Ný þjóðmál - 22.10.1976, Side 7
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976
7
NÝ ÞJÓÐMÁL
HÖSKULDUR
EGILSSON:
Samtökin
lifa enn
í helgarblaöi Þjóöviljans (17.
okt.) skrifar ritstjórinn,
Kjartan Ólafsson, hugleiðingu
um valkosti og vanda vinstri
manna. Hugleiðing hans
hefst á þessum orðum:
,,bau tiðindi gerðust nú i
vikunni,sem var að liða, að einn
þeirra fimm stjórn.álaflokka,
sem fengu fulltrúa kjörna á
alþingi i siðustu kosningum var
leystur upp”.
Það gat vitanlega ekki ekki
hjá þvi farið að jafn greindur og
flugnæmur maður og Kjartan
Ólafsson, tileinkaði sér ekki þá
aðferð, sem reynst hefur
mörgum starfsbræðrum hans
vel, það er að ef ósannindin eru
endurtekin nógu oft, fari fólk að
trúa þeim. bá mun hann þekkja
sina kjósendur á Vestfjörðum
og vita hvaða blaðamennska
muni falla best i þeirra kram,
en þar mun hann nú eygja
þingsæti, einkum ef svo vel
skyldi fara (fyrir Kjartan) að
Karvel sameinaöist Alþýðu-
flokknum.
Ég ætla ekki að fara að spá
neinu um lifdaga Samtakanna,
hvort þeir verði margir eða fáir,
og auðvitað er Kjartani Ólafs-
syni frjálst að hafa sina skoðun
á þvi, en staðreyndin er sú i dag,
að Samtökin hafa ekki verið
lögð niður, hvorki sem flokkur
eða á landsmælikvaröa, hvort
sem Kjartani likar betur eða ver
eða mundi hann telja, að
nokkrir menn úr framkvæmda-
stjórn Alþýðubandalagsins gætu
lagt hann niöur sem stjórn-
málaflokk, ef þeim biði svo við
að horfa?. Nei, þetta er ekki
svona einfalt, Kjartan minn. Þú
veist jafn vel og ég, að það, sem
gerðist, var það, að
framkvæmdastjórnin og aðeins
hún var lögð niður, þar sem hún
virtist litt starfhæf um stefnu-
mörkun, en störf hennar falin
þingflokki og félagseiningum.
Eftir stendir flokksstjórn og
þingflokkur og sú staðreynd að
Samtökunum verður ekki slitið
nema á landsfundi. Hvernig mál
þróast verður timinn úr aö
skera. Ef til vill verður þaö þér i
hag, Kjartan. Ef ekki, verður þú
að taka þvi eins og maður, en
ekki slá um þig meö
ósannindum og blekkingum,
sem þér er enginn sómi að.
Hitt er svo annað mál að sá
sem hefur gefiö þér tilefnið og
tóninn, er væntanlega enginn
annar en fyrrverandi formaður
framkvæmdastjórnar Samtak-
anna sem senn er aö skjóta upp
á stjörnuhiminn i flokki þinum,
en svo viröist, sem hann hafi
beitt öllum ráöum til þess. aö
fyrrverandi samherjar hans
ættu sem erfiðast meö að halda
áfram starfi fyrir Samtökin.
Vissulega er það mikil blóðtaka
fyrir Samtökin að missa þriðja
doktorinn á stuttum tima, þar
sem er Ólafur Ragnar Grims-
son, en hinsvegar er það
skiljanlegt, að maður sem telur
sig þess umkominn aö leggja
niður stjórnmálaflokk með einu
pennastriki.finnist litiö olnboga-
rými i litlum flokki eins og sam-
tökunum, en vilji fremur ganga
um sali þar sem hærra er til
lofts og viðara til veggja. Eng-
inn efast um sjálfsákvöröunar-
rétt ólafs til að yfirgefa sam-
tökin, en persónulega finnst mér
viss óhugnaöur við undirbún-
inginn að þeim brottflutningi.
Auglýsing
um skoðun léttra b’rfhjóla
í lögsagnarumdœmi Reykjavíkur
Mánudaginn 1. nóvember R-1 til R-150
Þriðjudaginn 2. nóvember R-151 til R-300
Miðvikudaginn 3. nóvember R-301 til R-450
Fimmtudaginn 4. nóvember R-451 til R-600
Föstudaginn 5. nóvember R-601 og þar yfir.
Skoðunin verður framkvæmd fyrr-
nefnda daga við bifreiðaeftirlitið aö
Borgartúni 7, kl. 08.00 til 16.00.
Sýna ber við skoðun, að lögboöin
vátrygging sé í gildi. Tryggingargjald
ökumanns og skoðunargjald ber að
greiða við skoðun.
