Ný þjóðmál - 22.10.1976, Side 8

Ný þjóðmál - 22.10.1976, Side 8
MAGNÚS TORFI ÓLAFSSON: Að vera eða vera ekki Sainþykkt framkvæmda- stjórnar Samtakanna um aö sú stofnun leggi niöur störf og aö aflýsa landsfundi ber með sér aö hún er málamiðlun og liklega engum sem að henni stóöu fyili- lega aö skapi. Pessi kostur þótti illskárstur eins og komiö var, þegar ljóst var orðið aö inn- an framkvæmdastjórnar voru uppi ósættanicgar skoöanir á framtið Samtakanna. Fyrir lá aö á landsfundi yröi gerö tiilaga um að ákveöiö yrði aö þessi skyldi veröa hinn siö- asti sem Samtökin efndu til og engar kosningar eiga sér staö i stöður og stofnanir á þeirra veg- um, sem hefði þýtt aö Samtökin væru lögð niður. Skoöun min er aö meirihluti samtakafólks sé andvigur slikri ráðabreytni og tillaga i þessa átt heföi verið felld á landsfundi. En þar sem vitaö var aö þeir sem leggja vilja Samtökin niður heföu fariö sinu fram hvaö sem landsfund- ur ályktaði. var vandséö aö nokkuö væri unniö meö þvi aö efna til slikrar samkomu. Niöurstaöan i framkvæmda- stjórn varð að mcnn i>rðu þar sammála um aðslá föstu að þeir væru svo ósammáia um framtið Samtakanna aö sú stofnun gæti ekki lengur gegnt þvi hlutverki að móta heildarstcfnu fyrir þau, og þeim sem hverfa vilja af þeim starfsgrundvelli sem Samtökin hafa hingað til lagt var gefið það frjálst. Hins vegar er ljóst að þar meö eru Samtök- in siður en svo lögð niöur, hvað sem um það er básúnað i fyrir- sögnum blaöa annarra flokka. Bæði er. að framkvæmdastjórn hefur ekkert vald til slikrar ákvöröunar, og aörar stofnanir Samtakanna eru enn viö lýði, þótt framkvæmdastjórnin leggi Magnús T. Ólafsson niöur störf. Samtakafólki sem kýs að halda áfram störfum á sama skipulagsgrundvelli og hingaö til er þvi ekkert að van- búnaði. Illutverk Samtakanna i is- lenskum stjórnmálum hefur frá upphafi veriö tviþætt annars vegar er markmið þeirra aö stuðla að sameiningu vinstri afla i landinu i öfluga fylkingu. Þar að auki hafa þau safnaö um sig og gert virkt vinstra fylgi sem ella hefur ekki þau skilyrði sem þaö kýs til aö hafa áhrif á stjórnmálaþróun og valdahlut- föll á Alþingi. Eins og kosningaúrslit 1971 annars vegar og 1974 hins vegar sýna, hefur Samtökunum tekist misjafnlega að rækja þetta hlut- verk. En þaö er að minu áliti til- efnislaust og i hæsta máta ótimabært aö ætla aö fá þvi slegið föstu einmitt nú aö hlut- verki Samtakanna i islenskum stjórnmálum skuli lokiö. Leiöa má rök aö þvi, að þvert á móti sé nauösynlegt að Samtökin séu við þvi búin að leggja sitt sér- staka ióð á vogarskálina, ef hnekkja á fyrr en seinna þeirri hægri stefnu scm núverandi rikisstjórn fylgir. Okkur, sem teljum að svona sé inálum háttaö, þykir aö sjálfsögöu miður, að sumir þeirra scm um skeiö kusu að hasla sér völl innan Samtak- anna telja sig nú ekki eiga þar heima lengur. Með samþykkt Iramkvæmdastjórnar er þeim greidd leið til aö fara i friði, án þeirra illinda og átaka sem oft vilja fylgja, þegar leiðir skilur i