Ný þjóðmál - 16.12.1975, Qupperneq 8
8 NÝ ÞJÓÐMÁL
Jólin, hátið friðar og ljóss fara i hönd. En að þeim loknum blasir
kaldur veruleikinn við.
Framundan er erfið og mikilvæg kjarabarátta. Samningar nær
allra félagsmanna ASl eru lausir um næstu áramót. Höfuðkrafan
er stöðvun verðbólguvaxtar. Reynslan kennir okkur, að ánþess að
ráðist sé að rótum meinsins, verður ekki um varanlegar kjara-
bætur að ræða. Nú þarf órofa samstöðu launþega gagnvart rikis-
valdi og atvinnurekendum. Alþýðusambandið hvetur alla félaga
sina til að standa saman og sýna einhug um þær ákvarðanir, sem
teknar kunna að verða um verkfallsheimildir og boðanir, ef á þarf
að halda.
Eining er afl. Gerum það að boðskap jólanna i ár.
Gleiðlega hátið,
ALÞ ÝÐ USAMBAND
ÍSLANDS
Brunabótafélag Islands
Laugavegi 103 — Sími 2-60-55
I I I I I I I I I I I I
RÍKISÚTVARPIÐ
óskar landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
ÞRIÐJUDAGU RIN N
DESEMBER 1975
ÞRIÐJUDAGURINN 16. DESEMBER 1975
NÝ ÞJÓÐMÁL
DÆGRADVOL A JOLAHA TIDINNI DÆGRADVÖL Á JÓLAHÁTÍÐ DÆGRADVÖL Á JÓLAHÁTÍÐINNI DÆGRADVÖL
LEPPALÚÐI, GRÝLA OG JÓLASVEINARNIR
Margs konar þjóðtrú er á einn
eða annan hátt tengd jólunum.
Þar eru fyrirferðamestar ann-
ars vegar sögurnar um Grýlu og
hins vegar um jólasveinana.
Sögur um Grýlu hafa lengi
verið til, þar sem á hana er m.a.
minnst i tslendingasögu Sturlu
Þórðarsonar. Hún hefur verið
nefnd við þrjá eiginmenn, og er
Leppalúði vafalaust þeirra
þekktastur á vorum dögum.
Ófagrar lýsingar
Lýsingarþær, sem fyrir hendi
eru á Grýlu, eru ófagrar, og á
það reyndar jafnt við um útlit
sem innræti.
1 þjóðsögðum Jóns Árnasonar
segir, að hún hafi ótal hausa, og
þrjú augu i hverju höfði, kart-
nögl á hverjum fingri, helblá
augu i hnakkanum og horn sem
geit, eyru sem lafi ofan á axlir
ogséu áföstvið nefið að framan,
skegg á höku og tennur, sem séu
sem grjót ofanbrunnið.
t öðrum lýsingum er enn bætt
við, að hvert höfða hennar sé
eins stórt og á miðaldra belju,
augun séu eins og eldsglóðir,
kinnbeinin kolgrá og kjafturinn
eins og á tik. Þá hafi hún hrúts-
nef, þrútið og blátt og i átján
hlykkjum, hart hárstrý, kol-
svart og kleprótt, sem nái ofan
fyrir kjaft, tvær skögultennur
sem nái ofan fyrir höku, sam-
vaxin sex eyru sem liggi ofan á
læri og séu sauðgrá, og kol-
svartar hendur.
Ættu þessar lýsingar að gefa
nokkra hugmynd um, hversu ó-
skemmtileg tilhugsunin um að
hitta Grýlu hlýtur að hafa verið
á þeim timum er menn i reynd
trúðu meira og minna á slikar
þjóðsögur.
Uppáhaldsmaturinn
barnaket
í bók sinni, Jól á tslandi, segir
Arni Björnsson m.a. svo um
starf Grýlu samkvæmt þjóðsög-
unum:
„Aðaliðja Grýlu er að afla
fæðu i hinn óseðjandi maga
sjálfrar sin, barna sinna og
bónda. Uppáhaldsmatur hennar
var barnaket, einkum af óþæg-
um börnum, en einnig þá hún
fullvaxta menn og raunar flest
kjötmeti, sem að kjafti kom, en
litið var henni gefið um fiskmeti
súpur eða grauta. Hún kemur
einkum fyrir jól á þá bæi, þar
sem hún hefur heyrt börn hrina
og ærslast og angra móður sina.
Býðst hún til að losa móðurina
við þau, og segir kannski elsku-
lega við þau tækifæri:
Lengi hef ég þó
lagkæn verið
Börnunum finnst gaman að fá
að vera með i að baka kökuhús
og alls konar figúrur úr
piparkökudeigi. Þeim finnst
gaman að borða kökurnar, en
mest gaman finnst þeim að fá
áð taka þátt i að baka og skrey ta
þær.
