Vísis-drengurinn - 01.01.1914, Síða 2

Vísis-drengurinn  - 01.01.1914, Síða 2
G Skiptröll með áhöfn. (Sjá 4. siðu.) Nonni. Eptir sjera Jón Sveinsson. (Frli.) Mjer lá við að sundla. Jeg hallaði mjer aftur á bak í stólnum og rejmdi að hugsa mig um. Nú hófst mikil bar- átta milli margvislegra kennda í brjósti mjer. Yfirgefa hana elsku mömmu mína, sem mjer var kærusl alls í heiminum, — yfirgefa systkinin mín góðu, liann Manna og hana Boggu, alla vini mína og kunningja, blessaða ættjörðina mína og — yfirgefa það ef til vildi fyrir fullt og allt! Það varraunarvíst undir hælinn lagt, að mjer yrði afturkomu auðið, eftir svo langan náms- tima. Var það ekki einmitt sama sem að rifa mig upp með rót- um og gróðursetja mig i nýjum jarðvegi, í nýjum heimi? Jú, það var líkast því sem jeg ætti að deyja og fæðast svo af nýju, og byrja nýtt líf í fjarlægu, framandi landi, Mjer fannst jeg vera að steypa mjer í ginandi, botnlaust hyl- dýpi. Mig hryllti við þvi. Og þó, að hinu leytinu, — dæmalaust var þetta ginnandi fyrirheit! Ferð út í víða veröld, — löng ferð í einu fegursta suðræna landinu! Það var dýrlegt! Lengi hafði jeg kennt ómót- stæðilegrar löngunar að ferðast langt — langt í burt. Jeg hafði þá þegar ásett mjer að fara að dæmi forfeðra minna, hinna íornu Norðmanna, að fara utan, ferðast umhverfis hnöttinn og kynna mjer siðu og háttu annara þjóða. Og nú fæ jeg allt í einu dul- arfullt tilboð, sem gerir mjer auðið að koma þessu áformi minu fram, — koma því fram, sem jeg gat best hugsað mjer. Já, jeg verð að fara heiman, því fyr, því betra! Það er meira en jeg átti von á. Það er tæki- færi, sem mjer býðst varla aft- ur. Jeg verð að taka því tveim höndum. Nú rauf jeg þögnina, þóttist hafa hugsað mig nóg um og mælti mjög ákveðinn: »Já, mamma! Jeg vil gjarnan ferðast, — gjarnan læra! En hvaða lands á jeg að fara til, mamma? Og hver býður okk- ur þetta?« »Mig grunaði það reyndar, góði Nonni minn, að þig lang- aði til þess. Nú skal jeg undir eins segja þjer, bvernig i öllu liggur. En segðu mjer nú fyrst, hvert suðurlandanna miklu þjer er hugþekkast, — hvert þú vildir helst fara? Hugsaðu nú vel og vandlega um það áður en þú svarar!« Jeg hugsaði mig' dálitið um. Nú komu þau í hug mjer, hvert eftir annað, hin ýmsu lönd, er jeg hafði lesið og lært um í skólanum. Jeg hjelt það gæli ekki orðið um önnurlönd að tala, en Spán, Ítalíu, Frakk- land eða Þýskaland. Frakkland! »Frakldand hið fagra«, eins og við kölluðum það allt af, — land Napóleons mikla, — átthagar »stúlkunnar frá Orléans«. Frakkland með töfrafegurð Pai'ísarborgar, — Frakkland með pi'úðu, kui'teisu, ástúðlegu íbúunum, sem jeg hafði kornist lxjer í kynni við. Spánn! Heita, göfuga landið, með konunglegu, þóttamiklu þjóðinni. Ítalía! Land hinna voldugu Rómverja með stói’felldu forn- aldarminjunum. — Italía með borginni eilífu, Róm, þar sem páfinn býr í dásamlegu höll- inni sinni, Valikaninu. Þýskaland! Víðlendur hinna herskáu Germana með fjölda gagnólíkx-a þjóða. Raunar þekkti jeg Þýskaland lítið sem ekkert. Jeg mundi þaðan vai'la eftir neinu nema Lúter og siðhót- inni. Djarfmannleg barátta Þýskalands gegn hinni voldugu kaþólsku kirkju brá ekki smá- ræðis ljóma á landið i minum augum. Jeg var fastákveðinn, er jeg hafði vegið þetta allt á metun- um. Ef mjer væri frjálst að velja um, myndi jeg hvorki kjósa Spán, Ítalíu nje Þýskaland, heldur Frakkland. Hugur minn drógst einkum heillaður að þvi landi. Jeg þekkti lika íbúa þess best er- lendra þjóða, næst Dönum. Á hverju sumri komu sem sje mörg frakknesk skip til ís- lands. Þau lágu oft lengi á Eyjafirði, rjett framundan hús- inu .okkar. Einkum mundi jeg eftir stóru frakknesku herskip- unum. En við strendur okkar

x

Vísis-drengurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísis-drengurinn
https://timarit.is/publication/550

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.