Ný þjóðmál - 16.12.1975, Blaðsíða 4

Ný þjóðmál - 16.12.1975, Blaðsíða 4
4 NÝ ÞJÓÐMÁL ÞRIÐJUDAGURINN 16. DESEMBER 1975 Hlýog falleg bók... Þrtna'ir fy/flri/xwff Það ereitthvaðsem Það er eitthvað sem enginn veit eftir Þorgeir Þorgeirsson Bernskuminningar Líneyjar Jó- hannesdóttur frá Laxamýri eru fágaetlega kvikar og lifandi myndir frá horfinni veröld. Hnit- miðaðar frásagnir og skörp at- hyglisgáfa bregða birtu yfir ó- venjulegt mannlíf á höfuðbólinu Laxamýri í ■ Þingeyjarsýslu og ættmenn Jóhanns Sigurjónsson- ar skálds. Þetta er hlý og falleg bók sem ber vitni um næma skynjun og djúpar tilfinningar. Þorgeir Þorgeirsson hefur farið meistarahöndum um efnivið sinn. Hann hefur þjappað miklu efni saman ( knappan og kjarn- yrtan texta. Honum hefur tekist að halda í frásögninni yfirbragði eðlilegs talmáls en gætt hana um leið þeim eigindum góðs rit- máls sem gera hana fnarkvissa og eftirminnilega. Þorgeir held- ur fullum trúnaði við málfar Lín- eyjar, sem er sérkennilegt og blæbrigðaríkt og nær oft skáld- legri upphafningu. Þetta er bók sem er allt í senn: þjóðlífslýsing, safn skemmtilegra frásagna, einstakar persónulýs- ingar og meitlaS bókmenntaverk. iðunn AÐVÖRUN um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila á söluskatti Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér i umdæminu, sem enn skulda sölu- skatt fyrir júli, ágúst og september 1975, og nýálagðan söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áfölln- um dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunn- ar við Tryggvagötu. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 4. desember 1975. Sigurjón Sigurðsson. Styrkir til háskólanáms á Italíu ítölsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram i löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til háskóla- náms á Italiu háskólaárið 1976—77. — Ekki er vitað fyrir- fram hvort einhver þessara styrkja muni koma i hlut islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til 12 mánaða námsdvalar. Styrkfjárhæðin er 150.000 lirur á mánuði, auk ferðakostnaðar til og frá Italiu. Umsækjendur skulu hafa góða þekkingu á ensku eöa frönsku, eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokið há- skólaprófi áður en styrktimabil hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 5. janúar 1976. Sérstök umsóknareyöublöð fást i ráöuneytinu.- Menntamálaráöuneytið, 9. desember 1975. Nefndin telury að framkvæmu megi tillögur 25 stofnanir starfsemi frá en 36 stofnanir komi á fót Fyrsti hluti nefndarálitsins er sögulegt yfirlit yfir þróun is- lenska stjórnkerfisins : hvernig og á hve margslunginn hátt Reykjavik varð miðstöð þess. Auk Alþingis, embættiskerfis, dómstóla og fáeinna mennta- stofnana sem komu til sögunnar á siöustu öld, býr nú i borginni fjölþætt samansafn stjórnstofn- ana, banka og annarra fjár- málastofnana, höfuðstöðva hagsmunasamtaka og stjóm- málaflokka, fjölmiðla, mennta- og menningarstofnana, auk þess hefur þjóðhöfðingi þar skrifstofu. Allir höfuðþættir nú- tima stjómkerfis eru fyrst og fremst tengdir Reykjavik. Lokaskeið sjálfstæðisstjórn- málanna og þjóðfélagsþróunin, sem I senn hefur verið orsök og afleiðing stéttastjórnmálanna, fela i sér meginörlagavalda þessarar skipunar. Almenn lýs- ing á sögulegri þróun og núver- andi gerð stjórnkerfisins leiðir I ljós að nokkrir mikilvægir mið- stöðvarþættir eru utan hins formlega rikiskerfis. Mið- stöðvarsess Reykjavikur er grundvallaður á fl. en aðsetri opinberra stofnana. Hagsmuna- samtökin, stjórnmálaflokkam- ir, nokkur