Hér kemur góð uppskrift að
kökuhúsi og figúrum. Það er
gott að eiga við þetta deig, og
börningeta auðveldlega hjálpað
til við að móta kökur úr þvi:
150 gr. púðursykur 250 gr. (1
1/2 dl) sýróp. 150 gr. smjör eða
smjörliki, 1 teskeið engifer. 3
tsk. kanill, 1/2 tsk. negull, 2 tsk.
natron, 1 egg. 550 gr. hveiti.
Bræðið saman sykur, sýrópog
smjör. Kryddið og natrónið er
hrært Ut i. Þegar þetta er orðið
aðeins ylvolgt er eggið hrært út i
<0
A
W_RJ
FYRIR YNGSTU LESEND URNA
KATA OG
JÓLASVEINNINN
Kata var sex ára, þegar þessi
saga gerðist. Hún átti heima i
litlu þorpi. Fyrir ofan þorpið var
fjall. Kötu hafði verið sagt, að
jólasveinarnir byggju i fjallinu.
Sagan okkar gcrist rétt fyrir
jól.
Kötu langaði afskaplega mik-
ið til að fá hjól i jólagjöf.
Einn daginn iagði hún þvi af
stað upp til fjalls og hugðist
hitta jólasveinana og biðja þá að
gcfa sér hjól i jólagjöf.
Kata gckk scm leið lá upp frá
þorpinu og upp að fjallinu. Það
var snjór yfir og Kata hafði
klætt sig vel. llún var i lopa-
sokkum, lopapcysu, með lopa-
vcttlinga og lopahúfu. Hún var i
hlýjum siðbuxum og kulda-
skóm, svo að henni var ekkert
kalt á leiöinni.
Það var um hálftima gangur
upp að fjallinu. Þegar Kata var
komin alla leiö fór hún að lcita
að dyrum á fjallinu. Hún gekk
og gekk en engar fann hún dyrn-
ar.
Hún varð heldur vonsvikin.
llún héll aftur heim á leið.
Þcgar hún var komin langt á-
leiðis heim skall á dimm hrið og
Kata vissi, að ef hún héldi á-
fram gæti hún villst.
Ilún mundi, að pabbi hennar
og mamma höfðu sagt henni, að
ef hún settist niður i snjó mætti
hún aldrei sofna.
Kata gróf sér snjóhús og þar
fékk hún skjól fyrir veðrinu.
Ilún borðaöi súkkulaðistykki,
sem hún hafði með sér. Svo
hamaðist hún viö að búa til
snjóabolta, scm hún hlóð upp i
snjóhúsinu.
Hún var farin að verða syf juð,
þegar hún sá, að hriðin var hætt.
Hún flýtti sér þvi út úr snjóhús-
inu og sá Ijós I litlu húsi rétt hjá
sþr.
Kata gekk áleiðis að húsinu.
En það var lengra i burtu en
hcnni hafði sýnst og þegar hún
barði að dyrum var hún orðin
mjög þrcytt.
Til dyranna kom gamnll mað-
ur með grátt inikið skegg. Hann
var i rauðri ullarpeysu.
Kata sagði: — Ert þú jóla-
svcinn? fcg cr búin að leita að
þér uppi i fjallinu.
Þegar Kata liafði sagt þctta
datt hún niður af þreytu.
Gamli maðurinn tók hana upp
og lagði hana niður i sófa og
vafði utan um hana hlýtt teppi.
Eflir stutta stund rankaöi Kata
við sér.
Þá gaf gamli maöurinn henni
hcita mjólk að drckka og kjöt-
að hugga og þagga
hrinu börnin.
En væru börnin þæg og iðin
við að læra var þýðingarlaust
fyrir Grýlu að ætla að ná þeim.
Þvi er likast sem Grýla eins
og vaxi upp úr öllum þeim for-
ynjusæg, sem á ferðum var i
myrkrinu og sérstaklega um
jólin, likt og tákn eðá samnefn-
ari alls hins ljótasta og ógurleg-
asta, sem orðið hafi til i hugar-
heimi manna. Kemur manni i
hug, auk margs annars, böm
loka, Fernisúlfur, Miðgarðs-
ormur og Hel. En talsvert ætt-
armót má þó sjá með henni og
nokkrum stallsystrum hennar i
nágrannalöndunum.”
Jólasveinarnir —
börn Grýlu
Jólasveinarnir eru i fyrstu
skráðu heimildum taldir böm
Grýlu og Leppalúða. Þeir voru
reyndar hinir verstu óknytta-
menn til að byrja með en hafa
mjög breyst i meðförum eftir
þvi sem timar hafa liðið.
Jólasveinarnir eru ýmist tald-
ir niu eða 13, eins og alkunnugt
er úr ýmsum jólasveinavisum.
Nöfn jólasveinanna hafa einn-
ig verið nokkuð mismunandi, en
elstu nöfnin munu vera þessi
og siðan hveitið. Deigið er
hnoðað og látiö biða i 1 klst, eða
til næsta dags.
Deigið er siðan flatt út ca. 1/2
cm á þykkt. Siðan má skera út
úr deiginu hjörtu, stjörnur og
alls konar figúrur, eða stykki i
kökuhúsið, og þá er best að
klippa fyrst út veggi og þak i
pappfr, sem lagður er ofan á
deigið og skorið i kringum.
