Ný þjóðmál - 22.10.1976, Page 3

Ný þjóðmál - 22.10.1976, Page 3
FÖSTUOAGUR 22. OKTÓBER 1976 NY ÞJOÐMAL 3 Utgefandi: Samtök frjálslyndra og vinstri manna Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Hrentun: Klaðaprent li.f. ísland er láglaunasvæði Þing Bandalags starfsmanna rikisog bæja, sem haldið var fyrr í þessum mánuði/ sýndi mikla samstöðu opin- berra starfsmanna. i ályktun þingsins um launamál er bent á þá staðreynd, að „launakjör íslenskrar alþýðu er nú orðin ein hin allra lægstu í Vestur-Evrópu", auk þess sem launamismunur og margháttað misræmi í launa- málum hefur störlega aukist. Um þróunina segir m.a. eftirfarandi i ályktun þings- ins: ,,Hér á landi hefur geisað óðaverðbólga og frá því að umsamin visitöluhækkun á laun var síðast greidd (1. mars 74) og til 1. ágúst 1976 hefur framfærsluvísitalan hækkað um 150% og kaupgjaldsvísitalan, sem um var samið, hefði líklega hækkað um 130%. Launastigi opinberra starfsmanna hefur á sama tíma einungis hækkað um 40—70%. Þróun kjaramála hefur þannig verið opinberum starfsmönnum sérstaklega óhagstæð undanfarin ár. Réttindaleysi samtakanna og félaganna veldur þar mestu, enda hef ur verulegur hluti baráttunnar beinst að því að knýja fram breytingar á samningsrétti. í þvi efni vegur þyngst afnám gerðardóms aðalkjarasamnings og takmarkaður verkfallsréttur. Þingið telur það brýnasta verkefni samtakanna á næstunni að hefja markvissa baráttu gegn þessari óheillaþróun. i því sambandi felur þingið forystu sam- takanna að leita samstarfs við Alþýðusamband islands og önnur heildarsamtök launafólks um samræmdar að- gerðir i kjaramálum." Forgangsverkefnin l framhaldi af þessu leggur þingið áherslu á að for- gangsverkefni við gerð nýs kjarasamnings á næsta ári eigi að vera þessi: „1. Bætt verði að fullu kjaraskerðing undanfarinna ára og tryggður kaupmáttur, sem sé hvergi lakari en skv. kjarasamningi BSRB í desember 1973 í endanlegri mynd hans. 2. Samið verði um verulegar kjara- og launabætur, sem lyfti launakjörum upp af núverandi láglaunastigi. 3. Full verðtrygging verði tekin upp á laun samkvæmt óskertri framfærsluvisitölu. 4. Leiðrétt verði launamisræmi, sem orsakast af þvi að opinberir aðilar neita starfshópum innan BSRB um sam- bærileg kjör og ríkið semur um við hliðstæða starfshópa utan samtaka opinberra starfsmanna." i lok næsta mánaðar verður síðan þing Alþýðusam- bands íslands haldið. Ljóst er, að þar verður mörkuð stefna í kjaramálum félagsmanna ASi, a.m.k. í höf uðat- riðum. Mikilvægt er að stefna þessara tveggja höfuð- samtaka launþega í landinu fari í meginatriðum saman, og aðsem nánast samstarf verði á milli þeirra um kjara- baráttuna. Það er þegar Ijóst, að baráttan á næsta ári verður hörð, og þess vegna er mjög mikilvægt, að sam- staða og eining launþega sé sem mest. —EJ. Styrkir til háskólanáms í Danmörku Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa islend- ingum til háskólanáms i Danmörku námsáriö 1977-78. Einn styrkjanna er einkum ætlaður kandidat eða stúdent, sem leggur stund á danska tungu, danskar bókmenntir eða sögu Danmerkur og annar er ætlaöur kennara til náms við Kennaraháskóla Danmerkur. Allir styrkirnir eru miðaðir við 8 mánaða námsdvöl en til greina kemur aö skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er áætluö um 2.059,- danskar krónur á mánúði. Umsóknum um styrki þessa skal komiö til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. desemb- er n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráöuneytinu Menntamálaráðuneytið, 15. október 1976. ELIAS SNÆLAND JÓNSSON: Samtökin og samþykkt framkvæmdas ijómar Eftir samþykkt framkvæmdastjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna