Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 1

Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 1
t Kvennafrí HEPPNAÐIST Glæsilegur útifundur kvenna var haldinn á Lækjartorgi í gær. Svo þúsundum skipti yfirgáfu konur vinnu- staði sína heima og heiman til að standa saman að kröfunni um launa- jafnrétti í reynd og til að minna á hversu ómissandi þær eru atvinnulíf- inu og samfélaginu öllu. Konur um allt landið gerðu slikt hið sama. Fundarstjóri á fundinum var Guðríð- ur Eliasdóttir, varaformaður Alþýðu- sambands Islands, en ræðumenn voru Guðrún Ámadóttir meinatæknir, Hildur Kjartansdóttir iðnverkakona, Málhildur Sigurbjörnsdóttir fisk- vinnslukona, Þóra Kristín Jónsdóttir kennari og Margrét Guðmur Isdóttir flugfreyja. Söngkonurnar Bergþóra Ámadóttir og Guðrún Hólmgeirsdóttir komu fram og Þórunn Björnsdóttir stjómaði fjöldasöng. Einnig var flutt- ur leikþáttur eftir Helgu Thorberg. Að fundinum loknum streymdu konur í Kvennasmiðju sem var opnuð fyrr um daginn. Eins og nærri má geta var margt kvenna á ferli og óhætt að taka undir þau orð sem fleyg voru í borg- inni aö nú yrði síst látiö deigan siga þó svo Kvennaáratugur væri senn á enda runninn. „Konur geta gert næstu ára- tugi að sinum þó svo Sameinuöu þjóðimar hafi ekki gefið út yfirlýsingu umþað!” Geysilegur fjöldi kvenna var á úti- fundinum í gœr. Giskafl er á afl um 18 þúsund manns hafi verifl samankominn þarna. Samstafla íslenskra kvenna hefur aftur vakið heimsathygli. -ÞG/Kvennasmifljumynd: GVA AFTUR

x

Kvennasmiðjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennasmiðjan
https://timarit.is/publication/568

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.