Templar - 01.11.1929, Síða 2

Templar - 01.11.1929, Síða 2
 2 minna á þvi, að fagnað sje vetrarbyrj- nn en sumarkomu, og liggja til þess eðlilegar orsakir. Það er harla eðlilegt, að íslendingurinn, búandi hjer á landi, við sína sjerstöku staðhætti og afkomu- möguleika, fagni þeim tíma, sumar- komunni, er hann vonar, og má að jafnaði vona, að nægtabúr náttúrugæða landsins opnist honura mest og best. Hinsvegar er það ekkert óeðlilegt þó saknaðartilfinning geri vart við sig, er sumar kveður, og að vetrarkomunni sje kvíðakend samfara. Landsins börn, út um sveitir og hjeruð, hafa mörg hver haft i svo ströngu að stríða á hafi og hauðri, yfir strangasta tíma ársins, vetr- armánuðina, En öll hafa tímamótin, — og á það vil eg með áherslu benda — mikinn og háleitan boðskap að flytja oss. t*au minna oss á það, er aldiei má gleymast, hvetja oss tií þess, er af alhug'ber að ástunda. En hvað mikið við nemum af boðskap tímamótanna er undir því komið, hvert viðhorf vort er við því, sem tímamótin birta og boða. Þið kannist vafalaust við þjóðkunna erindið: íAlt fratn streymir endalaust, ár og dagar líða; nú er komið hrimkalt haust, horfin sumarbiíða«. Hvfllkur söknuður og kviði andar út frá þessum Ijóðlínum. Manni finst skáld- ið hljóti að hafa ort þetta inni í lág- reistri baðstofu fyrsta hriðardag nýbyrj- aös vetrar. í huga skáldsins hefir þá stundina sest að söknuður út af horf- inni arðsamri sumartíð með sól og sunnanblæ, og söknuðinum er samof- inmkviði fyrir afkomuerfiðleikum vetr- arstundanna. Hjer er það efnislega af- koman sem hugurinn er tengdur við og því verður viðhorfið við vetrarkomunni mótað af hugsunum um arð og afkomu. Mjög á annan veg er farið viðhorfi skáldsins, sem um haustið sagði: »Ekkert fegra á fold eg leit, en tagurt kvöld á haustin«. Þó skáldið meðfram hafi i huga æfi- kvöld göfugrar manneskju, sem barns- lundina geymir undir silfurhærum, þá vottar hann, að ekkert bafi augu hans og andi fegra litið en það sem fagurt haustkvöld birtir. Við höfum rjett til að gera okkur í hugarlund, að kvæði það, sem nefndar ljóðlínur eru úr, hafi fallið í stuðla heiðbjart kvöld f vetrar- byrjun; að bragandi noiðurljósaálma hafi þá teygt sig upp yfir bábungu Esj- unnar og sveipast um austurhveiiö f marglitum ljósöldum, ér fljettuðust sam- an við geislastafi frá þúsundutn glitr- andi stjarna. Hjer bi> tist augum og anda skáldsins sú dýrð, sú hugfang- andi fegurð, sem honum finst enn meira um en sumarfegurðina í öllum sinum yndisleik. Fegurð hins heiðbjarta vetrarkvölds lyftir anda hans upp yfir alla visnun og fölnun upp i heima hins eilifa þroska. Því verður hugur hans TEMPLAR svo altekinn af þeirri dýrðlegu fegurð sem haustkvöldið getur birt. Og hið sama sem haustið og vetrar- koman birtir og boðar skáldinu, bið sama hafa þessi tfmamót birt og boð- að okkur öllum og gera það án aflats. Skáldinu duldist auðvitað ekki visnunin og fölnunin úti i náttúrunni, sem vetr- arkomunni er samfara, en jafnframt sjer hann i haustsins fegurð og dýrð það, sem er ofar allri fölnun. Hann sjer handaverk bins skapandi almættis í glitrandi næturljósum frá heiðbjörtum vetrarhimninum. Og í samiæmdum, reglubundnum brautum hinna ótöiu- legu hnatta um viðáttur hins ómælandi geims, sjer andi hans opinberun alvisku og eilífrar forsjónar. Pessi viðhorf við því, sem haust- timamótin birta 'og boða, og sem eg nú hefi nokkuð minst á, koma átakan- lega fram i orðum eins af vitringum lsraelsmanna, þar sem hann talar um að alt hold sje sem hey, að grasið visni og laufið fölni, en samt sje það til, sem ofar er allri fölnun og vari eilíflega. En þetta sem stendur atöðugt, segir vitr- ingurinn, er orð vors Guðs. En orð vors Guðs lesum vjer ekki einungis í helgiritunum. Vjer lesum það einnig f hinni miklu bók náttúrunnar: í vakn- andi vorlífi, í sumarsins skrúða, i haustsins fölnun, í vetrarins stjörnu- ljórna. Og eg