fyrr i þessum mánuði, hafa tvær spurningar einkum verið lagðar fyrir þá, sem að samþykktinni stóðu. Hvers vegna var gripið til þessarar aðgerðar? Hvað þýðir þessi samþykkt i raun og veru? Það virðist fara nokkuð eftir þvi,hvererspurður,hvaða svör eru gefin við þessum spurning- um, eins og reyndar kemur fram i þessu eintaki Nýrra Þjóðmála. Ég tel mér þvi rétt og skylt að greina i fáeinum orðum frá afstöðu minni til málsins. Staðan innan SFV sið- ari hluta september Ræða mætti i löngu máli um starfsemi og baráttu Samtaka- fólks á undanförnum árum, um vonir og vonbrigði þeirra, sem haslað hafa sér völl innan Samtakanna, og um orsakir þeirrar þróunar, sem orðið hef- ur innan þeirra siðustu misser- in. Þaðmun ég hins vegar ekki gera hér, enda kann að gefast til þess tækifæri siðar. Það fór hins vegar ekki á milli máia, aðsiðari hluta september s.l., þ.e. eftir kjördæmisráð- stefnu' Samtakafólks á Vest- fjörðum, voru þrjú ósættanleg sjónarmið uppi innan Samtak- anna. i fyrsta lagi sú stefna, sem Samtakamenn á Vestfjörðum mörkuðu, að leggja ætti SFV niður sem landssamtök og kanna vilja Alþýðuflokksins til sameiningar á Vestfjörðum. i öðru lagi sú skoðun sumra forystumanna, að rétt væri að leggja SFV niður og ganga til liðs við Alþýðubandalagið. i þriðja lagi sú óbreytta af- staða margra, að eðlilegt og nauðsynlegt væri að Samtökin héldu áfram störfum sem stjórnmálaflokkur. Talsmenn þessara þriggja sjónarmiða höfðu þá þegar gert endanlega upp hug sinn, og Ijóst varð, að engin von var til þess, að frekari umræður breyttu á nckkurn hátt afstöðu þeirra. Hér skal ekkert um það sagt, hversu stór hver hópur er, hvort sem stærð þeirra er miðuð við virka félagsmenn i Samtökun- um eða almenna stuðnings- menn. Það mun reynslan væntaniega skera úr um. Hitt var ljóst, að afstaða hvers hóps um sig var svo eindregin, að leiðir hlutu að skilja. Enginn var þess umkominn að koma i veg fyrir það. Spurningin var þá með hvaða hætti og hvenær þáð myndi ger- ast. Klofningur á landsfundi? Ljóst var, af þessum sökum, að ef áður boðaður landsfundur yrði haldinn i lok október, myndi hann leiða til klofnings Samtakanna. Þess vegna var gerð tilraun til að fá fundinum frestað um tima, en meirihluti var ekki fyrir þvi i fram- kvæmdastjórn. Um mánaðarmótin septem- ber/október lá þvi fyrir að landsfundurinn yrði haldinn, og að á honum yrði að taka afstöðu til tillögu Samtakanna á Vest- fjörðum, um að Samtökin yrðu lögð niður sem iandssamtök. Augljóst var, að ef sú tillaga yrði samþykkt, væru SFV úr sögunni sem landssamtök, en einnig var ljóst, að ef hún yrði felld, myndu Samtakamenn á Vestfjörðum væntanlega segja skilið við landssamtökin i sam- ræmi við markaða stefnu sina. Það blasti þvi við þeim, sem vildu halda Samtökunum gang- andi, að hvað svo sem þeir gerðu á landsfundi myndu Samtökin splundrast. Þessi staða gerði það að verkum, að margir létu i ljós þá skoðun, að ast.réttast væri að mæta ekki til landsfundar. Það var þvi mat manna á þessum tima, að væntanlegur landsfundur yrði fámennur. Og alla vega var ljóst, að á honum yrðu harðvit- ug átök, sem samt sem áður myndu litlu breyta um gang mála. Við þessar aðstæður kom fram hugmyndin um þá samþykkt, sem að lokum varð gerð. Ljóst er, að margir sam- þykktu þá leið eingöngu vegna þess, að þeir töldu hana skársta kostinn af slæmum kostum, einkum vegna þess, að hún gæfi möguleika á, að leiðir skyldu án harðvitugra átaka. H v a ð þý ð i r samþykktin? Og hvað þýðir þá þessi sam- þykkt? Eins og hún ber með sér, þýð- irhún að framkvæmdastjórn af- lýsir áður auglýstum lands- fundi, leggurniður störf og felur þingflokki meðferð þeirra sam eiginlegu verkefna, sem hún hefði