Ný þjóðmál - 04.03.1975, Blaðsíða 2

Ný þjóðmál - 04.03.1975, Blaðsíða 2
2 NY ÞJOÐMAL FLOKKSSTARF SAMTAKANNA Samtökin í Reykjavík: Velheppnaður fundur um stjórnmálin Sunnudaginn 23. febrúar héldu Samtökin á Akranesi fund um stjórnmálaástandið og efna- hagsmálin, og voru alþingismennirnir Magnús Torfi Ólafsson og Karvel Pálmason framsögu- menn. Fundurinn var ágætlega sóttur, og fóru þar fram umræður um ýmsa þætti stjórnmál- anna. Garðar HalUlórssonsetti fundinn og bauð alþingismenn Sam- takanna, og formann framkvæmdastjórnar, ólaf Ragnar Grimsson, velkomna til fundarins. Siðan skipaði hann Þorstein Ragnarsson fundarstjóra. Magnús Torfi ólafssonrakti aödraganda stjórnarmyndunar I- haldsaflanna, og benti á þær ieiðir i efna- hagsmálum, sem Samtökin höfðu lagt á- herslu á i viðræðunum um myndun nýrrar vinstristjórnar s.l. sumar, en ekki hefðu fengið hljómgrunn þá. Myndun núverandi stjórnar hefði verið afsökuð með þvi að nauð- synlegt væri að mynda sterka stjórn, sem réði við vandann. Allir sæu hins vegar, að þetta væri veik stjórn. Hún væri sjálfri sér sundurþykk og hefði engin úrræði i efnahags- málum sem dygðu til að leysa vandann. Stjórnin væri stefnulaus, og meðal stuðnings- manna stjórnarflokkanna sjálfra væri vægast sagt litil hrifning með rikisstjórnina. Þá benti hann á, að fátt nýtt hefði komið frá þessari stjórn. Nefndi sem dæmi, að þótt t.d. menntamálaráðherra hefði flutt ýmis mál á þinginu, þá væru það frumvörp, sem ýmist hefðu verið lögð fram á siðasta þingi af vinstristjórninni, eða verið til- búin i menntamálaráðuneytinu s.l. sumar. Eina nýja mál menntamálaráðherra væri stjórnarfrumvarpið um brottvikn- ingu útvarpsráðs. Karvel Pálmason rakti feril núverandi rikisstjórnar i efna- hagsmálum, og sýndi fram á, hvernig hún hef- ur aukið á efnahagsvandann i stað þess að leysa hann. Þá minnti hann á, að sigur Sam- takanna 1971 hefði fellt viðreisnarstjórnina og gert vinstristjórn mögulega. Hann gerði sam- anburð á þessum tveimur stjórnum, einkum að þvi er varðaði málefni landbyggðarinnar, og minnti á, að það hefði sannast rækilega i sið- ustu þingkosningum, að sigur Samtakanna var forsenda nýrrar vinstristjórnar. Þó hafi Sam- tökunum tekist að koma i veg fyrir myndun nýrrar viðreisnarstjórnar, en forysta Alþýðu- flokksins og Framsóknarflokksins hefðu saman komiö i veg fyrir myndun Fjögurra flokka stjórnar vinstriaflanna, og þar með opnað leiðina fyrir Framsóknarflokkinn inn i núverandi ihalds- samstarf. Karvel gerði einnig nokkra grein fyrir stefnu Samtakanna i efnahagsmálum, einkum niðurfærsluleiðinni. Að loknum framsöguerindum fóru fram almennar úmræður, og var þar komið viða við. Auk þess komu fram ýmsar fyrir- spurnir, sem framsögumenn svöruðu. Þorsteinn Ragnarsson minnti á, að slagorð Samtakanna i sið- ustu kosningum, um að sigur þeirra væri forsenda vinstri stjórn- ar, hefði reynst i alla staði rétt. Þá ræddi hann um fyrirhugaða járnblendiverksmiðju, sem hann taldi að gæti dregið úr krafti athafnalifs á Akranesi, auk þess sem gæta yrði aö mengunar- hættu og áhrifum útlendinga i islensku atvinnulifi. Gisli