Templar - 30.01.1924, Qupperneq 1
TFMPI AR
1 JL/IVl 1 JL/jfflL Iv®
XXXVI.
Reykjavik, 30. jan. 1924.
17. blað.
Yfirlit yfir árið 1923.
Það er alltaf rétt, að staldra ofurlítið
við, og gæta að því hvernig sakir
standa, hvert málstað vorum hefir þok-
að nokkuð á leið, eða hvert um tap
sé að ræða. Það má roargt af því læra.
Það má sjá hversu bannmálið vinnur
alltaf fleiri og fleiri fylgismenn, og það
er bersýnilegt, að það er ekki annað en
áraspursmál, hvenær alþjóð vitkast svo
að hún hrindir Bakkus kongi af stóli.
Og þó kyrt hafi verið um bannmálið
yfirleitt, þá er þó bersýnilegt, að það
rofar til og birtir betur og betur með
ári hverju.
Ámerfka.
Bandaríkin. Fjárhagur þeirra er með
afbrigðum góður. Tekjuafgangur þeirra
er um 300 milj. dollara, og er þvi fjöldi
af tollum lækkaðir að miklum mun og
lagt til að lækka beina skatta um 25°/o.
Þessa velgengni sína, þakka Bandamenn
m. a. bannlögum sinum.
Eftirlitið með bannlögunum hefir
reynst örðugt, einkum eru það smygl-
arnir sem þarf, sem víðar, að glíma
við. Til þess að hægra sé um vik með
gæsluna, hefir landhelgislínan verið færð
úr 7 milum upp í 12, og ákveðið að
nota kafbáta við eftirlitið. 19 ríki hafa
samþykt viðbótarlög við bannlögin til
að herða á þeim, en eitt ríkið (New-
York) feldi viðbótina. Nýlega héldu
rikisstjórnir þar fund, til þess að ræða
og álykta, á hvern veg þeir gætu best
unnið á lögbrotunum. Harding forseti,
er lést á árinu, var eindreginn og gall-
harður bannmaður, og eins er um nýa
forsetann Coolidge að segja.
í Kanada hafa farið fram þjóöarat-
kvæðagreiðsla á þremur stöðum.
í Manitoba og Alberta var samþykt
ríkisverslun í stað bannlaga, er voru
þar, en á Prins-Edwards-eyu voru sam-
þykt bannlög í stað sölubanns, er þar
var.
I Columbiu hefir verið sett á fót rík-
isverslun og
í Paraguag hafa mörg héruð bannað
alla vínsölu.
Afríka.
Suður-Afrika. Par voru borin upp á
þinginu lög um héraðabann, en þau
voru feld með 50 atkv. móti 41.
1 Angola hafa verið sett bannlög.
Tagoland, hið franska, þar hafa sterk-
ir drykkir verið bannaðir.
Egyptaland. Þar skoruðu 6000 kvenn-
menn á stjórnina, að setja bannlög á
fót, þetta varð til þess, að ekkert nýtt
vínveitinga- eða vínsöluleyfi hefir verið
veitt.
í löndum þeim, er þjóðverjar áttu
þar áður, hafa verið gerðar meiri og
minni takmarkanir á vinsölunni.
Istralía.
Viktoria. Pað hefir verið ákveðið, að
8. hvert ár skuli fara fram þjóðarat-
kvæðagreiðsla um alger bannlög.
Nga Suður-Wales. Par hefir verið
ákveðið, að alþjóðaratkvæðagreiðsla um
bannlög, skuli fara fram 1928 og siðan
altaf 5. hvert ár.
Queensland. Þar fór fram atkvæða-
greiðsla i október í haust:
með bannlögum voru 122 þús. atkv.
— óbreyttu fyrirkomul. 194 — —
— rikissölu .... 14 — —
Þar eru nú béraðssamþyktabann.
Tasmania. Þar er komin fram tillaga
í þinginu um alþjóðaatkvæðagreiðrlu.
Vestur-Ástralia. Þar hefir verið ákveð-
ið að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram
4. hvert ár.
Fijieyar. Þar má ekki selja neitt á-
fengi á helgidögum, og þær hafa beðið
ensku stjórnina um að setja þar full-
komin bannlög.
Asía.
Japan. Þar er bannað að selja yngri
mönnum en 21 árs, áfengi.
Indland. Bann og bindindismálinu
hefir mjög aukist fylgi þar siðustu ár.
