Ný þjóðmál - 22.10.1976, Blaðsíða 7

Ný þjóðmál - 22.10.1976, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1976 7 NÝ ÞJÓÐMÁL HÖSKULDUR EGILSSON: Samtökin lifa enn í helgarblaöi Þjóöviljans (17. okt.) skrifar ritstjórinn, Kjartan Ólafsson, hugleiðingu um valkosti og vanda vinstri manna. Hugleiðing hans hefst á þessum orðum: ,,bau tiðindi gerðust nú i vikunni,sem var að liða, að einn þeirra fimm stjórn.álaflokka, sem fengu fulltrúa kjörna á alþingi i siðustu kosningum var leystur upp”. Það gat vitanlega ekki ekki hjá þvi farið að jafn greindur og flugnæmur maður og Kjartan Ólafsson, tileinkaði sér ekki þá aðferð, sem reynst hefur mörgum starfsbræðrum hans vel, það er að ef ósannindin eru endurtekin nógu oft, fari fólk að trúa þeim. bá mun hann þekkja sina kjósendur á Vestfjörðum og vita hvaða blaðamennska muni falla best i þeirra kram, en þar mun hann nú eygja þingsæti, einkum ef svo vel skyldi fara (fyrir Kjartan) að Karvel sameinaöist Alþýðu- flokknum. Ég ætla ekki að fara að spá neinu um lifdaga Samtakanna, hvort þeir verði margir eða fáir, og auðvitað er Kjartani Ólafs- syni frjálst að hafa sina skoðun á þvi, en staðreyndin er sú i dag, að Samtökin hafa ekki verið lögð niður, hvorki sem flokkur eða á landsmælikvaröa, hvort sem Kjartani likar betur eða ver eða mundi hann telja, að nokkrir menn úr framkvæmda- stjórn Alþýðubandalagsins gætu lagt hann niöur sem stjórn- málaflokk, ef þeim biði svo við að horfa?. Nei, þetta er ekki svona einfalt, Kjartan minn. Þú veist jafn vel og ég, að það, sem gerðist, var það, að framkvæmdastjórnin og aðeins hún var lögð niður, þar sem hún virtist litt starfhæf um stefnu- mörkun, en störf hennar falin þingflokki og félagseiningum. Eftir stendir flokksstjórn og þingflokkur og sú staðreynd að Samtökunum verður ekki slitið nema á landsfundi. Hvernig mál þróast verður timinn úr aö skera. Ef til vill verður þaö þér i hag, Kjartan. Ef ekki, verður þú að taka þvi eins og maður, en ekki slá um þig meö ósannindum og blekkingum, sem þér er enginn sómi að. Hitt er svo annað mál að sá sem hefur gefiö þér tilefnið og tóninn, er væntanlega enginn annar en fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar Samtak- anna sem senn er aö skjóta upp á stjörnuhiminn i flokki þinum, en svo viröist, sem hann hafi beitt öllum ráöum til þess. aö fyrrverandi samherjar hans ættu sem erfiðast meö að halda áfram starfi fyrir Samtökin. Vissulega er það mikil blóðtaka fyrir Samtökin að missa þriðja doktorinn á stuttum tima, þar sem er Ólafur Ragnar Grims- son, en hinsvegar er það skiljanlegt, að maður sem telur sig þess umkominn aö leggja niður stjórnmálaflokk með einu pennastriki.finnist litiö olnboga- rými i litlum flokki eins og sam- tökunum, en vilji fremur ganga um sali þar sem hærra er til lofts og viðara til veggja. Eng- inn efast um sjálfsákvöröunar- rétt ólafs til að yfirgefa sam- tökin, en persónulega finnst mér viss óhugnaöur við undirbún- inginn að þeim brottflutningi. Auglýsing um skoðun léttra b’rfhjóla í lögsagnarumdœmi Reykjavíkur Mánudaginn 1. nóvember R-1 til R-150 Þriðjudaginn 2. nóvember R-151 til R-300 Miðvikudaginn 3. nóvember R-301 til R-450 Fimmtudaginn 4. nóvember R-451 til R-600 Föstudaginn 5. nóvember R-601 og þar yfir. Skoðunin verður framkvæmd fyrr- nefnda daga við bifreiðaeftirlitið aö Borgartúni 7, kl. 08.00 til 16.00. Sýna ber við skoðun, að lögboöin vátrygging sé í gildi. Tryggingargjald ökumanns og skoðunargjald ber að greiða við skoðun. Skoðun hjóla, sem eru í notkun í borg- inni, en skrásett eru í öðrum umdæmum, fer fram fyrrnefnda daga. Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 19. október 1976. Sigurjón Sigurðsson. Styrkir til háskóla- náms í Noregi Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráöinu fjóra styrki til háskóla- náms i Noregi háskólaáriö 1977-78. — Ekki er vitaö fyrir- fram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut ís- lendinga. —Styrkir þessir eru eingöngu ætlaöir til fram- haldsnáms viö háskóla og eru veittir tifnfu mánaöa náms- dvalar. Styrkfjárhæöin er 2.200.