Skoðun hjóla, sem eru í notkun í borg-
inni, en skrásett eru í öðrum
umdæmum, fer fram fyrrnefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu
til skoðunar umrædda daga, verður
hann látinn sæta sektum samkvæmt
umferðarlögum og hjólið tekið úr
umferð hvar sem til þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga
að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 19. október
1976.
Sigurjón Sigurðsson.
Styrkir til háskóla-
náms í Noregi
Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum
sem aðild eiga að Evrópuráöinu fjóra styrki til háskóla-
náms i Noregi háskólaáriö 1977-78. — Ekki er vitaö fyrir-
fram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut ís-
lendinga. —Styrkir þessir eru eingöngu ætlaöir til fram-
haldsnáms viö háskóla og eru veittir tifnfu mánaöa náms-
dvalar. Styrkfjárhæöin er 2.200.- n.kr. á mánuöi, auk allt
að 1.500,- n.kr. til nauðsynlegs feröakostnaðar innan
Noregs.
Umsækjendur skulu hafa góöa þekkingu á norsku eöa
ensku og hafa lokiö háskólaprófi áöur en styrktlmabil
hefst. Æskilegt er aö umsækjendur séu eigi eldri en 40 ára
Umsóknir um styrki þessa skuiu sendar til:
Utenriksdepartementet
Kontoret for kulterelt samkvem med utlandet
Stipendieseksjonen
N-Óslo-Dep., Norge.
fyrir 1. aprfl 1977 og lætur sú stofnun í té frekari upp-
lýsingar.
Menntamálaráöuneytið,
29. september 1976.
Rafmagnsveitur ríkisins
óska að ráða nú þegar manneskju til skrif-
stofustarfa og simavörzlu hálfan daginn.
Verzlunarskóla eða hliðstæð menntun
æskileg.
Upplýsingar um starfið gefur starfs-
mannastjóri.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik.
Auglýsing frá Land-
búnaðarráðuneytinu
Þar sem hætta er talin á, aö sóttnæmi geti borizt meö
reiötygjum, sem notuö hafa veriö erlendis, er hér meö,
skv. heimild i 3. gr. laga nr. 11/1928, lagt bann viö inn-
flutningi á hvers konar búnaöi, sem notaöur hefur
veriö á hesta erlendis.
Reykjavlk 23. september 1976.
Styrkir
til að sækja þýskunámskeið í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráöið I Reykjavik hefur tilkynnt islenskum
stjórnvöldum aö boönir séu fram nokkrir styrkir til handa
islenskum stúdentum til aösækja tveggja mánaöa þýsku-
námskeið i Sambandslýðveldinu Þýskalandi á vegum
Goethe-stofnunarinnar á timabilinu júni-október 1977.
Styrkirnir taka til dvalarkostnaðar og kennslugjalda, auk
600 marka ferðastyrks. Umsækjendur skulu vera á
aldrinum 19-32 ára og hafa lokiö a.m.k. tveggja ára há-
skólanámi. Þeir skulu hafa til að bera góöa undirstöðu-
kunnáttu i þýskri tungu.
Umsóknum um styrki þessa skal komiö til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15.
nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyöublöö fás't i ráðu-
neytinu.
Menntamálaráöuneytiö,
29. september 1976.
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir septem-
bermánuð 1976, hafi hann ekki verið
greiddur i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag
eftir eindaga uns þau eru orðin 10% en
siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar
fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið
20. október 1976
Styrkir til háskóla-
náms í Sambands-
lýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráöiö f Reykjavik hefur tilkynnt islenskum
stjórnvöldum aö boðnir séu fram þrir styrkir handa Is-
lenskum námsmönnum til háskólanáms I Sambandslýö-
veldinu Þýskalandi háskólaáriö 1977-78. Styrkirnir nema
650 þýzkum mörkum á mánuöi hiö lægsta auk 100 marka á
námsmisseri til bókakaupa, en auk þess eru styrkþegar
undanþegnir skólagjöldum og fá feröakostnaö greiddan aö
nokkru. Styrktimabiliö er 10 mánuðir frá 1. október 1977
aö telja en framlenging kemur til greina aö fulinægöum
ákveönum skilyröum.
Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 32 ára. Þeir skulu
hafa lokiö a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
Umsóknir, ásamt tilskildum fylgigögnum, skulu hafa bor
ist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik,
fyrir 15.nóvember nk. — Sérstök umsóknareyöublöö fást I
ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
29. september 1976.
Ferskfisksmatsmaður
óskast til starfa i Reykjavik. Laun sam-
kvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir er tilgreini m.a. menntun og
fyrri störf sendist stofnuninni fyrir n.k.
mánaðarmót.
Framleiðslueftirlit sjávarafurða,
Hátúni 4 a.
Lausar stöður
Laus er til umsóknar staða læknis við
heilsugæzlustöð á Þingeyri og staða
læknis við heilsugæzlustöð á Þórshöfn.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu eigi siðar en
27. október 1976.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
29. september 1976.