Setið varlega á plötuna og
gætið þess að stykkin aflagist
ekki. Bökunartimi er ca. 8 min
við góðan hita (200 gráður).
A myndinni sjást stærðirnar á
húsinu og hvernig skreyta má
húsið og i kringum þáð. Húsið er
fest saman með bræddum sykri.
3 dl af sykri eru bræddir á
pönnu, en siðan sett á minnsta
hita, svo að sykurinn harðni
ekki meðan þið festið húsið
saman.
eftir Önnu K.
Brynjúlfsdóttur
súpu, og þegar Kata hafði borð-
að var hún alveg búin að ná sér.
— Mig langar svo i hjól i jóla-
gjöf, sagði hún. — Þess vegna
fór ég að reyna að hitta jóla-
sveinana, þvi að ég veit, að
pabbi og mamma hafa ekki pen-
inga til að kaupa handa inér
hjól.
— Jæja, — sagði ganili mað-
urinn með gráa skeggið, — svo
þú heldur að ég sé jólasveinn?
— Já, sagði Kata, — crtu ekki
hann Kjötkrókur. Þú lilýtur að
vera Kjötkrókur fyrst þú gafst
mér kjötsúpu.
Gamli maðurinn spurði nú
Kötu livar hún ætti hcima og
livað simanúmerið hjá henni
væri. Hann sagðist ætla að
hringja til pabba hennar og
mömmu og láta þau vita livar
hún væri.
Þegar hann hringdi urðu for-
eldrar Kötu mjög glöð, þvi að
þau voru orðin hrædd um hana
og inenn voru farnir af stað að
leita hennar.
Eftir stutta stund kom pabbi
licnnar i bil og sótti hana. Þegar
þau kvöddu hvislaði gamli
maðurinn einhverju að pabba
heiinar Kötu.
Og á aðfangadagskvöld var
Kata ánægðust af öllum, þvi að
hún liafði fcngið lijól i jólagjöf.
Stekkjastaur, Giljagaur, Stúf-
ur, Þvörusleikir, Pottasleikir,
Askasleikir, Faldafeykir, Skyr-
gámur, Bjúgnakrækir, Glugga-
gægir, Gáttaþefur, Ketkrókur
og Kertasnfldr.
Þetta eru þrettán nöfn, en alls
munu vera til hátt i þrjátiu nöfn
á jólasveinunum, og eru nöfnin
nokkuð misjöfr. eftir landslilut-
um.
(Jtlit og athafnir
Eins og áður segir hafa jóla-
sveinar mjög breyst i meðför-
um. Áður fyrr voru þeir barna
fælur hinar mestu. Þeim var
lýst sem jötnum, auk þess sem
þeir voru ljótir og luralegir.
Þeir gengu i röndóttum fötum
með stóra gráa húfu á höfði, og
þeir höfðu með sér gráan poka,
eða þá stóra kistu, til að láta ó-
þæg börn i.
Um aldamótin siðustu var
þetta nokkuð breytt. Þá var far-
ið að telja jólasveinana i
mannsmynd og klædda i gömul
islensk bændaföt eða þá i þann
búning, sem hinn evrópski og
ameriski jólasveinn, sem á ættir
sinar að rekja til hins heilaga
Nikulásar, klæðist venjulega og
við þekkjum i dag hér á landi.
Það er einnig nýtilkomið, að
jólasveinninn hér á landi fari
með það hlutverk að færa böm-
um og jafnvel fullorðnum jóla-
gjafir, og er þar einnig um er-
lend áhrif að ræða. Áður voru
þeir hinir mestu viðsjárgripir
og gerðu mönnum, ekki sist
börnum, oft skráveifur.
Xoma til byggða um
jólin
Eins og kunnugt er fylgir það
þjóðsögunni að jólasveinarnir
eigi heima upp á regin fjöllum,
en að þeir komi til byggða fyrir
jólin. Þegar um 13 jólasveina er
aö ræða þá kemur sá fyrsti til
byggða 13 dögum fyrir jól, og
siðan einn á hverjum degi fram
á aðfangadag, þegar Kertasnik-
ir kemur siöastur. Þeir hverfa
svo aftur til fjalla hver af öðr-
um, og sá siðast á þrettánda.
Fullt farcjjald
fyrir einn,
hálft fyrir hina
1. nóvember til 31. mars er i gildi fjölskyldu-
afsláttur af fargjöldum okkar til Noröurland-
anna.Luxembourg og Bretlands.
Þegar fjölskyldan ferðast saman, þá greiöir
einn fullt gjald, en allir hinir í fjölskyldunni
aöeins hálft.
Felög sem greióa götu yöar erlendis
Þannig geta þeir sem fara utan í viðskipta-
erindum tekiö meö, ef ekki alla fjölskylduna,
þá aö minnsta kosti maka sinn.
Þetta er rétt aö hafa í huga.
^ínÍAG loftleidir
/SLAJVDS
u
"TWIll