Kvöldvaka í sveit - 24.12.1884, Page 1

Kvöldvaka í sveit - 24.12.1884, Page 1
c; s KYÖLDYAKA I SVEIT EÐA JÓLA OG NÝÁRS-GJÖF FYRIR FÓLKIÐ. 111II11II llllllllIllllllllIIIIIIlllllllM III lllll II H i m 11 m i m i m i m 111 m m m i m 11 m 11 m 1111 m 11 m 11 u1 m AGNÚS liét bóndi, og bjó á eignarjörð llTl sinni Stóruvöllum. Hann var búhöldur inn, bezti, átti margt sauðfé, og gott kiiabú. Kona hans hét Sigurlaug, vitur kona og ráðdeildarsöm. Þau hjón áttu níu börn, fjóra syni og fimm dætur. Þau héldu margt vinnufólk. Stóruvellir lágu í þjóðbraut, enda var þar opt gestkvæmt. Magnús bóndi var gestrisinn mjög, og glaðlyndur í skapi. Það var snemma á jólaföstunni i rökkrinu þegar þessi saga byrjaði. Magnús bóndi kallaði til elztu dóttur sinnar or Gruðlaug hét: Lauga min, er eltki kominn tími til að kveikja?— Það er fljótgjört, góða min, síðan við fengum eldspiturnar þægilegu frá honum Þor- láki mínum. Þegar Lauga var búin að kveikja, og fólkið var sest við vinnu sína, var barið að dyrum. — Iíver skyldi nú vera á ferðinni, sagði fólkið. Ekki leið á löngu þangað til gesturinn kom inn i baðstofuna, heilsaði hann bónda og húsfreyju með kossi, gekk síðan á röðina, eptir gömlum og góðum sið, þangað til hann var bú- inn að kyssa öll börnin og vinnufólkið. Þegar komumaður var búinn að biðja sér gistingar, spurði Magnús bóndi hann að nafni. Eg heiti Torfi og á heima í Eymdardal. — Er það hann séra Torfi minn, sagði Magnús, verið velkomnir. Nú heyrðist aptur barið, og mikið liestaspark fyrir utan bæjardyrnar, allir liundarnir hlupu út úr bænum, eins og allt væri á tjá og tundri, að vörmu spori komu inn 5 gestir, voru það þrír póstarnir, austan, norðan og vestan, læknir einn frá Gfrænlandi og norskur stjörnuspekingur er hét Nordstjerne. Magnús bóndi tók öllum gestunum vel. Þið verðið nú góðu herrar, að sitja allir á sama bekk, því þó eg geti látið ykkur alla fá góð rúm, og nægi- legt að borða, hefi eg ekki stórar stofur, að bjóða ykkur inn í. Eg kann líka bezt við að gjöra mér ekki mikinn manna mun, því allt hold er hey o. sv. frv. Ójá, allir erum vór fæddir í þennan eymdar- dal, sagði séra Torfi. Læknirinn frá Qrænlandi: Þær eru nú miður heppilegar fyrir mannlegt líf, þessar eymdar og volæðis prédikanir ykkar prestanna, þið eruð sí og æ að prédika um þennann eymda og táradal veröldina, eins og menn mættu aldrei lifa glaða stund i þessari tilveru. Vestanpósturinn: Eg var í kirkju fyrir skömmu hjá honum síra Bensa norður í Aðalvík, hann prédikaði heldur ekki nema um tómt volæði og andstreymi. Norðanpósturinn: Þessar. kenningar klerkanna eru orðnar að nokkurskonar landplágu; það er ekki langt síðan eg var i kirkju fyrir norðan, hjá honum síra Manga í Vælugerði; hans ræða gekk ekki út á annað, en að veröldinni væri einlagt að hnigna í öllu góðu; hann áleit, að öll þessi svo kallaða framför lieimsins, er liann svo nefndi, væru djöfulsins verkanir, og endaði svo þessa langloku með hryllilegustu spádómum. — Sumir í kirkjunni voru hálfsofandi, sumir héldu sér hálfvakandi á rjóltóbaki. Það má nú geta nærri hvaða andlega endurnæringu söfnuðirnir hafa af slíkum kenningum. Austanpósturinn : Ekki er eg með ykkur í þessu, að allir prestar pródiki þessar volæðis- prédikanir. Eg hefi verið í kirkju hjá tveimur prestum fyrir austan, annar var i Holtunum, hinn í Rangárvallarsýslu.. — Þeir prédikuðu bæði uppörfandi og fræðandi. — Þeir töluðu eins og eðlilegt var um mannlegan breiskleika og ófullkomlegleika, enn jafnframt brýndu þeir fyrir mönnum að svo væri tilætlað, að menn nytu lífsins gæða og unaðsemda með gleði og skyn- semi. — Þeir tóku það sérstaklega fram, að það væri bæði syndsamlegt og hættulegt, að koma þessum hræðilegu gríluskoðunum inn hjá börn- um og ungmennum, sem væru að byrja lífið, því með þeim mætti gjöra manneskjurnar þung- lyndar, og óhæfilegar fyrir störf lífsins. Lœlcn.fr. Ghrœnl.: Og meir að segja geta slíkar griluprédikanir haft skaðleg álirif á heilsu manna. Hvað erþetta ? Hvað gengur að honum síra Torfa frá Eymdardal? Hann er orðinn svo náfölur, og andlitið eins langt og á gömlum apturhalds þingmanni. — Eg ætla að dreypa á karlinn hórna úr Bramalífs glasinu mínu. — Þarna sjáið þið, nú er að koma í hann, það sem vér köllum á ip

x

Kvöldvaka í sveit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvöldvaka í sveit
https://timarit.is/publication/541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.