stjórnmálum. Samtakafólk hefur nóg verk- efni fyrir höndum, og engin ástæöa er til aö eyða kröftum frekar en orðiö er i deilur um spurninguna: Að vera eöa vcra ekki. KARVEL PÁLMASON: Samþykkt framkvæmdastjórnar í samræmi við óskir Vestfirðinga Á undanförnum vikum og mánuðum hafa átt sér staö miklar umræður um framtiö Samtakanna. Þessar umræður hafa ekki bara farið fram meðal forystu- manna þeirra og stuöningsfólks, heldur hefur ekki sföur veriö rætt og ritaö um Samtökin og framtið þeirra af öörum, sem utan þeirra standa. Þó uröu þessar umræður fyrst afgerandi eftir aö kjördæmisráöstefna Samtakanna á Vestfjöröum haföi sent frá sér ályktun þess efnis, aö hún teldi, aö á landsfundi, sem halda átti nú i október, hlyti aö verða tekin afstaöa til þess, hvort Samtökin ættu aö starfa áfram eins og veriö hefur, eöa, eins og i ályktuninni segir, hvort leita beri nýrra leiða. Jafnframt var i þessari ályktun itrekaöar fyrri sam- þykktir Samtakanna á Vest- fjörðum um nauðsyn sameiningar jafnaöarmanna i einum flokki, og aö þau vildu fá úr þvi skoriö, hvorl Alþýöu- flokkurinn er reiöubúinn til sam starfs við Samtökin. Engum, sem fylgst hefur með stjórn- málum á undanförnum árum, hefði átt aö koma þessi afstaða okkar Vestfirðinga á óvart, þvi viö höfum á hverri kjördæmis- ráöstefnu itrekaö þessa stefnu okkar. A kjördæmisráöstefnunni á Núpi i haust voru þessi mál rædd mikið, enda má segja, aö þetta mál hafi verið annaö aöalmál ráöstefnunnar. Viö töldum hinsvegar rétt aö biöa til landsfundar meö aö gera frekari grein fyrir afstööu okkar til áframhaldandi starfs Samtakanna. Viö töldum landsfund þann vettvang, sem eölilegast væri aö málinu væri fyrst gerö skil. Ég hef aö sjáif- sögöu gert grein fyrir afstööu okkar Vestfirðinga á fundum framkvæmdastjórnar Samtak- anna, og þaö má segja, að sú leið, sem nú hefur verið valin og samþykkt einróma af fram- kvæmdastjórn, sé sú, sem við Vestfirðingar töldum aö réttast væri aö fara eins og mál stæöu, þó aö viö á kjördæmisráðstefn- Karvel Pálmason. unni geröum ráö fyrir, aö um málið yröi fjallað á landsfundi. En með þeirri ályktun, sem samþykkt var af framkvæmda- stjórn, þá er það ljóst, að hún leggur niður störf og jafnframt, að engin sameiginleg stefnu- mótun cr fyrir hendi, og i áframhaldi af þvi er hverri einingu flokksins, þingflokki, kjördæmasamböndum, flokks- félögum og einstaklingum fengið i hendur að ákveöa meö hvaða hætti hver þessara eininga um sig telur æskilegast aö vinna i anda upprunalegs markmiös Samtakanna, þaö er sameining lýöræöissinnaöra jafnaðar- og samvinnumanna í einum flokki. Þaö er nauð- synlegt i þessu sambandi aö hafa I huga, að Samtökunum var ekki ætlaö aö vera til langframa fimmti varanlegi stjórnmálaflokkurinn i landinu. Og það er min skoöun, að affarasælast sé aö horfast i augu við þá staöreynd, aö upprunalegum markmiðum, sem Samtökin settu sér, hefur ekki verið náð. Þaö getur veriö erfitt aö viöurkenna slikt, en min skoðun er, aö allra hluta vegna sé nauösynlegt aö