Guðmundsson spurði eftir hverju verkalýöshreyfingin væri að biöa: hvers vegna hún hefði ekki þegar sýnt rikisstjórn- inni i tvo heimna. Hann ræddi einnig um hverjir væru láglauna- og hálaunamenn. Karvel sagði, að verkalýðsfélögin yrðu sjálf að ákveða sinar aðgerðir, en gengisfellingin nú hlyti að auka verulega þrýsting frá verkalýðshreyfingunni i samningamálunum. ólafur Ragnar Grimsson ræddi fyrirhugaða járnblendiverk- smiðju og sagði, að þessi fundur væri m.a. haldinn til að fá sjón- armið heimamanna á þvi máli. Þá rakti hann ályktun fram- kvæmdastjórnar Samtakanna um efnahagsmál, og þá stefnu sem þar væri lögð áhersla á af hálfu Samtakanna, og þann stuðn- ing við baráttu verkalýðshreyfingarinnar, sem þar kæmi fram. Magnús Torfisvaraði framkominni fyrirspurn um tengsl milli Alþýðuflokksins og Samtakanna, og rakti þróun þeirra mála á siðastliðnu ári. Hann benti á að engar viðræður væru i gangi milli þessara aðila, en minnti á, að gott samstarf hefði verið milli flokkanna á þingi framanaf, en fyrir jólin hefði Alþýðu- flokkurinn hafnaö frekari samstöðu með Samtökunum við kosn- ingar á þingi og biðlað til stjórnarliðsins um aðstoð og fengið hana þar. Þá ræddi Magnús einnig framkomnar fvrirspurnir og athugasemdir varðandi járnblendiverksmiðjuna. Þorsteinn Ragnarsson lýsti enn frekari efasemdum sinum varðandi járnblendiverksmiðjuna, m.a. vegna raforkuverðsins. • Sveinn Jóhannsson, bóndi, ræddi m.a. um járnblendiverk- smíðjuna, og taldi æskilegt að nýta orku okkar til þess að efla innlenda framleiðsiu. Herdis ólafsdóttirsagði, aö verkalýðsmálin væru nú i brenm- depli. Lægstu launin væru nú um 40.000 á mánuði, og kaupmátt- urinn hefði verið skertur um 40%. Kjarabætur þær, sem náðst hefðu i tið vinstristjórnarinnar, væru nú að engu orðnar. Þá minnti hún á, að járnblendiverksmiðjan væri mjög um- deild. Mikið væri rætt um mengunarhættuna. Þá væri eðlilegt að nota raforku landsmanna til að spara oliu. Hún taldi að verja ætti fjármagninu til að fullvinna matvælin, sem heimurinn hefði mikla þörf fyrir. Það væri mikilvægt að fá stóriðju á þvi sviði. Gísli Guömundssonlýsti andstöðu sinni við stóriðju af þvi tagi, sem járnblendiverksmiðjan væri. Þákomufram ýmsar fyrirspurnir, m.a. um samstarf Samtak- anna og Alþýðubandalagsins, um niðurfærsluleiðina og um sam- starf eða samruna oliufélaganna, svo dæmi séu tekin, og svöruðu þingmennirnir þeim fyrirspurnum. . — ifc .■ ~-nnrim m , n < n ,„ 1 - ,; .. - • • rn ;;; - •: VI ” ff • r t,; ■ : 5 * r1? ’ r - h- i^ VjkíS* , en það félag hefur staðið fyrir miklum framkvæmdum á þessu sviöi. Húsnæðismál og húsbyggingar í siðustu viku ræddum við i „opnu húsi” um ibúðabygging- ar á félagslegum grundvelli og lánamál. Kélagi okkar, Björn Jónsson, starfsmaður hjá Bygg- ingarsam vinnufélagi starfs- manna rfkisins, rabbaði við okkur um þessi málefni og svar- aði fyrirspurnum. Hér hefur verið um afar mikilvægan þátt þjóðmála að ræða, scm skiptir auðvitað miklu að sé vel ræktur. Munum við gera þessu máli nánari og itarleg skil i næsta tölublaði Þjóðmála. Vrshátið Kins og áður hefur verið