Ný þjóðmál - 10.12.1974, Side 6

Ný þjóðmál - 10.12.1974, Side 6
6 NÝ ÞJÓÐMÁL IhaHið ræður ferðinni Framhald af bls. 1. arinnar um sjálfstæði Rikisút- varpsins.” Þeir vilja sjálfir ráða rikisfjölmiðlunum. Fljótlega þegar útvarpsráð tók að starfa myndaðist þar meirihluti i mörgum málum. Þennan meirihluta skipuðu for- maöurinn, sem var kjörinn af Samtökunum þótt hann væri i öðrum stjórnmálaflokki, fulltrúi Alþýðuflokksins, Alþýðubanda- lagsins og annar fulltrúi Fram- sóknarflokksins. öfgaöflunum i Sjálfstæðis- flokknum likaði það að sjálf- sögðu mjög illa, að i deilumál- um innan ráðsins væri kominn meirihluti sem þeir voru ekki einu sinni aðilar að. Þess vegna hóf þessi armur skipulagða striðsherferð á hendur útvarps- ráði. Var Magnús Þórðarson, sem er launaður starfsmaður NATO á Islandi, forystusauður þessara afla i málinu, og notaði óspart Morgunblaðið i þessu skyni — bæði Velvakandaþátt- inn, sem hann sér um og er iðinn við að semja i, og eins blaðið i heild. Það gerði þessum öfgamönn- um nokkuð erfitt fyrir, að aldrei kom upp neitt það mál, þar sem hægt væri að benda á það að meirihluti útvarpsráös hefði brotið óhlutdrægnisreglur út- varpsins, en þess i stað var reynt að skapa deilur um ýmis minni háttar mál, auk þess sem ráðist var persónulega á ýmsa þá, sem meirihluta ráðsins skipa. Það gefur góða hugmynd um, hvaða hagsmunum þessi öfgaöfl eru að gæta, að það skuli vera launaður erindreki hernaðar- bandalags, sem er helsti odda- maðurinn i baráttunni fyrir i- haldsmeirihluta i útvarpsráði. Það er hins vegar til vitnis um réttsýni og manndóm Þorvalds G. Kristjánsson, sem situr i ráðinu fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að hann hefur ekki tekið þátt i þessari herferð öfgaaflanna, og er andvigur þeirri pólitisku valdniðslu, sem felst i frum- varpi rikisstjórnarinnar. Fóru meö Vilhjálm eins og Einar Strax og núverandi ihalds- stjórn var mynduð hóf öfgaarm- urinn i Sjálfstæðisflokknum harða baráttu fyrir þvi, að rlkis- stjórnin flytti stjórnarfrum- varp, sem gerði kosningu nýs útvarpsráðs mögulega. Bentu þeir á þá leið, að breyta litil- Vésteinn Framhald af 5. siðu. leikanum heldur af raunveru leika. Raunveruleika sem hann hefur skapað úr þvi efni sem honum var tiltækt, kannski til að skemmta sjálfum sér og okk- ur, kannski til að reyna að fá okkur til að brjóta niður múra fangelsisins. Hreint út sagt Framhald af bls. 2. ef það kæmi nú i ljós siöar, þá sé gert ráð fyrir þvi að þau verði gerð óskaðleg. Það tók eins og kunnugt er mörg ár fyrir almenning að komast að þvf, að álbræöslan I Straumsvik dreifði hættulegum úrgangsefnum hingað og þang- að, enda lýsti forstjóri álversins þvi yfir I sjónvarpi, að slikt væri almenningi óviðkomandi. Margir myndu ætla, að sú reynsla hefði kennt ráöamönn um þjóðarinnar að fara meö meiri gát i þessum málum. Svo virðist ekki vera. A.m.k. ber þessi skýrsla meö sér, að ýmsir ráöamenn þjóöarinnar virðast taka á mengunarmálum þess- arar fyrirhuguðu verksmiðju i Hvalfirði með furðulegri léttúð. Það er lágmarkskrafa al- mennings, að skýlausar og ó- yggjandi upplýsingar frá óvil- höllum aðilum liggi fyrir um raunverulega mengunarhættu frá þessari verksmiðju, áður en endanleg ákvörðun veröur tekin um smiði hennar. —STARKAÐUR. lega ákvæðum útvarpslaga um kosningu útvarpsráðs, og væri þar með komin átylla til að kjósa nýja menn i ráðið. Þar sem málefni útvarpsins hafa undanfarið verið i athugun i sérstakri nefnd, sem væntan- lega skilar áliti á fyrri hluta næsta árs, töldu ýmsir hógværir menn að rétt væri að biða með þessa breytingu sem aðrar þar til nefndarálitið lægi fyrir, og þá væri hægt að gera i einu þær breytingar á útvarpslögunum, sem menn teldu eðlilegt að gera. Þetta mátti öfgaarmurinn i Sjálfstæðisflokknum ekki heyra minnst á, og I bandalagi viö þá foringja i Framsóknarflokkn- um, sem hvað mest hafa hatast