Vísis-drengurinn - 01.01.1914, Síða 1

Vísis-drengurinn  - 01.01.1914, Síða 1
Argf. 90 an Bladld lO au Vísis-drengurinn — Myndablað handa unglingum — I. árg. Geysir og Hekla. Geysir og Hekla eru heims- frægustu staðirnir á íslandi. Allir útlendingar, sem nolckuð þekkja til íslands, vita fyrst og fremst það, að þar eru Geysir og Hekla, eldstöðvarnar mildu, sem gjósa sjóðandi vatni önnur, en bráðnu grjótinu liin. — Geysir er í Biskupstungum í Árnessýslu, en Hekla norður og austur af Ilangárvallasýslu. Fjöldi útlendra ferðamanna kemur til íslands á ári hverju, ýmist einungis, eða þá fyrst og fremst, til þess að sjá þessar merkilegu stöðvar. Sem betur fer eru ekki tíð gosin úr Heklu, þau hafa jafn- an alvarlegri afleiðingar en svo, að menn vilji vinna þær fyrir að sjá liina stórfeldu sýn, en aftur gýs Geysir nálega þegar hver vill. Pað er fögur sjón að sjá vatnsstrókinn þeytast marga tugi slikna í loft upp (og jafnvel talið allt að 120 stikum fyr meir), og ekki valda þau gos neinum skemmdum. Geysir gýs stundum oft á dag; þegar hann þykir tregur til gosa, eru menn vanir að kasta í svelg hans nokkrum pundum af sápu, og bregst þá sjaldan að hann »kemur upp«. Geysir hefur verið til löngu fyrir land- námstíð, það sýnir rneðal annars hið mikla hverahrúður, er liann hefur hlaðið upp um- hverfis sig; eru það steinefni, er sest hafa úr vatninu smám saman. Á nokkrum stöðum erlendis eru goshverir, og eru þeir nefndir á útlendum tungum geysirar, eftir Geysi í Hauka- dal. J a n á a r 1!) 14 H vera h r ú ð u rshó 11 in n, sem Geysir hefur myndað um sig, er 7 stikur að hæð og 70 stik- ur að þvermáli; er hann flat- vaxinn og skál í kolli hans, 20 Geysir. stikur að þvermáli og 2 stikur að dýpt. Niður úr lienni miðri gengur pípa, 3 stikur að þver- máli efsl, en þverhnýpt nokkuð er neðar dregur; er hún 24 slikur að dýpt, en niður úr henni liggja sprungur og vatns- æðar. Neðst í pipunni er hitinn 120°—130° C., en á yfirhorði skálarinnar venjulega 80°—90°. Skál hversins er barmafull milli gosa, en tæmist með öllu við gosin, og sömuleiðis pípan. 2. tbl. Hekla er 1447 slikur að hæð yfir sjávarflöt. Hún er nokkuð aflöng í lögun, frá norðaustri til suðvesturs. Fjallið er klofið eftir endilöngu; er þar geysi- mikil gjá, og í henni gígir margir. Mestur hluti gjár þess- arar er að jafnaði fullur af hjarnsköflum, en efst á fjall- inu að sunnanverðu eru gíg- irnir auðir, og koma þar við og við upp gufur. Stærsti gíg- urinn í Heklu er um 600 stikur að lengd, 200 stikur að breidd og um 120 stikur að dýpt. Hekla er sjálf um 11 rastir að lengd og 7 rastir að breidd. Hekluhraun tekur yfir um hálft sjötta hundrað ferrastir. Hekla og gígir í nánd við hana hafa gosið alls 22 sinnum svo sögur fari af. Var það í fyrsta sinni árið 1104. Árið 1300 rifnaði fjallið, »svá at sjáz mun mega meðan ísland er byggt« segja annálar. Árið 1341 gaus fjallið svo afskaplega, að 5 hreppar eyddust. Árið 1597 voru eldar á átján stöðum í fjallinu, og fjell aska mjög víða um land. Síð- asta stórgosið úr Heklu var 1845. Var þá mældur mökkur- inn, er stóð upp af íjallinu, og reyndist 14 þúsund fet. Þá harst askan úr fjall- inu alla leið til Hjaltlands. Síðasta gos við Heklu var í fyrra; var það lítið gos, og urðu af því litlar skemmdir. Hraunið umhverfis Heklu er 5Tmiskonar. — Merkasta hraunspildan er Hrafntinnuhraun, sem liggur austan við fjallið. Er þar mikið af hrafntinnu, hörðum svörlum sleini, sem notaður er í skraut- gripi. Nýlega hefur Dr. Helgi Pjet- urss. fundið, að tveir skriðjökl- ar ganga norður af fjallinnu. Hekla. J

x

Vísis-drengurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísis-drengurinn
https://timarit.is/publication/550

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.