hluti fjölmiðla og fjármálastofnana eru utan hins formlega rikiskerfis. Þótt hér sé um að ræða mikilvæga þætti i stjórnkerfi landsins hefur rikis- valdið ekki rétt til að ákveða að- setur þeirra. Aðeins sá hluti stjórnkerfisins sem er innan hins eiginlega valdsviðs rikisins — Alþingi, stjórnarráð og stjórnstofnanir, þjóðhöfðingi, dómstólar, menntastofananir, menningarstofnanir, opinberir fjölmiðlar og f jármálastofnanir — telst til viðfangsefnis nefndarinnar. Það er hins vegar nauðsynlegt að leggja áherslu á að flutningur rikisstofnana get- ur aðeins haft takmörkuð áhrif á miðstýringu stjórnkerfisins, ef þeir þættir þess sem eru utan valdsviðs rikisins eru áfram jafnbundnir Reykjavik. Um leið og nefndin birtir tillögur um staðarval opinberra stofnana er vakin sérstök athygli á þætti stjórnmálaflokka, hagsmuna- samtaka, fjölmiðla og fjár- málastofnana i miðstöðvarupp- byggingu Reykjavikur. Eigi að draga verulega úr miðstýringu islenska stjórnkerfisins verða þessir aðilar einnig að koma tii sögunnar með breyttum starfs- háttum og nýju skipulagi. Skýrgreining rikisstofnana 1 öðrum hluta nefndarálitsins er fjallað um stofnanaflutning á almennan hátt og þannig lagð- ur grundvöllur að hinni eigin- iegu tillögugerð. Með tilliti til viðfangsefnisins hefur nefndin skýrgreint þær rikisstofnanir sem hún tekur til meðferðar þannig að rikisstofnun sé skipu- lagsleg heild með eigin starfs- liði og (a) tilheyri formlega valdsviði Alþingis, rikisstjórnar eða ráðuneytis, eða (b) sé fjár- mögnuð að verulegu leyti af opinberu fé þótt stjórn hennar sé formlega i höndum annarra eða fleiri aðila. Nefndin hefur kynnt sér 243 stofnanir og stofnanategundir og teljast 157 þeirra fullnægja skýrgreiningu nefndarinnar og forsendum varðandi núverandi staðsetn- ingu, þ.e. eru ekki utan Reykja- vikur, erlendis eða tilheyra eðli- legri umdæmaskipun landsins. Nefndin fylgir þeirri forsendu að stofnanir sem nú eru utan Reykjavikur skuli vera áfram á sama stað. Nefndin tók þvi ein- ungis til meðferðar flutning rikisstofnana frá Reykjavik. Nefndin lagði ennfremur núver- andi rikiskerfi til grundvallar og tók þvi ekki afstöðu til þess hvort leggja bæri stofnanir nið- ur eða sameina þær. Hún fjall- aði ekki heldur um væntanlegar eða llklegar nýjar stofnanir. Nefndin skipaði þeim stofnun- um sem hún athugaði i átta flokk: A) Aðalstjórnstofnanir, B) Stjórnstofnanir, C) Fjár- málastofnanir, D) Þjónustu- stofnanir, E) Menntar.tofnanir, F) Menningarstofnanir, G) Rannsóknastofnanir, H) Fyrir- tæki. Þrenns konar möguleikar Nefndin hefur athugað þrenns konar möguleika á flutningi rikisstofnana: 1) Heildarflutn- ing: stofnunin er öll flutt á einn stað. 2) Deildaflutning: ein- stakir hlutar eða deildir stofn- unar sem hafa vel afmarkað verksvið eru fluttir til annarra staða. 3) Otibúastofnun: stofn- uninni er ætlað að veita lands- mönnum staðbundna þjónustu og veröur þvi að starfrækja sams konar útibú i öllum lands- hlutum. 