lokum. Að byggja viðskifti sín á eignalausum mönnum er hæpið. En því meiri liagnað sem við- skiftamaðurinn hefir af verzlun sinni, því betra fyrir kaupmanninn — milli- göngumanninn í verzluninni. Yms stórverzlunarfyrirlæki hafa verið sett á stofn hér á landi með útlendu fé að nokkru eða öllu leyti. Þau hafa verið rekin um nokkur ár og svo »farið á hausinn«, sem svo er kallað. Þeim var þannig stjórnað — þó ekki sé nú meira sagt — að sýnilegt var skynbær- um mönnum, að þau liljdu að falla fyr eða síðar. Utlendingarnir, sem lögðu mest féð í fyrirtækin, löpuðu því náttúr- lega öllu saman, og bæði útlendir og innlendir bankar töpuðu líka miklu fé, sem þeir höfðu lánað fyrirtækjunum. Að lokum fengu svo innlendir menn allar eignir félaganna fyrir hálfvirði eða jafnvel minna og bygðu svo stór fyrir- tæki á rústum þeirra og græddu offjár. Oít hefir það verið svo, að það hafa einmitl verið þeir mennirnir, sem voru

x

Templar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.