annars fjallað um. Þetta er inntak samþykktarinnar. Annað ekki. ORÐSENDING FRÁ RITSTJÓRA Eins og flestum mun kunnugt, hefur starfsfólki Samtakanna verið sagt upp störfum frá 1. október s.I. Uppsagnarfrestur starfsfólks er þrir mánuðir, og mun það þvi i sfðasta lagi láta af störfum um áramót, en hugsan- lega eitthvað fyrr. Mér þykir rétt að nota þetta tækifgri til þess að þakka öllum þcim, sem með skrifum og annarri vinnu hafa stuðlað að útgáfu blaðsins á liðnum árum. Einnig vil ég færa þcim fjöl- mörgu, vfða um land, sem lagt hafa á sig mikið starf við að gera árangur af fjáröflun Samtakanna i sumar sem bestan, þakkir fyrir fórnfýsi og mjög ánægjulegt samstarf. Elias Snæiand Jónsson Það er þvi ljóst, að sam- þykktin sein slik þýðir ekki að Samtökin hafi verið lögð niður sem stjórnmála flokkur, enda er slikt ekki á valdi framkvæmda- stjórnar. Lög Samtakanna eru að sjálfsögðu enn i gildi. Þeir aðilar, sem kjörnir voru i trún- aðarstöður á siðasta landsfundi (m.a. i flokksstjórn), og hafa ekki lagt þau störf niður, gegna þeim að sjálfsögðu enn. Menn geta svo auðvitað velt þvi fyrir sér, hvort þessi sam- þykkt muni i reynd leiða til þess i framtiðinni, að Samtökin logn- ist útaf sem stjórnmálaflokkur. Svarið við þeirri spurningu ler auðvitað fyrst og fremst eftir þvi, hvað þeir. sem vilja halda áfram starfi Samtakanna sem stjórnmálaflokks. gera á næstu misserum. Enn hefur ekkert komið fram, sem gefur til kynna, að þeir hyggist leggja árar i bát. Hörmuleg þróun. Hér að framan hef ég mjög ituttlega gert grein fyrir áliti •ninu á þvi, hvers vegna sam- pykkt framkvæmdastjórnar var gerð og hvað hún þýðir i reynd. Ég sé ekki ástæðu til að leyna pvi, að það eru mér mikil von- Drigði að svo skuli komið fyrir Samtökunum, sem raun ber vitni' Þóun innri mála Samtak- anna siðustu misserin hefur vissulega ekki verið i samræmi við þær vonir, sem ég og margir fleiri höfðu bundið við Samtök- in. Ég hef verið þeirrar skoðunar, að Samtökin hefðu hlutverki að gegna i islenskum stjórnmálum, og að þau gætu hæglega gegnt þvi hlutverki ef þau sýndu samstöðu og hikleysi. Á landsfundi samtakanna 1974, þegar þeir. sem stóðu að F- listanum i siðustu alþingis- kosningum sameinuðust i eina skipulagsheild. var sú skoðun rikjandi, að Samtökin hefðu veigamiklu hlutverki að gegna, og þá rikti einnig. þrátt fyrir úr- slit kosninganna. bjartsýni um að þau væru fær um að gegna þvi hlutverki. Nú hafa hins vegar sumir misst trúna, og ákveðið að hasla sér völl annars staðar. Spurningin er þvi ein- faldlega sú, hvor.t þeir atburðir séu svo alvarlegir. að Samtökin séu ekki lengur fær um að gegna ætlunarverki sinu. Það Samtakafólk. sem telur sig ekki eiga heima i neinum öðrum st jórnmálaflokki en Samtökunum. mun að sjálf- sögðu gefa svar við þeirri spurningn á næstu mánuðum. Þá mun koma i ljós. hvort þeir hafa þann dugnað og bar- áttuvilja. sem þarf til að halda áfram starfsemi Samtakanna sem stjórnmálaflokks á næstu árum Fyrirspum Karvel Pálmason, formaður þingflokks Saintaka frjáls- lyndra og vinstri manna, hefur lagt fram fyrirspurn til fjár- málaráðherra um framkvæmd skattalaga. Fyrirspurnin er svohljóðandi: „1. Eru i gildi samræindar reglur milli skattaumdæma um framkvæmd skattalaga? 2. Ef svo er, liggja þá fyrir upp- lýsingar um, hvort framkvæmd slikra reglna er með sama hætti i öllum skattaumdæmum lands- ins, þannig að Ijóst sé, hvort a 11- ir skattþegnar sitji við sama borð varðandi framkvæmdina, t.d. að þvi er varðar frádrátt vegna viðhalds ibúðarhúsnæðis svo dæmi sé nefnt? 'i'. Ef slikar reglur eru til, eru þær þá heimilar almenningi til upplýsinga?”.

x

Ný þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.