1 sumum tilfellum er ljóst að aðeins ein tegund flutn- ings kemur til greina en i öðrum getur verið um tvær eða jafnvel allar þrjár að ræða. Nefndingerirgrein fyrir þeim ástæðum sem liggja að baki al- mennri tillögugerð um stofnanaflutning og hvaöa markmiðum slikar aðgerðir eiga einkum að þjóna. I sam- ræmi við þessi atriði og önnur sem nefndin hefur lagt til grundvallar hefur hún metið flutningshæfni þeirra 157 stofn- ana sem hún tók sérstaklega til athugunar. Við matið hefur nefndin eir.kum tekið tillit til starfsemi og skipulags stofnun- ar, samsetningar starfsliðs, húsnæðis stofnunar, kostnaðar við flutning, áhrifa á ibúafjölg- un, atvínnulif og menningar- starfsemi á væntanlegum að- setursstað, bættrar þjónustu við almenning, valddreifingar og heildarvirkni rikiskerfisins. Við tillögur um staðarval hafði nefndin einkum i huga að stærð aöseturs sv æ ðis væ ri i sa m - ræmi við þarfir og eðli stofnunarinnar, aðseturssvæðið gæti veitt þá þjónustu og fyrir- greiðslu sem stofnunin þyrfti, að framtiðarvaxtarskilyrði og skipulagsaðstaða væru fyrir hendi, samgöngur væru greiðar ogtíðar, samræmi rikti i staðar- vali skyldra stofnana, efna- hagsáhrif stofnana á ótikum stöðum væru metin og könnuð ýmis önnur skilyrði árangurs- riks stofnanaflutnings. Nefndin bendir á að vandkvæði við stofnanaflutning verði mun minni séu skyldar stofnanir fluttar til sama svæðis og þann- ig stuðlað að miðstöðvaupp- byggingu i stjórnkerfinu. Við staðarval hefur nefndin þvi i mörgum tilfellum lagt slika miðstöðvauppbyggingu ti! grundvallar, t.d. miðstöð land- búnaðarstofnana, miðstöð orku- stofnana, miðstöð verk- og tæknimenntunar, miðstöðvar útibúa húsnæðis- og skipulags- stofnana, miðstöðvar útibúa eftirlitsstofnana. Svæðaskiptingin Við staðarval hefur nefndin lagt til grundvallar ákveðna svæðaskiptingu sem er miðuð við hefðbundna umdæmaskipt- ingu islenskrar stjórnsýslu, rikjandi samgönguaðstæður, þéttbýlismyndanir siðustu ára- tuga og viðhorf heimamanna. Nefndin greinir á milli þriggja megintegunda svæða: A) höfuðborgarsvæðis, B) ná- grannasvæða þess, C) annarra svæða. Nefndin hefur sett fram skrá yfir ibúafjölda hvers svæðis og bent á þá kosti sem fjölmennari svæðin, B-svæðin og um þriðjungur c-svæðanna, hafa fram yfir fámennari svæð- in til að taka við meiriháttar rikisstofnunum. B-svæðin eru: B1 Borgarfjarðarsvæði, B2 Sei- fosssvæði, B3 Suðurnesjasvæði. C-svæðin eru: C1 Snæfellsnes- svæði, C2 Patreksfjarðarsvæði, C3 Isafjarðarsvæði, C4 Húna- flóasvæði, C5 Skagafjarðar- svæði, C6 Eyjafjarðarsvæði, C7 Þingeyjarsvæði, C8 Austfjarða- svæði, C9 Hafnarsvæði, C10 Rangárvallasvæði, Cll Vest- mannaeyjar. Nefndin fjallar um ýmiss vandkvæði við flutning rikis- stofnana, aðgerðir gagnvart starfsfólki til að auðvelda þvi að fylgja stofnun til nýrra heim- kynna, kostnað við stofnana- flutning og almenn efnahags- áhrif hans. Nefndin gerir einnig grein fyrir því hvernig breyttir samgönguhættir á landi, á sjó og I lofti hafi þegar og muni enn frekar i næstu framtið gera flutning stofnana frá höfuð- borgarsvæðinu og starfsemi þeirra utan þess mun auðveld- ari. 1 lok annars hluta nefndar- álitsins er lýst störfum sams konar nefnda á Norðurlöndum og rakin framkvæmd stofnana- flutnings i SViþjóð og Noregi. Beinar tillögur nefndarinnar 1 þriðja hluta nefndarálitsins eru tillögur. Þær skiptast i nokkra flokka: tillögur um hvaða stofnanir verði áfram i Reykjavik, tillögur um heildar- flutning, deildaflutning, útibúa- stofnun og útibúaeflingu, einnig eru nokkrar aðrar tillögur. Þessum tillögum verðurhér lýst i stórum dráttum. Tölur innan sviga merkja þau aðseturssvæði sem lagt er til að verði heim- kynni, sbr. upptalningu að framan á B-svæðum og C-svæð- um, á bls. 130-141 i nefndarálit- inu er hins vegar að finna skrá yfir hvernig tillögugerðin i heild snertir hvert svæði. Kjarninn i hverjum tillöguflokki er þann- ig: 1) Nefndin telur eðlilegt og óhjákvæmilegt aðmargar rikis- stofananir verði áfram á höfuð-

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.