Ný þjóðmál - 09.08.1974, Blaðsíða 2

Ný þjóðmál - 09.08.1974, Blaðsíða 2
2 NÝ ÞJÓÐMÁL — Nei takk, nei takk — ég ætla ekki að kaupa neina bursta i dag! — Hversu mikiö lán höfðuö þér eiginlega hugsaö yöur aö fá? Tiskan segir: niöur meö pils- faldinn! Styrkur til háskólanáms i Finnlandi Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til náms eða rannsókna- starfa i Finnlandi námsárið 1974-75. Styrkurinn er veittur til 9 mánaða dvalar frá 10. september 1974 að telja og er styrk- fjárhæðin 900 mörk á rnánuði. Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 31. ágúst n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. Umsókn fylgi staðfestafrit prófskirteina, i meðmæli tveggja kennara og vottorð um kunnáttu i finnsku, sænsku, ensku eða þýsku. Menntamálaráðuneytið, 6. ágúst 1974. Staða deildarstjóra innkaupa- og birgðadeildar Rafmagns- veitu Reykjavikur er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérþekk- ingu á rafmagnsefni. Launakjör sam- kvæmt kjarasamningi Reykjavikurborg- ar og Starfsmannafélags Reykjavikur- borgar. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Rafmagnsveitu Reykja- vikur, Hafnarhúsinu, 4. hæð. Umsóknarfrestur er til 30.8. 1974. RAFMAGNS VEÍTA REYKJAVÍKUR ÚR ÖLLUM ÁTTUM Það er alveg sattl Ýmsar sérkenni- legar fréttir hafa komist á siöur heims- blaöanna á undan- förnum dögum, og þykir reyndar mörg- um nóg um. Hér á eftir fer kjarninn í sumum þeirra. Snjómaöurinn ógurlegi i Himalaya- fjöllum er aftur kominn á flakk og ná farinn að eiga viö kvenfólk. 19 ára stúlka i f jallaheraöinu Khonar, sem er skammt frá Everest, Lakpa Sherpani aö nafni, kvaöst hafa oröiö fyrir árás hins ógurlega snjómanns. Og yfirvöld I Nepal segjast hafa fundiö óvenjustór fotspor á þeim staö, þar sem stúlkan kveöst hafa orðiö fyrir árásinni. 1 Frakklandi, nánar tiltekiö skammt frá Lille, segjast menn hafa fundiö stærsta svepp i heimi. Þessi sveppur á aö hafa verið fjögur fet á hæö, og vegiö 12 pund. En Bretar eiga samt metiö I óvenju- legum fréttum. Þaö gerðist nefnilega i Lancashire nýlega, aö Hans Hágöfgi Grimsby lávarður af Katamundu var jaröaöur þar nýlega eftir aö hafa legiö á viðhafnarbörum i þrjár vikur. Kistan var prýdd 1000 nellik- um, og við útförina var lesiö upp úr verk- um Shelley og Words- worth. Útförin kostaði hátt i fjögur hundruð þúsund krónur, og er vafalaust dýrasta út- för, sem nokkur páfa- gaukur hefur hlotiö til þessa! Eigandi páfa- gauksins, David Bates frá Preston, sagöi, aö páfagaukurinn heföi legiö á viöhafnar- börum „með sama hætti og Viktoria drottning. Hann haföi demantshring um nefiö, og litla kórónu á höföi”. Ung móöir I Bretlandi skipti nýlega á sjö mánaöa gömlu barni sinu og notuðu bifhjóli! Hún geröi þetta vegna þess, aö unnusti hennar, sem reyndar var ekki faöir barnsins, dreymdi um aö eignast bifhjól. Þaö komst upp um þessi skipti þegar velferöar- fulltrúi, sem var á eftirlits- ferð, komst að þvi, að hjá einni fjölskyldunni, sem hann heimsótti regíulega, voru börnin á heimilinu skyndilega oröin fimm, en höfðu áður verið fjögur. Yfifvöldin gripu þegar i taumana, og nú hefur móöir- in fengið barnið sitt á ný og unnustinn skilaö bifhjólinu. Tölvur keppa á heims- meistaramóti í skák! UNDANFARNA DAGA hefur staöiö