Templar - 28.10.1915, Page 3
TEMPLAR.
59
hann ís og sítrónusafa, til þess að fá
það bragð, sem menn óska. Bygggrjóna-
seyði má nota í staðinn fyrir mjöl.
/ gleði o() glaumi.
í gleði og ghtumi,
í glislífsstraumi
pelli og purpura
prýðir sig hold;
af ástriðu í unað
og óhófis-munað
regnbogans rósir
rifnav úr mold;
ei tamin er tunga,
er tigna skal punga
almœttis orðanna
alvöru sa/n;
i þrœlnm og þvaðri,
i þœglífis daðri
viðbjóði vanhelgað
vísdómsins nafn.
m. <;
Það er aldrei of varlega farið!!
ílöngunarfullur náungi kemui inn í búð
eina hór í bænum, hitti þar stúlku og biöur
hana að tala við sig einslega. Hún gerir
það.
Hann spyr : „Eruð þór frúin ?“
Hún : „Nei, hér er engin frú. En for-
stöðukonan er ekki við núna“.
Hann : „Það getur nú verið það sama.
Þér seljið mér eina flösku af AVhisky. Ef
hún hefði verið viðstödd, þá hefði hún sjálf-
sagt selt mér eins og svo mörgum öðrum,
sem ég veit að hún heflr selt áfengi".
Hún: „Þér takið víst feil. Hér er
aldrei selt neitt af því tægi“.
Hann: „Hvað! Er þetta ekki Kon-
fektbúðin ?“
Hún: „Nei — hér heflr aldrei verið selt
neitt konfekt".
Náunginn kvaddi í skyndi og var auð-
séð að hann fann sárt til þess, hvað hann
hafði hlaupið á sig.
Það er aldrei o£ varlega farið!! •
Frá útlöndum.
í sept. næsta ár. í Luisiana er enn þá
ekki tímabært að gera slíkar ráðstafanir.
Smásigur var unnin 21. júlí í Minnesota
við kosningarnar þar, því þá voru þurkuð
7 héruð af 8 sem atkv.greiðsla fór fram í,
og 50 áfengisveitingahúsum var lokað. 48
héruð í ríkinu hafa haft atkvæðagreiðslu
og 37 af þeim voru þurkuð.
Brugghúsin í Colorado eru nú að breyta
starfsemi sinni, því ríkið verður þurkað 1.
jan. 1916. Sum þeirra eru að undirbúa
þurmjólkurframleiðslu, og hin búa til óá-
fenga drykki.
Bannflokkur Bandarikjanna heldur árs-
þing sitt í Minneapolis 19. júli næsta ár.
Það er búist við að flokkurinn tilnefni
fm. J. Bryan sem forsetaefni sitt við
næstu forsetakosningar.
Ameriskir eimreiöarstjórar hafa nýlega
haldið þing í Cleveland í Ohio. 819 full-
trúar voru mættir frá þeim 74,000 eim-
reiðarstjórum, sem nú eru í Bandaríkjun-
um og Kanada.
Fundurinn samþykti í einu hljóði að
hann væri meðmæltur ríkis- og þjóðbanni.
Atkvæðagreiðsla i Ástraliu um sölatima
áfengisveitingahúsa. Stjórnin í Suður-Ást-
ralíu lét fyrir nokkru siðan atkvæðagreiðslu
fara fram um það, hvenær áfengisveitinga-
húsunum í ríkinu skyldi lokað. Almenn-
ingur var látinn veija um tímann frá kl.
6 til 11 siðd. Atkvæði fóllu þannig:
Með kl. 6 voru 100,003
_ _ 7 — 829
_ _ 8 — 2,058
_ _ 9 — 9,658
_ _ 10 — 1,957
_ _ 11 — 61,150
Með því að svona mikill meiri hluti var
með því að veitingahúsunum yrði lokað
kl. 6 síðd. var það ákveðið og er nú geng-
ið í gildi og gildir einnig í höfuðstaðnum
Adelaide, sem hefir 200,000 íbúa.
Vínræktin minkar í Sviss. Frá Zurich
hefir frést, að sum af löndum þeim, sem
áður hafa verið notuð til vínræktunar, eru
nú notuð til baunaræktunar með miklum
ágóða. Einnig er miklu meira af vínþrúg-
um selt niðursuðuverksmiðjunum en áður
hefir átt sér stað.
Þjóöstórstuka Bandarikjanna hélt ársþing
sitt 13.—18. ágúst s.l. í San Francisco.—
Br. Geo. F. Cotterill, Alþj. Kanzi., skipaði
forsætið. Var þingið vel sótt. Þingið var
haldið í samkomuhöllinni, sem hefir sæti
handa 12,000 manns. S.T. br. Wrigt og
S.R. br. Willard O. Wylie voru endurkosn-
ir. Næsta þing verður haldið í Grand
Rapids, Mich. í júlí 1916.