gera sér grein fyrir þvi og viöurkenna. Sú leið, sem nú hefur verið valin, er samkomulagsleiö, sem ætti að koma i veg fyrir að efnt sé til átaka til þcss eins að full- nægja formlegu hliö þessara ákvaröana. Ég tel að þeir forystumenn Samtakanna, sem aö ályktuninni standa, séu menn aö meiri, því þeir hafa sýnt, aö þrátt fyrir ágreining um leiöir að settu marki, hefur þeim tekist að finna leið, sem gefur þeim sjónarmiðum, sem helst hafa komið upp innan Samtakanna, möguleika á aö finna vettvang, sem hver og einn telur best viö hæfi i baráttu að settu marki. Hér ætti aö vera stýrt framhjá þeim skerjum, sem oftast hafa orðið ásteitingsste i nn forystumanna, sértstaklega á vinstri væng stjórnmálanna, það er að efna til uppþota vegna ágreinings þó fyrirsjáanlegt sé, aö slikt hafi illt eitt i för meö sér og þjóni þeim einum tiigangi aö vera vatn á myllu and- stæðinganna 465nefndir árið1975kostuðu 123 mdb'ónir Birt hefur veriö hin árlega skýrsla um stjórnir, nefndir og ráö á vegum rikisins, og er hún fyrir áriö 1975. Þar kemur fram, aö þaö ár voru 465 nefndir starf- andi. Heildarfjöldi nefndar- manna var 2.340, en heildar- kostnaöur viö nefndirnar rúm- lega 123 milljónir króna. Hér er birt yfirlit yfir fjöiida- nefnda og nefndarmanna áriö 1975 ásamt kostnaði, og er þeim skift eftir ráðuneytum. Vekja má athygli á þeirri staðreynd, að þótt nefndir séu næst flestar hjá iðnaðarráöu- neytinu, 58, þá er kostnaöurinn viö þær 58 nefndir næstum þvi jafn mikill og kostnaðurinn við 150 nefndir menntamálaráðu- neytisins. Mjög er misjafnt hvað ein- staklingar hafa miklar auka- tekjur vegna setu i nefndum á vegum rikisins. Séu hins vegar laun og þóknun vegna nefndar- starfa tekin saman, mun Guð- mundur Skaftason, lögfræðing- ur, eiga metið með um 1.3 milljónir króna. Ýmsir fá hátt i milljón fyrir nefndastörf, svo sem Jóhannes Nordal, Seöla- bankastjóri, Egill Sigurgeirs- son, hæstaréttarlögmaður, Guð- laugur Þorvaldsson, háskóla- rektor og ýmsir fleiri. Heildarfjöldi nefnda 1975 Heildarfjöldi nefndarmanna Nefndaþóknun kr. Annar kostnaöur kr. Kostnaöur samtals kr. Forsætisráöuneytiö 20 110 5.565.140 860.219 6.425.359 Menntamálaráöuneytiö 150 710 19.280.717 2.980.609 22.261.326 Utanríkisráöuneytiö 6 22 1.485.959 272.668 1.758.627 Landbúnaöarráöuneytiö 22 107 4.861.599 2.192.744 7.054.343 Sj ávarútvegsráöuneytiö 25 183 11.270.270 748.067 12.018.337 Dóms- og kirkjumálaráöuneytiö 45 231 5.784.609 1.035.404 6.820.013 Félagsmálaráöuneytiö 21 116 7.654.049 1.359.000 9.013.049 HeilbrigÖis- og tryggingamálaráöun. 43 211 9.454.497 3.238.350 12.692.847 Fjármálaráöuneytiö 28 131 11.663.980 1.080.453 12.744.433 Samgönguráöuneytiö 28 142 4.527.444 100.232 4.627.676 Iönaöarráöuneytiö 58 273 14.362.872 5.544.022 19.906.894 Viöskiptaráöuneytiö 11 70 4.756.654 - 4.756.654 Hagstofa Islands 1 4 245.560 - 245.560 Fjárroálaráöun-7 fjárl. og> hagsýslust. 7 30 1.784.000 1.348.453 3.132.453

x

Ný þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.