yfir i Stokkhólmi óvenjuleg heimsmeistara- keppni I skák. Keppendurnir i þessari heimsmeistara- keppni.; sem er hin fyrsta sinnar tegundar, eru nefni- lega ekki skákmenn heldur tölvur. Reyndar má segja, aö þaö séu ekki tölvur sem slikar sem þarna eigast viö, heldur tölvukerfi eöa prógrömm. Þaö eru þrettán slik tölvu- kerfi frá átta löndum, sem taka þátt I heimsmeistara- keppninni, sem hófst s.l. mánudagskvöld. Fjögur kerfanna eru frá Banda- rikjunum, þrjú frá Bret- landi, og eitt frá hverju eftir- talinna landa: Austurriki, Kanada, Ungverjalandi, Noregi, Sviss og Sovét- ríkjunum. Fyrirfram hefur þvi veriö spáö, aö bandariskt tölvu- kerfi, sem nefnt hefur veriö ,,4.0”oger frá Northwesternt háskólanum i Illinois, muni reynast sigurstranglegast, en sovéska tölvukerfið er einnig taliö mjög gott. En hvernig eru tölvur annars I skák? Meöfylgjandi yfirlit gefur nokkra hug- mynd um það, en þaö er byggt á stigakerfi, sem Bandariska skáksambandiö hefur búiö til og byggir á frammistöðu I skákmótum. Samkvæmt þeim útreikningi eru tölvurnar nokkru betri en flestir áhugamenn I skák, GARBO Á GÖNGU Ljósmyndarar, sem elta þekkt fólk á röndum i ýms- um stórborgum heimsins, eru fjölmargir. Þeir eyöa oft rmiklum tima i aö sitja fyrir flrægu fólki, þar sem þeir telja nokkra von um aö þaö kynni aö eiga leiö framhjá, og stundum veröum þeim aö ósk sinni. Myndin hér aö ofan var tekin i New York borg á dögunum, og er af Gretu Garbo, sem er jú fræg fyrir þaö, hversu mjög hún heldur sig fjarri ööru fólki, og þá ekki hvaö sist ljósmyndur- um. Þegar Gréta kom auga á lijósmyndarann baröi hún til Ihans meö regnhlifinni og síagði honum aö fara til (fjandans, en þá haföi ljós- itnyndarinn fengiö þaö sem hann vildi, mynd af hinni 68 ára gömlu Grétu Garbo. „Bobby Fisher irmeisTarar” Alþjóðameistarar Meistarar einstakra landa ' Sérfræðingar 1 skák • Sterkir áhugamenn Flestir áhugamenn en hafa hins vegar ekkert aö segja i góöa áhugamenn hvaö þá skákmeistarana. En sá maöur, sem skipu- lagt hefur mótiö I Stokkhólmi — alþjóðlegi skákmeistarinn David Levy, sem er skák- meistari Skotlands — telur, aö I þessari stigatöflu sé tölvunum gert of hátt undir höföi. „Töivur eru mjög góöar i byrjunum, sem byggja fyrst og fremst á minni, og eins i miötafli, og ég heid, aö stiga- gjöfin 1500 sé þar nokkuö nærri lagi”, segir hann. — „En tölvurnar eru mjög slæmar I endatafli, og tapa oft endatafli þótt þær hafi vinningsstöðu viö upphaf endataflsins”. Urnmæli vikunnar „Meö þessari umsókn er Guöni i Sunnu aö reyna aö komast inn I Bandarikjaflugiö og vinna okkur allt til óþurftar”. Alfreð Elíasson, forstjóri Loftleiöa, um umsókn Air Viking um leyfi til leiguflugs til Bandarikjanna. „Mig undrar aö forráöamenn margra Islenskra verslunar- fyrirtækja skuli enn þann I dag I dag leggjast svo lágt aö styrkja málgagn þess stjórnmálaflokks, sem hefur þaö á yfir- lýstri stefnuskrá sinni aö ganga aö einkarekstrinum dauöum, og á ég þá viö auglýsingar einkafyrirtækja I Þjóöviijanum. Meö þvi aö auglýsa I þessu málgagni alþjóöakommúnismans eru hinir sömu I raun og veru aö grafa sinar eigin grafir”. Magnús Erlendsson, fulltrúi, i viötali viö Morgunblaöiö, á fridegi verslunarmanna.

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.