Bannnýungar frá Bandaríkjunum. Fund
héldu með sér 10.—15. júlí s.i. í AVash-
ington stjórnir fólagsins gegn áfengíssölu-
stöðunum, hinnar sameiginlegu bindindis-
nefndar kristnu kirkjufélaganna, Hvíta
bandsins og Good-Templarareglunnar. Efni
fundarins var að athuga og undirbúa þjóð-
bannið.
Allir þeir í Kaliforníu, sem hafa áfeng-
issölu og framleiðslu að atvinnuvegi, hóldu
sameiginlegan fund 15. júní í Los Angelos
til þess að ráðgast um þá yfirvofandi hættu,
sem áfengisbann hefði í för með sér. Áð-
ur höfðu þeir rifist um það innbyrðis hver
skyldi hafa mestan ágóðann af heimsku
mannanna. Nú eru þeir sameinaðir. Það
er eitt tímanna tákn.
í Maryland er hafinn undirbúningur und-
ir bannatkvæðagreiðslu, sem á að fara fram
„Dugvan“, blað bindindishreyfingarinnar
á Færeyjum, sem áður var gefið út af
Bindindisfélagi Þórshafnar, er nú gefið út
af „Miðstjórn færeyisku bindindisfélaganna"
og er hr. Poul Niclasen í Þórshöfn ritstjóri
þess. Blaðið kemur út einu sinni á mán-
uði og kostar 1 kr. 15 au. árg.
Það er stefna færeyisku bindindisfélag-
anna að koma á bannlögum á Færeyjum
í sama sniði og íslenzku bannlögin.
Bindindisfélögin í Suður-Ameriku hafa
nýlega myndað samband sín í milli í þeim
tiigangi að greiða götu bannhreyfingarinnar
í þeim hluta Vesturheims. Eru ýmsir
málsmetandi menn í Þeim löndum stuðn-
ingsmenn þessa fyrirtækis.
6000 rúbla (um 12000 kr.) sektir eru
ákveðnar fyrir að brjóta rússneska bannið.
L.eystur úr álögum.
Eftir
Gnido Ritter Gebell von Ennsburg.
(Framli.).
„Fyrirgefið mér, ungfrú; ég get eigi leng-
ur orða bundist", sagði hann með ákafa.
„Þér getið nefnt það afbrot, guðleysi eða
aulaskap, að fátækur kennari vogi sér að
seilast eftir sólinni; en leyfið mér að eins
í eitt skifti fyrir öll að segja, að ég tilbið
yður, elska yður ákaft. Ég hefi um lengri
tíma reynt með sárum kvölum að geyma
með sjálfum mér þessa vitlausu og von-
lausu ástriðu og ætlaði aldrei að láta yður
fá vitneskju um það, hvernig komið var
fyrir mér. En ég hefi ekki getað það
lengur. Ást mín til yðar varð mér ofur-
efli“.
Rhode hafði fallið á hné fyrir framan
hana og tekið utan um titrandi hönd
hennar.
Með gleðibrosi lyfti hún honum upp. —
Gleðióp gaf til kynna að hamingja þeirra
væri óumræðileg — og þau féllust í sælu-
rík faðmlög.
Hinn fagri áheyrendasalur sönghallar-
innar ljómaði í óumræðilegri ljósadýrð. Öll
sæti fyltust brátt hinu göfugasta fólki.
Skraut og auðsæld miljónabæjarins birtist
hér í allri sinni dýrð.
Leibnitz greifi og dóttir hans höfðu ein-
mitt tekið sér sæti í einni af stúkum þeim,
sem ætlaðar voru stórmennum einum.
María var í fögrum sjógrænum búningi og
dökkbrúna hárið hennar var skreytt með
afardýrmætu ennishlaði alsettu demöntum
og sendi það ekki frá sér minni geisladýrð
en orðurnar á brjósti greifans. Hún sat
við hlið föðurs síns og hugsaði ekki um
annað en hamingju sína. Hún var svo ó-
segjanlega glöð og viðkvæm. Sársauki sá,
er ástin hafði oliað henni og sæla hinna
síðustu augnablika hafði hrært næmustu
hjartastrengi hennar. Hvað mundi faðir
hennar segja, ef hann grunaði hvað gerst
hafði meðan hann var fjarverandi? En
Leibnitz greifi hafði ekki minstu hugmynd
um hið voðalega umrót, sem var í sálu
hennar. Glaður í bragði og án þess að
hafa nokkra hugmynd um leyndarmál
hennar, skýrði hann frá heimsókn sinni
hjá hennar keisaralegu hátign.
„Berið yðar yndislegu dóttur kveðju
mína, endurtók erkihertogafrúin um leið
og ég var að íara“.
Og án þess að veíta því eftirtekt, að
María heyrði ekki eitt orð af því sem hann
sagði, bætti hann við :
„Það lá við að furstafrú L. væri orðin
svarinn óvinur minn, því á meðan hún