út i Ólaf Ragnar Grimsson var lagst á Vilhjálm Hjálmarsson og hann aö lokum fenginn til þess að flytja þetta frumvarp. Sýndi Vilhjálmur þar að hann hefur, þegar á herðir, sömu lund og Einar Agústsson, og hafa það orðið mörgum sár vonbrigði. Hverjir veröa í nýja útvarpsráðinu? Ljóst þykir, að þessi laga- breyting verði samþykkt fyrir jólaleyfi þingmanna, og nýtt út- varpsráð kjörið. Ekki er enn ljóst, hvort það útvarpsráð muni endurspegla styrkleika- hlutföll stjórnmálaflokkanna á Alþingi, þvi tveir þingflokkar — Samtökin og Alþýðuflokkurinn — geta ekki komið fulltrúa i ráð- ið án samstarfs viö aðra, og er það i góðu samræmi við lýðræð- isást ihaldsstjórnarinnar. Hvað einstaklinga snertir, þá er hins vegar ljóst, að öfgaöflin i Sjálfstæðisflokknum, sem ráða ferðinni, munu setja Magnús Þórðarson i ráðið, hvort sem þeim tekst svo að koma öðrum álika þar inn i staðinn fyrir Þor- vald Garðar. Talað er um það, að Þórarinn Þórarinsson hafi svo litið að gera sem alþingismaö- ur, ritstjóri, formaður utanrik- ismálanefndar Alþingis og for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins, að rétt sé að fela hon- um formennskuna i útvarps- ráði, en þó munu öfgaöflin i Sjálfstæðisflokknum hafa tögl og hagldir, og er þá hætt við, að margromað „sjálfstæði” Rikis- útvarpsins verði skritið á köfl- um, og að „óhlutdrægni” verði túlkuð með sérkennilegum hætti. Menrt, sem settu svip á 20. öldirta Chiang Kai-shek, kinverskur stjórnmálamaður, fæddur 1887 Ósigur Chiang Kai-sheks, og flótti hans og Þjóðernis- sinnaflokksins til eyjunnar Formósu árið 1949, dró mjög úr áliti Chiang Kai-sheks sem stjórnmálaleiðtoga og leiötoga þjóðernissinna i Kina, en það hafði hann verið siðan á fjórða áratug aldar- innar. Chiang hlaut menntun sina og þjálfun I Japan, og þar hitti hann fyrst kinverska umbótamanninn Sun Yat- sen, sem sneri honum til byltingartrúar. Arið 1926 hóf hann svonefndan norður- leiðangur sinn, og tókst svo vel, að árið 1928 varð hann raunverulegur leiðtogi landsins. Hann hélt völdum i landinu fram til ársins 1949, en réði þó ekki nema hluta þess mestan þennan tima. Stjórn hans var fyrst og fremst stjórn hinna fáu, riku, og hann hafði ekki slikan stuðn- ing, að hann gæti staðist fyrst styrjöldina við Japani 1937-1945 — en i henni gerði hann bandalag við kommú- nista undir leiðsögn Mao Tse-tung — og siðan i borgarastyrjöldinni við Maoista. Enda fór svo, að hann hrökklaðist úr landi ásamt helstu stuðnings- mönnum sinum, og varð að setjast að á Formósu. A Formósu er Chiang Kai- shek þjóðhöfðingi, og kin- versku þjóðernissinnarnir hafa verið þar allsráðandi frá 1950, þótt á eyjunni væri fyrir þjóð sem er um ýmis- legt ólik meginlandsbúun- um. Chiang Kai-shek hafði sjálfur framan af raunveru- lega forystu i málefnum eyj- unnar, og naut viðtæks stuðnings bandariskra stjórnvalda, en hin siðari ár hefur sonur hans haft raun- veruleg völd i sinum hönd- um. SKÁK ÞRAUT 20 Svartur Hvltur leikur og mátaj I 'tveimur leikjum. FRÁ NORÐ URLA XDSKJÖRDÆMI VESTRA Framhald af 5. siðu. Þar eru þrjár litlar vatnsafstöðvar á tveim svæðum, en meginraforkuframleiðslan frá diesilstöövum”. Siðar i greininm segir: „Um leið og isatruflunum við Laxá slotar, mun þessi lina (þ.e. Akureyri — Varmahlið) flytja orku til Norðurlands vestra og draga úr disilkeyrslu þar. Siðan verður hinn hluti af tengilinunni frá Suðurlandi til Norðurlands, og þegar þeirri samtengingu er Iokið á næsta ári verður Norðurland vestra mjög vel sett með tengingu við tvö orkuframleiðslusvæði, Búrfells- svæðið og Laxársvæðið.” Það sem er athugavert við þessi ummæli Magnúsar og þá stefnumörkun, sem i þeim felst, er fyrst og fremst það, að ekki er um viðbótarvirkjanir að ræða i þessum stóra landshluta, sem Norðurland vestra er, frá þvi sem var á viðreisnartimabilinu. Að visu á að virkja við Þverá i Fljótum, orku sem nemur 1,6 MW og