aug- lýst, verður árshátíð Samtak- anna lialdin i félagsheimili Kóstbræðra við Langholtsveg, laugardaginn 22. mars nk. hefsl kl. 21.00. Skem m tia triði og dans. — Kélagar. Munið árshá- tiðina! -I Samtökin á Akranesi Alþjóðlega kvennaáríð Samtökin i Reykjavik efna til almenns félagsfundar um málefni kvenna- ársins i félagsheimili prentara að Hverfisgötu 21 fimmtudaginn 6. mars n.k., hefst kl. 20.30. Á dagskrá verður m.a. launamisréttið, konur i verkalýðshreyfingunni, fæðingarorlofið og alþjóðlega kvennaárið. FRAMSÖGURÆÐUR: Karvel Pálmason: Konur i verkalýðshreyfingunni Ólafur Ragnar Grímsson: Konur og þjóðfélagsforystan Rannveig Jónsdóttir: Kvennaárið Sólveig ólafsdóttir: Launamisréttið Steinunn Finnbogadóttir: Fæðingarorlofið Að loknum ræðum sitja frummælendur fyrir svörum. FUNDARSTJÓRI: Ása Jóhannsdóttir Önnur mál. Kosið verður nýtt borgarmálaráð Samtakanna. Karlar sjá um kaffiveitingar. Félagar mætið vel og takið gesti með! Stjórn og starfsnefnd Samtakanna Samtökin í Kópavogi: Aðalfundur félagsins Aöalfundur Samtakanna I Kópavogi var haldinn miðviku- daginn 12. febrúar I Kélags- heimili Kópavogs. Dagskrá fundarins var venju- leg aðalfundarstörf, auk þess sem Sigurjón Ingi Hilariusson, bæjarfulltrúi flutti framsögu um fjárhagsáætlun bæjarins og bæjarmálefni almennt. Að lok- inni framsögu urðu miklar um- ræður um málefni Kópavogs- bæjar og margar fyrirspurnir lagðar fyrir framsögumann. t stjórn félagsins voru kosnir: Guðleifur Guðmundsson, for- maður. Sigurður Einarsson, varaformaður. Edda Magnús- dóttir, ritari. Ingimar Jónasson gjaldkeri. Andri ísaksson, með- stjórnandi. 1 varastjórn: Hannibal Helga- son, Olafur Jensson, Jens Hallgrimsson. Endurskoðendur: Guðni Stefánsson og Halldór Jónsson, t blaðstjórn bæjarmálablaðs- ins Nýstefnu voru kosnir: Sigur- jón Ingi Hilariusson, Jens Hallgrimsson, Andri tsaksson, Andrés Kristjánsson, Sigurður Einarsson, Sigurður Konráðs- son og Guðni Jónsson. I Æskulýðsnefnd hlutu kosn- ingu: Brynjar Valdimarsson og Páll Stefánsson. Eiga þeir lika sæti I Æskulýðsnefnd heildar- samtakanna. Siðan var kostið I Bæjarmála- ráð. En i þvi eiga sæti átta efstu menn á framboðslista Samtak- anna i Kópavogi, aöal- og vara- menn i hinum ýmsu nefndum, sem kosið er I innan bæjar- stjórnar og Samtökin eiga aðild að. Formaður bæjarmálaráðs er Hjörtur Hjartarson. Lok voru kjörnir fulltrúar fé- lagsins I Kjördæmisráð. Þeir eru: Andri tsaksson, Guðni Jónsson, Elias Snæland Jóns- son, Andrés Kristjánsson, ölaf- ur Jensson, Halldór Jónsson, Hannibal Helgason, Siguröur Einarsson og Guðni Stefánsson. Bæjarfulltrúi Samtakanna er sjálfkjörinn i ráöið. Mikiö starf er framundan og þegar hafa veriö auglýstir nokkrir fundir. Almennur fundur Almennur fundur um efnahagsmál og stjórnmálaviðhorfið verður haldinn mið- vikudaginn 5. marz nk. kl. 20.30 i efri sal F élagsheimilisins. Framsögumenn verða al- þingismennirnir Karvel Pálmason, Magnús Torfi olafsson og formaður framkvæmdastjórnar SFV, ólafur Ragnar Grimsson. Fundurinn er öllum op- inn. Stjórnin

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.