hika ekki við að segja, að það sjeu einmitt forrjettindi vetrar- dýrðarinnar að knýja mennina til að lita upp, hefja augu til himins, svo þeir fái lesið orð Guðs skráð á himin- hvelið og hugurinn við það hafist upp i hæðir guðlegs breinleika. Frá stjörnu- björtu glitrandi vetrarhvelinu á að geta borist inn i sál vora hljóðlátur en há- tignarfullur vitnisburður um mátt og visku hans, sem »stýrir stjarna her«, og lætur i lögbundnum brautum stjarn- anna birtast hina dásemdarfylstu sam- stillíng æðstu einingar. Og þar með er- um við þá líka öll á það mint, að i samstiltri eining kærleiksriks bróður- huga er fólginn ómetanlegur sigurpiátt- ur f hverju góðu og göfugu starfi, mannkyninu til hamingju og farsældar. Hugfestum þvi með einlægri ihugun, hve það er mikið og háleitt efni, sem hausttimamótin birta oss og boða, þar sem þau á áhrifamikinn hátt tala til vor um almáttugan, alvitran Guð og föður ráðandi yfir gjörvallri tilverunni, með þeirri föðurlegu kærleiksumhyggju, sem augljósast er oss mönnunum opin- beTuð i lifi og kenningum hans, sem þá lífsreglu hefir oss öllum lagt á hjarta, »að alt, sem vjer viljum að mennirnir geri oss, það skulum vjer og þeim gera«. Pórður Ólafsson, prcslur. Gcðtemplarareglan í Sy þ]öö 50 ára. »Templar« hefir áður getið þess aö 5. nóv. þ. á. yrði Góðtemplarareglan i Svíþjóð fimtug. Hinn 5. nóv. 1879 stofn- aði baptistapresturinn Olof Bergström fyrstu stúkuna, »KMppan« nr. 1. Pað var í Gautaborg. Stofnfjelagarnir voru 41, en 4 mánuðum síðar voru stúk- urnar orðnar 12, og 31. mars 1880 var sænska Stórstúkan stofnuð. Hún er nú voldugasti bindindisfjelagsskapur í Ev- rópu og fjölmennasta stórstúka í heimi. Agasamt var innan Reglunnar í Sví- þjóð fyrstu árin. Eins og kunnugt er, stóð þá ytir ólánstímabilið mikla, er R'-glan var skift í 2 greinar, Malins- Regluna og Hickmans-Regluna. Báðar greinarnar áttu sjer áhangendur meðal Svía, og var þá ekki að spyrja að Samkomulaginu. Þegar sameiningin varð, 1887, var Reglan þrátt fyrir þetta orðin það sterk, að hún taldi 60000 fjelaga í 1508 stúkum. Nú hefir hún 206408 fjelaga eldri og yngri i 3202 stúkum. Klofnaði þó mikill hluti Hickmans- manna frá og stofnaði sjerstaka Reglu, sem nú hefir yfir 50 þúí. fjelaga. I*að yrði of langl mál að lýsa hjer nákvæmlega öllu starfi Reglunnar í Svi- þjóð undanfarin 50 ár og þeim áhrif- um, sem hún befir haft á stjórn rikis- ins. Ýmsir af ágætustu mönnum Svia hafa verið og eru fjelagar hennar, og venjulega er alt að helmingur þing- mannanna templarar. Sama er að segja um bjeraðastjórnir, [ritstjórnir blaða o„ s. frv. Á öllum slíkum stöðum á Reglan í Svíþjóð fjöldamarga úr sinum hóp, og er því vel skiljanlegt, að hún er kraftur, sem alstaðar verður að taka tillit til í opinbera lfflnu, og sem hefir að ýmsu leyti átt sinn þátt í að móta það. Pað leiðir af sjálfu sjer, að sænskir templarar hafa lagt sinn drjúga skerf til starfsemi Reglunnar út á við, slfk- um ágætismönnum sem þeir hafa haft á að skipa. Oftast síðan 1891 befir ein- hver Svíi átt sæti í framkvæmdanefnd Hástúkunnar, og stundum fleiri en einn. Er Edv. Wavrfnsky þeirra þektastur og áhrifarlkastur. Hann var Hátemplar 15 ár samfleytt (1905 —1920), en ýmsir hinna eru einnig stórmerkir menn, svo sem núverandi Há-Fræðslustjóri, M„ Sterner lektor. Á siðastarfi og löggjöf Reglunnar vfðs- vegar um heim hetir allmikil breyt- ing oröið frá því fyrst er hún var stofnuð f Ameríku. Flestar hinar stór- feldari breytingar í þessum efnum eru verk Svíanna eða undan þeirra rifjum runnar. Sá búningur, sem Reglan kom i til þeirra frá engilsaxnesku þjóðunum, fjell þeim ekki alls kostar vel í geð, samþýddist ekki hugsunarhætti þeirra. Nú er Reglan »germaniseruð«, siðum og lögum hennar breytt 1 það horf, sem germanskar þjóðir fella sig betur við, og það er fyrst og fremst verk. i

x

Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.