Ný þjóðmál - 04.03.1975, Blaðsíða 6

Ný þjóðmál - 04.03.1975, Blaðsíða 6
6 NÝ ÞJÓÐMÁL RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN: FORSTÖÐUKONA (FÓSTRA) ósk- ast til starfa við Dagheimili Land- spitalans, Engihlið 6 frá 1. mai nk. Úpplýsingar veitir forstöðukona Landspitalans, simi 24160 og starfs- mannastjóri, simi 11765. Umsóknar- frestur er til 1. april nk. NÁMSHJÚKRUNARKONUR A SVÆFINGARDEILD. Þrjár stöður námshjúkrunarkvenna i svæfingum eru lausar- til umsóknar og veitast frá 15. april nk. Skriflegum umsókn- um ber að skila til forstöðukonu Landspitala, sem veitir allar upp- lýsingar. BLÓÐBANKINN: ADSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa frá 1. april nk. Staðan er til eins árs með möguleika á starfi i annað ár til viðbótar. Umsóknar- frestur er til 25. mars nk. Upplýs- ingar veitir yfirlæknir Blóðbankans. KÓPAVOGSHÆLI: AÐSTOÐARMATRÁÐSKONA Ósk- ast til starfa i eldhúsi hælisins hið fyrsta. Starfsreynsla er nauðsynleg og próf frá húsmæðraskóla, eða hús- mæðrakennaraskóla æskileg. Upp- lýsingar veitir matráðskonan i sima 41503 milli kl. 2 og 3 næstu daga. Umsóknum, er greini aldur, mennt- un og fyrri störf, ber að skila til skrifstofu rikisspitalanna. Umsókn- areyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik, 28. febrúar, 1975. SKRIFSTOFA RfKISSPÍTALANNA EIRlKSGÖTU 5,SiM111765 PÓSTUR OG SÍMI Staða viðskiptafræðings hjá Póstgiróstofunni er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar verða veittar hjá for- stöðumanni póstgiróstofunnar og hjá star f s manna deild. Námsvist í félagsráðgjöf Fyrirhugað er að fimm isiendingum verði gefinn kostur á námi i félagsráðgjöf i Noregi skólaárið 1975—76, þ.e. að hver eftirtalinna skóla veiti inngöngu einum nemanda: Norges kommunal- og sosialskole, ósló Norske Kvinners Nasjonalráds Sosiaiskoie, ósló Sosialskoien, Stafangri Sosialskolen, órándheimi og Det Norske Diakonhjem, Sosialskolen, ósló. Til inngöngu i framangreinda skóla er krafist stúdents- prófs eða samhærilegrar menntunar. tsienskir umsækj- endur, sein ekki hefðu lokið stúdentsprófi mundu ef þeir að öðru levti kæmu til greina þurfa að þreyta sérstakt inn- tökupróf, hiiðstætt stúdentsprófi stærðfræðideildar i skrif- legri isiensku, ensku og mannkynssögu. Lágmarksaldur til inngöngu er l!)ár og ætlast er tii þess að umsækjendur hafi hlotið nokkra starfsreynsiu. l»«*ir sem hafa hug á að sækja um námsvist samkvæmt framansögðu skulu senda umsókn til menntamálaráðu- neytisins, IIverfisgötu 6, Keykjavik, fyrir 1. april n.k. á sérstöku eyðublaði.sem fæst i ráðuneytinu. Reynist nauðsvnlegt að einhverjir umsækjendur þreyti sérstök próf i þeim greinum, sem að framan greinir, munu þau próf fara fram hérlendis í vor. Menntainálaráðuneytið, 26. fehrúar 197>. Frá utanrikisráðuneytinu Sendiráð tslands á Norðurlöndum benda á að islending- ar sem þangað koma lendi iðulega i nokkrum vandræðum vegna þess að þeir hafi ekki i fórum sinum nein gild skil- riki sem sanni rétta undirskriít þeirra. Oft geta þeir þvi t.d. ekki fengið skipt ferðatékkum i bönkum. Skal þvi enn vakin athygli á þvi að ef islenskir ferða- menn á Norðurlöndum hafa ekki með sér vegabréf er nauðsynlegt að þeir hafi önnur skilriki er sanna hverjir þeir eru. 28. febrúar 1975. LAUSSTAÐA Starf i Þjóðskjalasafni tslands er laust til umsóknar. Starfið er einkum fólgið i þvi að sinna afgreiðslu og vörslu á lestrarsal. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með uppiýsingum um menntun og starfsferil skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 25., mars næstkomandi. MENNTAMÁLARAÐUNEYTIÐ 28. FEBRÚAR 1975. LAUSSTAÐA Staða skjalavarðar I Þjóðskjalasafni tslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi i sagnfræði eða skyldum greinum. Umsóknir um starf þetta með upplýsingum um nám og starfsferil skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 25. mars næstkomandi. MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ 28. FEBRÚAR 1975. Aðvörun um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á söluskatti Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér i umdæminu, sem enn skulda sölu- skatt fyrir okt.—des. 1974, og nýálagðan söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar við Tryggva- götu. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 25. feb. 1975 Sigurjón Sigurðsson. AUGLÝSING UM SKOOUN ÖKURITA Með tilvisun til fyrri auglýsingar ráðu- neytisins um skoðun ökurita i stýrishúsi i dieselbifreiðum yfir 5 tonn að eigin þyngd hefur ráðuneytið hlutast til um að skoðunarmenn verði staddir á eftirtöldum stöðum og tima dagana 3—7. mars n.k. til hagræðis fyrir viðkomandi bifreiðastjóra. Keflavik, v/Bifreiðaeftirlit, mánud. Grindavik v/Festi, mánud. Þorlákshöfn v/Kaupfélagiö, þriðjud. Hveragerði, v/Hótel Hverag. þriðjud. Stokkseyri, miðvikud. Selfoss v/Bifr.eftirlit, miðvikud. Hvolsvöllur v/Kaupfélagið, fimmtud. Hella v/Kaupfélagið, fimmtud. Akranes v/Vörubilastöðina, föstud. 3. mars k. 10-17 3. marskl. 18-20 4. mars kl. 10-15 4. mars kl. 16-18 5. mars kl. 10-12 5. mars kl. 13-20 6. mars kl. 10-15 6. mars kl. 16-18 7. mars kl. 13-16 Skoðunarmaöur verður ekki sendur aftur á framan- greinda staði. Komi umráðamenn viðkomandi bifreiða þvi ekki við, að láta skoða ökuritana á hinum auglýstu timum veröa þeir aö koma með bifreiöina eða senda ökuritann til V.D.O. verkstæöisins Suðurlandsbraut 16, Reykjavik fyrir 1. april n.k. Fjármálaráðuneytið, 28.2.75 Menn, sem settu svip á 20. öldina ARISTIDE Briand, franskur stjórn- málamaður, 1862—1932 Briand var oftar forsætis- ráðherra Frakklands en nokkur annar franskur stjórnmálamaður á þeim tlma, en engin rikisstjórn hans var þó sérlega langlif: sú, sem best stóðst timans tönn, var við völd i 20 mán- uði. Samt sem áður er hans sérstaklega minnst sem utanrikisráðherra, en það embætti hafði hann með höndum I alls 16 rikisstjórn- um. Briand var mjög snjall samningamaður, og flutti mál sitt af tilfinningahita og orðsnilld, sem hafði mikil áhrif, hvort sem var i franska þjóðþinginu eða á fundum Þjóðarbandalags- ins. Hann varð mjög vinsæll i Frakklandi á þriðja áratug aldarinnar sem ötull baráttumaður fyrir friði. Markmið hans sem utan- rikisráðherra var að koma á vinatengslum milli Frakk- landsog Þýskalands, og i þvi efni miðaði honum nokkuð á- fram er hann náði góðu sam- starfi við þýska utanrikis- ráöherrann Stresemann. Sérstaka athygli vakti svo- nefndur Kellogg-sáttmáli, sem Briand tókst að ná sam- komulagi um. Þar var þvi lýst yfir, að aðildarrikin, sem voru rúmlega 60, höfn- uðu styrjöld sem aðferð við lausn millirikjadeilna. En þótt Briand hefði þann- ig náð árangri, þá var sá árangur skammvinnur. Þeg- ar hann andaðist 1932 var flestum orðið ljóst, að vonir hans um nána samvinnu Frakklands og Þýskalands voru að engu orðnar. SKÁK PRAUT 29 Svartur Hvftur leikur og mátar I 3 leikjum. Lausn birtist i næsta blaði. LAUSNÁ SKÁK- ÞRAUT NR. 28 Lykilleikurinn er: 1. g5. Dæmi um áframhaldiö: 1. ...Hb6, 2. Rc3, dxRc3, 3. DxHb6. Eða: 1. .... He6, 2. Rf4, pxRf4, 3. Dxe6. Eða: 1. ..., Bxg5, 2. Rg3, pxRg3, 3. Dxg5. Eða: 1....pxRe2, 2. Bg4 o.s.frv. Eða: 1. .... e4, 2. Dd6 o.s.frv. Eða: 1.f3, 2. gxhöo.s.frv. Eða: .Hf7, 2. Dc6 o.s.frv.

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.