í Bhopal eru bannlög, í Bombay hefir
verið ákveðið að minka áfengissöluna,
þannig að minna sé selt hvern mánuð
eftir annann. í Bihar og Orissa verið
settar nefndir til að athuga málið og i
Punjab á að fara fram atkvæðagreiðsla.
Errðpa.
England. Enska þingið hefir bannað
að selja þeim áfengi sem eru yngri en
18 ára. Bannlögin vorn borin fram f
þinginu, en voru feld með 236 atkv.
móti 14. Talið er víst að fleiri séu með
þeim nú, því bannmenn unnu á í kosn-
ingunum. Á Man er og bannað að selja
yngri mönnum en 18 ára áfengi, og
þar mega veitingarhús ekki vera opin
meir en 9 tíma á dag að vetri til og 11
tima að sumri.
Á Skotlandi fóru fram miklar at-
kvæðagreiðslur um vínsöluna í nóvqm-
ber rnánuði. Brennivínsdýrkendur unnu
12 sveitir en bannmenn 5. Annars féllu
atkvæði svo, að 434,745 vildu enga
breytingu, 622,751 viidu auka söluna,
7212 vildu minka hana og 300.251 vildu
hafa bannlóg. Þetta er, eins og allir
sjá, stórfeld breyting á því sem var fyrir
fáum árum.
Noregur varð, eins og við, að afnema
bannlögin, af því að vínræktunarlöndin
þvinguðu hann til þess. Norðm. hafa samt
ekki lagt árar i bát, þeir hafa hert
mjög mikið lög þau er lúta að lækna-
víninu, og nú situr á rökstólum nefnd
til að herða vinsölulög þeirra, einkum
sektirnar. Það eru jafnaðarmenn er
gangast íyrir því.
Svíþjóð. Þar er að mestu kyrð um
málið, báðir flokkar vita það ofurvel
að það líður að eins stuttur tími þar
til næsta atkvæðagreiðsla fer þar fram
°g týgja »g því til orustunnar. Vinstri-
menn hafa tekið þar bannmálið á
stefnuskrá sína.
Finnland. Þar er ágætur fjárhagur.
Tekjuafgangur rikisins nam 150 milj.
rnarka, og hefir þvi stjórnin lagt til að
ýmsir skattar væru lækkaðir. Þetta er
einsdæmi nú í allri Evrópu. — Finn-
land er eina bannlandið. Þingið heldur
fast um bannlögin og stjórn og þing
gerir hvað unt er til að sjá um að þeim
sé hlýtt.
Letland. Þar hefir verið samþykt að
taka upp kenslu í áfengisfræði i öllum
skólum er hafa rikisstyrk.
Pgskaland. Þar hefir absint verið gert
útlægt. Þar hefir og verið bannað að
selja þeim sem eru yngri en 18 ára
nokkurt áfengi. Stjórnin hefir lagt fyrir
þingið lög um héraðssamþyktabann, og
kvatt öll sambandsrikin til að vinna af
alefli á móti áfenginu.
Ungarn. Þar hafa jafnaðarmenn lagt
til að öll áfengissala sé bönnuð á helgi-
og tyllidögum (kosningadögum, mark-
aðsdögum) og á vinnustöðum.
Tsjekoslovakia. Þar hafa farið fram
margar atkvæðagreiðslur, og allar ein-
dregið í þá átt að krefja bannlaga.
Pólland. Þar var tölu áfengissölustaða
fækkað mjög mikið 1920, en stjórnin vill
láta fjölga þeim aftur, vegna þess að
landssjóðurinn er tómur. Fræðslumála-
stjórnin þar, befir hinsvegar hvatt alla
skóla til að taka upp kenslu um áfengið
og áhrif þess, og vill láta foreldra barn-
anna taka þátt i henni.
Ítalía. Þar er á gangi nú til undir-
skrifta áskorun til stjórnarinnar um að
banna alla sterka drykki. Mussolini hefir
látið gera þar ýmsar endurbætur, fækk-
að útsölustöðum áfengisins um helming
bannað að hafa þá opna eftir kl. 10. að
sumri og 11. að vetri til, og það má
ekki opna þá fyrir kl. 10 árdegis.
Jugoslavia. Þar hefir rikisverslun
verið sett á fót.
Bulgaria. Þar hefir verið sett á fót