Þjóðmál - 15.03.1971, Blaðsíða 2
2
Þ J Ó Ð M Á L
M! 111 ■ 1111111111111111111111111111111111111111111 ■ 11111111111111111111111111II111 ■ 1111B111111III
Útgefandi:
Samtök frjólslyndra í Vestmannaeyjum.
Ritstjórn-. Jón Kristinn Gíslason =
E Dr. Bragi Jósepsson (ób.) E
Pósthólf 173 =
Afgreiðsla: Bjarni Bjarnason, Heiðarvegi 26;
E símar 1253 og 2225 E
Prentstofa G. Benediktsson, Bolholti 6, Reykjavík.
ÍT11111111111111111■11111111111■11111111111■111111111111111111111II111■1111II11111111111111111 |T[
FLUGLEIÐIR H/F
LEIGUFLUG — SJÚKRAFLUG — FRAGTFLUG
HVERT Á LAND SEM ER.
AFGREIÐSLUR:
VESTMANNAEYJUM:
Verzl. Bláfell, sími 2324
Hallgrímur Hallgrímsson, sími 2060
HELLU:
Verzl. Mosfell, sími 5828
REYKJAVÍK:
Flugskóli Helga Jónssonar, sími 10880
og 11795.
FLUGIHBIR H/F
NýkomiB
GÓLFDÚKUR
GÓLFDÚKALÍM
VEGGDÚKUR
BLÖNDUNARTÆKI,
í eldhús og böð
FITTINGS
PLASTRÖR og
HINAR MARGEFTIRSPURÐU
ÞAKRENNUR
úr plasti.
Trésmíðaverkstæði
INGÓLFS SIGURMUNDSSONAR,
Skólavegi 4, sími 1740.
(Gengið inn frá Vestmannabraut)
BURT MEÐ FÚSKIÐ!
Framhald af bls. 1.
ta'ka fram að íslenzka sendiráðið í
Bandaríkjunum hefur oft vísað ís-
lenzkum námsmönnum til mín út
af þessu máli og hefur mér verið
sérstaklega ljúft að veita þeim
aðstoð). Margt fleira gæti ég tínt
til, sem lýsir þessum óskiljanlega
tuddaskap og ofbeldishneigð emb-
ættismanna, sem þora ekki að
horfast í augu við sannleikann og
taka gagnrýni. Svo eru sumir
menn að furða sig á því, að ég
skuli „vera reiður" út í ráðherr-
ann, eins og það er gjaman orð-
að. í fáum oröum sagt tel ég það
siðferðilega skyldu mína að meta
og gagnrýna fræðslumálastjómina
eftir því sem ég tel sannast og
réttast, Almenn gagnrýni ætti að
vera krafa ráðherrans á hendur al-
menningi.
Reynt að beita þvingunum.
En hjá okkur er ástandið þann-
ig, að þegar ráðherran finnur
sterka gagnrýni og veit að allt er
i endalausu stjórnleysi, þá grípur
hann til hinna gömlu reyndu að-
ferða embættismannavaldsins, að
brjóta andstöðuna niður með fé-
lagslegum þvingunum. Auðvitað
þurfa kennarar að fá stöður, því
að þeir þurfa að borða og sama
gildir um börn þeirra. Sem betur
fer er ég það efnahagslega vel
settur að ég sé enga ástæðu til
þess að skríða fyrir ráðherranum.
Það hafa því miður allt of margir
orðið að gera. í haust sem leið
sótti ég um starf rektors við einn
af nýju menntaskólunum. 1 nýjum
iögum um menntaskóla segir að
..kennarar við menntaskóla skuli
hafa háskólapróf í námsgrein,
sem kennd er við menntaskóla".
Þar sem fræðisgrein min er
uppeldisfélagsfræði gat mennta-
málaráðherra réttlætt þá afstöðu
að telja mig óhæfan til þess að
gegna starfi rektors, en það atriði
er mál útaf fyrir sig sem ekki
verður rætt hér. í góðsemi sinni
hringdi ráðherrann þó í mig til
Bandaríkjanna til að færa mér
þessi tíðindi. Það sem mér þótti
þó athyglisverðast við símtal ráð-
herrans var eftirfarandi setning:
„En ef þú hefur áhuga á að koma
heim skal ég athyga hvort ég get
ekki fundið eitthvað handa þér
með haustinu." Hversvegna eiga
menn svo ekki að þakka og veg-
sama embættismanninn fyrir slíka
föðurlega umhyggju. Eða gefur
þetta allt ekki einmitt skýringu
á þeirri stefnu, sem ríkt hefur í
þessum málum, að halda beri
kennarastéttinni hæfilega illa
menntaðri, svo að embættis-
mannavaldið geti framfylgt því
réttlæti, sem tryggt geti áfram-
haldandi niðurlægingu almennra
borgara og hinna fjölmenu stétta
láglaunafólks. Þetta er því ekki
mál kennarastéttarinnar einnar
saman heldur mál alþjóðar, og það
er fólk farið að skilja I vaxandi
mæli. Ég vil taka það fram að ég
hef ekkert á móti menntamálaráð-
herranum persónulega. Á hinn
bóginn tel ég það siðferðislega
skyldu mína að veita fræðslumála-
stjóminni það aðhald, sem ég tel
rétt og því skiptir engu máli hvort
það er Pétur eða Páll, sem ber
ábyrgð á stjórnleysinu. Það þjóð-
skipulag sem við búum við grund-
vallast. einnig á heilbrigðri gagn-
rýni fólksins sjálfs, enda þótt í
framkvæmd hafi raunin orðið
önnur.
SLYSAHÆTTA
Vegna slysahættu af vöidum fuglagers í
námunda flugvallarins er hér með harðlega
bannað að bera fiskúrgang í garða í grennd
flugvallarins, svo og að geyma loðnu á þessu
svæði.
Þeir, sem þegar hafa borið fiskúrgang í
garða sína nálægt flugvellinum eru beðnir
að hylja hann með jarðvegi eins fljótt og
frekast verður við komið.
Vestmannaeyjum, 16. febrúar 1971.
BÆJARSTJÓRI.
Hundahald
Með tilvísun til reglugerðar um hundahald í
Vestmannaeyjum, nr. 9 frá 10. janúar 1940,
og að gefnu tilefni er hér með skorað á alla
K sem hafa hunda í umsjá sinni, að fjar-
lægja þá úr umdæminu nú þegar og í síð-
asta lagi 1. júní 1971.
Að þeim tíma liðnum mun umræddri reglu-
gerð verða framfylgt með lögregluaðstoð,
eftir því sem efni standa til.
BÆJARFÓGETI.
Bæjarskrifstofurnar
að Kirkjuvegi 23 verða frá og með 24. febr-
úar 1971 opnar sem hér greinir:
Bæjarstjóri, bæjarritari, bæjarverkfræðingur
og byggingafulltrúi, viðtalstími: 10—12
mánudaga og föstudaga.
Almennar skrifstofur: Opið frá kl. 11—12 og
kl. 13—15 mánudaga og föstudaga.
Innheimtan: Opið frá kl. 10—12 og kl. 13—
15.30 mánudaga og fimmtudaga, kl. 10—12
og 13—18.30 föstudaga.
Lokað á laugardögum allt árið.
BÆJARRITARI.
Geymið auglýsinguna.
Framhald á bls, 4