jafnframt að tengja Skeiðsfoss- svæðið við Skagafjarðarveitu, slikt mun að sjálfsögðu bæta nýtinguna á þeirri orku sem til staðar er. En hvað er þá framundan i orku- öflun kjördæmisins? Er það nokkuð nema orkuflutningur að sunnan og norðan um ófyrir- sjáanlega framtlð? Sá grunur læðist að mörgum og er í raun staðfestur i tilvitnun, sem birt er hér að framan. A þvi leikur enginn vafi, að i þessum efnum er með þessari stefnu gengið I algjöra andstöðu við vilja megin þorra fólks I kjör- dæminu. Það er ótviræður meirihluti fyrir, að tryggja orkuöflun kjördæmisins á svipaðan hátt og rakið hefur veriö i þessari grein. Þvi er ekki úr vegi að geta að nokkru þeirra möguleika, sem eru til staðar i okkar landshluta. A engan hátt verður um tæmandi upplýsingar að ræða en þær ættu þó að gefa góða hugmynd um þá stóru möguleika, sem i kjördæminu eru. Ef nefndar eru fyrst litlar virkjanir svo sem Viðidalsá I Kolugili 2,4 MW, ennfremur í sama vatnsfalli við Vestur- hópsvatn 3,2 MW, og Svartárvirkjun við Reykjafoss, 3,5 MW. Allar þessar virkjanir eru af þeirri stærðargráðu að teljast heppilegar, sem ákveðinn grunnaflsforði hver á sinu svæði, þó verulegar bilanir yrðu á veitu- kerfinu, t.d. I áhlaupa vetrarveðrum. Virkjun Blöndu hefur nokkuð verið á dag- skrá,, en hún er 155 MW að stærð. Slik stór virkjun gæti vel verið timabær með stórfelldan orkuflutning i huga. Stofnkostnaður slikrar virkjunar er á núverandi gengi um 5-6 þús. milljónir, það ætti ekki að vera nein megin- regla að setja allar helstu stórvirkjanir landsins ofan i Heklusvæðið, en forsendur gegn þvi dreg ég að nokkru fram i lok greinarinnar. Þá er að nefna Jökulsárvirkjun nr. 1 við ára- mót Merkigilsár með 70 metra fallhæð, véla stærð25MW við 4 þús. klst. ársnýtingu, en 17,3 MW við 5800 klst. ársnýtingu og þá gert ráð fyrir vatnsmiðlun frá Jökulsárvirkjun nr. 3, sem siðar verður að vikið. Nefnd virkjun við Merkigil kostar lauslega áætlað um 700 miljónir, þá kemur virkjun Jökulsár nr. 2, 5 km. ofan við áðurnefnda virkjun með áþekkum kennistærðum og svipuðum kostnaði. Að lokum er svo Jökulsá nr. 3 með jarðgöngum 8,5 km löngum frá Bugslónum niður til Jökulsár, fallhæð 300 metrar og virkjað afl um 100 MW. Tvöfalda má orkuframleiðslu Jökulsár 1 og 2 með tilkomu vatnsmiðlunar Jökulsár 3. Helstu kostir við Jökulsárvirkjanir er eftir- farandi: Þæreruutan byggðar á örfoka landi, að mestu leyti, laxgegnd engin, náttúspjöll litil og lega þessara virkjana er mjög hagstæð með tilliti til væntanlegra tenginga raforkukerfa Norður og Suðurlands. Að lokum er rétt að taka fram, að stór- virkjanasvæðin við Jökulsárnar og Blöndu eru utan helstu jarðskjálftasvæða landsins, óra- vegu frá öllum jarðeldasvæðum, en það er helsta einkennið á núverandi stórvirkjunar- framkvæmdum, að þær eru allar við eða á jarðeldabeltum. Kröfluvirkjun er nýjasta og nærtækasta dæmið, en áður hefur verið minnst á Búrfellssvæðið. Virkjun Lagarfoss er þó undantekning, en telst þó ekki til stórvirkjunar. Vestmannaeyja- gosið ætti að vera okkur nægileg áminning um að dreifð örkuöflun er lang hagkvæmust fyrir landið i heild ög laus við óþarfa áhættu um leið og stuðlað er að meira byggðajafnvægi. BÓTAGREIÐSLUR almannatrygginganna í Reykjavík Bótagreiðslur i desember hefjast sem hér segir: Ellilifeyrir mánudaginn 9. desember. Aðrar bætur en fjölskyldubætur miðvikudaginn 11. desember. Fjölskyldubætur greiðast þannig: Mánudaginn 16. desember hefjast greiðslur með 3 börnum og fleiri i fjölskyldu. Þann dag opið til kl. 17. Miðvikudaginn 18. desember hefjast greiðslur með 1 og2 börnum i fjölskyldu. Þann dag opið til kl. 17. Bótagbeiðslum lýkur á þessu ári á hádegi aðfangadags 24. desem- ber og hefjast ekki aftur fyrr en á venjulegum greiðslutima bóta i janúar. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS

x

Ný þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.