Templar - 12.10.1918, Qupperneq 1
XXXI.
Stefnuskrá Good-Templara.
I. Algerð afneitun allra áfengisvökva til drykkjar.
II. Ekkert leyfi I neinni mynd, hversu sem á
stendur, til að selja áfengisvökva til drykkjar.
III. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi
og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð
samkvæmt vilja þióðarinnar framkomnum í
réttu lagaformi, að viðlögðum þeim refsing-
um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar.
IV. Sköpun heilsusamlegs almenningsálits á máli
þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á
alla þá vegu, sem meutun og mannást eru
kunnir.
V. Kosinng góðra og ráðvandra manua til að
framfylgja lögunum.
VI. Staðfastar tilraunir til að frelsa einstaklinga
og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun,
þrátt íyrir allskonar mótspyvnur og örðug-
leika, þar til vér höfum borið sigur úr být-
nm nm allan heim.
Y etrarstarfið.
Nú eru sumarannirnar um garð gengn-
ar; allflestir eru ltomnir til heimkynna
sinna og seztir að. Erliðleikarnir á lífs-
framfærzlunni eru auðvitað margir og
miklir á þessum tímum og fyrst og
fremst verður að ráða bót á þeiin, sem
vonlegt er, og er það ekkert tiltökumál.
Meðan sumarannirnar eru, verða menn
að láta alt annað silja á hakanum og
því er það eðlilegt, að öll andleg starf-
semi taki sér hvíld einmitt um sumar-
tímann. En þegar haustar að og menn
eru komnir heim og hafa tekið á sig
vetrarró, þá byrjar tími hinnar andlegu
iðju, þá fara menn að gefa sig við hin-
um 5'msu áhugamálum sínum; þá taka
þeir aftur til við námið, sem það stunda
bæði bóklegt og jafnvel verklegt líka.
En þá byrjar árstíð félaganna. þá vakn-
ar félagslífið eftir sumardvalann; þá
hefja stúkurnar aftur starf sitt með full-
um krafti. Svo hefur það verið öll þau
34 árin, sein Reglan hefur starfað hér
á landi og svo verður það einnig að
þessu sinni.
Aðalforgöngumenn stúknanna verða
að blása í lúðra sína og kveðja herinn
saman — þeir verða að Iáta félagana
vila, að nú sé kominn timi til starfa og
nú verði stúkan að starfa vel og með
áhuga í velur að málum sínum.
Mikið er ógert enn. í því efni má
vitna í þau alriði, sem vikið var að í
síðasta tbl. þessa blaðs um »Stefnuskrá
Templara«. Er þar sýnt fram á, að
margt og mikið sé enn eftir ógert í
bindindis og bannmálinu hér á landi,
svo ekki dugir að láta við það eitl sitja
sem nú er komið.
Drykkjuöldin, sem við rélt höfum
skroppið fram úr, er alveg á hælunum
á okkur og hún liefur skilið eftir í okk-
ar fámenna þjóðfélagi alt of marga eyði-
lagða menn, drykkfelda menn, menn,
sem alt láta sitja á hakanum, nema það
Reykjavik, 12. okt. 1918.
9. blað.
Bannlög- Bandaríkjanna.
Ríkið Luisiana samþvkti stjórnlagabreytinguna 6. ágúst
þ. á. í efri málstofu löggjafarþingsins með 21 atkv. gegn 20 og í
neðri málstofunni 8. s. mán. með 69 atkv. gegn 41. Eru þá fjór-
tán ríki búin að samþykkja aðílutningsbannslögin og eru fimm
þeirra vínsöluríki. Þá eru þau ríkin að eins þrjú, sem neitað
hafa að samþykkja lögin: New York, Rhode Island ogNew.íersey.
Verttð ^anðarikjahermanna.
Skömmu eftir að Bandaríkjaherinn var kominn til vígvall-
ar, heimtaði stjórn Bandaríkjanna fulla tryggingu fyrir því af
bandamönnum sínum, að hermönnunum yrði ekkert áfengi veitt.
Algert sölu- og veitingabann áfengis, hæði til hers og flota, hefur
um mörg ár verið í gildi í Bandaríkjunum.
jjráBabirgíarbann i jjanðaríkjamim.
»BerIingske Tidende« frá í f. mán. flytja þá fregn, að frá
1. des. þ. á. sé öll áfengissala og tilbúningur bannað í öllum
Bandaríkjunum og sé bruggurum að eins leyft að selja dauft öl
úr kornbirgðum þeim, er þeir þá kunni að eiga óeyddar.
ijannatkvæðagrdðsla j Jjretlaníi.
í ýmsum bæjum og héruðum í Englandi, Skotlandi og Wa-
les hefur farið fram atkvæðagreiðsla um algert tilbúnings-, sölu-
og innflutningsbann á áfengi. Skýrslur um atkvæðasöfnunina
hafa sýnt að
með banninu voru greidd . 166,693 atkvæði
á móti voru................ 78,066 —
Meiri hluti með bannlögum 88,627 —
í Hull fór atkvæðagreiðslan fram og voru þar greidd 50,084
atkv. með, en 38,572 á móti eða 11,512 atkv. meiri hluti.
Krafan var um það, að bannið gilti meðan á stríðinu stæoi.
Fregnirnar að mestu úr »The American Issue«.
eitt að ná sér í áfengi eða eitthvað þess
ígildi. Þessum mönnum þarf að hjálpa
ef auðið er. Nauðsynlegt er að reyna
að hafa áhrif á þá og leiða þá til bind-
indis, að lokka þá burt frá þeim, sem
þeir liefðu aldrei ált að leggja lag sitt
við og koma þeim undir ný áhrif, sem
gætu gert þá styrkari í lífsbaráttunni
og gefið þjóðfélaginu þá aftur sem nýt-
ari og betri borgara.
Hér er enn nægilegt verkefni fyrir
stúkur að inna af hendi, svo félagarnir
geta ekki sagt, að ekkert sé verkefnið.
En stúkan er meira en stofnun til þess
að bjarga drykkjumönnum persónulega.
Það starf hefur verið og er aukatriði í
Good-Templaramenskunni. Menn hafa
haft þá hugmynd, bæði utan Reglunnar
og innan, að hún sé eins konar drykkju-
mannakæli, en slíkt er bláber misskiln-