- n.kr. á mánuöi, auk allt að 1.500,- n.kr. til nauðsynlegs feröakostnaðar innan Noregs. Umsækjendur skulu hafa góöa þekkingu á norsku eöa ensku og hafa lokiö háskólaprófi áöur en styrktlmabil hefst. Æskilegt er aö umsækjendur séu eigi eldri en 40 ára Umsóknir um styrki þessa skuiu sendar til: Utenriksdepartementet Kontoret for kulterelt samkvem med utlandet Stipendieseksjonen N-Óslo-Dep., Norge. fyrir 1. aprfl 1977 og lætur sú stofnun í té frekari upp- lýsingar. Menntamálaráöuneytið, 29. september 1976. Rafmagnsveitur ríkisins óska að ráða nú þegar manneskju til skrif- stofustarfa og simavörzlu hálfan daginn. Verzlunarskóla eða hliðstæð menntun æskileg. Upplýsingar um starfið gefur starfs- mannastjóri. Rafmagnsveitur rikisins Laugavegi 116 Reykjavik. Auglýsing frá Land- búnaðarráðuneytinu Þar sem hætta er talin á, aö sóttnæmi geti borizt meö reiötygjum, sem notuö hafa veriö erlendis, er hér meö, skv. heimild i 3. gr. laga nr. 11/1928, lagt bann viö inn- flutningi á hvers konar búnaöi, sem notaöur hefur veriö á hesta erlendis. Reykjavlk 23. september 1976. Styrkir til að sækja þýskunámskeið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi Þýska sendiráöið I Reykjavik hefur tilkynnt islenskum stjórnvöldum aö boönir séu fram nokkrir styrkir til handa islenskum stúdentum til aösækja tveggja mánaöa þýsku- námskeið i Sambandslýðveldinu Þýskalandi á vegum Goethe-stofnunarinnar á timabilinu júni-október 1977. Styrkirnir taka til dvalarkostnaðar og kennslugjalda, auk 600 marka ferðastyrks. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 19-32 ára og hafa lokiö a.m.k. tveggja ára há- skólanámi. Þeir skulu hafa til að bera góöa undirstöðu- kunnáttu i þýskri tungu. Umsóknum um styrki þessa skal komiö til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyöublöö fás't i ráðu- neytinu. Menntamálaráöuneytiö, 29. september 1976. SÖLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir septem- bermánuð 1976, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 10% en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið 20. október 1976 Styrkir til háskóla- náms í Sambands- lýðveldinu Þýskalandi Þýska sendiráöiö f Reykjavik hefur tilkynnt islenskum stjórnvöldum aö boðnir séu fram þrir styrkir handa Is- lenskum námsmönnum til háskólanáms I Sambandslýö- veldinu Þýskalandi háskólaáriö 1977-78. Styrkirnir nema 650 þýzkum mörkum á mánuöi hiö lægsta auk 100 marka á námsmisseri til bókakaupa, en auk þess eru styrkþegar undanþegnir skólagjöldum og fá feröakostnaö greiddan aö nokkru. Styrktimabiliö er 10 mánuðir frá 1. október 1977 aö telja en framlenging kemur til greina aö fulinægöum ákveönum skilyröum. Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 32 ára. Þeir skulu hafa lokiö a.m.k. tveggja ára háskólanámi. Umsóknir, ásamt tilskildum fylgigögnum, skulu hafa bor ist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15.nóvember nk. — Sérstök umsóknareyöublöö fást I ráöuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 29. september 1976. Ferskfisksmatsmaður óskast til starfa i Reykjavik. Laun sam- kvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir er tilgreini m.a. menntun og fyrri störf sendist stofnuninni fyrir n.k. mánaðarmót. Framleiðslueftirlit sjávarafurða, Hátúni 4 a. Lausar stöður Laus er til umsóknar staða læknis við heilsugæzlustöð á Þingeyri og staða læknis við heilsugæzlustöð á Þórshöfn. Umsóknir sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu eigi siðar en 27. október 1976. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 29. september 1976.

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.