Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 4

Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 4
Kvennamessan Or bás númer 2, nánar tiltekið frá prestunum, berast þau tíðindi að á mánudagskvöldið kemur verði sung- in kvöldmessa í Hallgrímskirkju og verður messan flutt á nýstárlegan máta, en hún hefur verið undirbúin af starfshópi kvenna. Konur og karlar flytja hana ásamt öllum kirkjugestum og er með þessu verið að leitast við að túlka heföbundið messuform á nýjan máta. Til dæmis um leiðir til aö auðvelda leikum kirkjugestum að taka þátt, geta prestarnir þess að tónhæð hljóm- flutnings verði lækkaður, svo allir geti tekið betur undir í söngnum. Þessi sérstaka messa hefst kl. 21 en á undan verður söngæfing fyrir alltkirkjufólk sem hefst kl. 20.30. Fréttir af konum til Ástralíu Ohætt mun að segja að augu heims- ins hafi hvílt á íslenskum konum í gær. Erlendar fréttastofur fylgdust vel með aðdraganda dagsins og í fréttaskeyt- um þeirra er sagt frá verkfallinu og alveg sérstaklega frá undirskriftum alþingiskvennanna undir áskorun til okkar hinna um að fella niður vinnu og frá því að Vigdís hafi ákveðið að loka forsetaskrifstofunni til að sýna sam- stöðu með jafnréttisbaráttunni. Ekki allar fréttastofur voru svo vel undir búnar að ná þessum fréttum með fyrirvara, Þórunn Gestsdóttir var vakin kL 7 að morgni í gær af ástr- alskri útvarpsstöð, þegar umsjónar- k«ia þáttar hringdi til aö spyrjast fyrir um aðgeröir í tilefni dagsins. Virðist ljóst að dagurinn í gær hefur vakið dágóða athygli víða um heim og vonandi orðið öðrum hvatning líkt og hann var okkur hér. Fjölmenni var við opnum Kvennasmiðjunnar í gœrmorgun. Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir formaður Sóknar opnaði sýninguna formlega. Framkvœmdastjóri Kvenna- smiðjunnar Ragnheiður Harveg ávarpaði gesti og bauð velkomna. Jóhanna Sigurðardottir flutti ávarp fgrir hönd undirbúningsaðila. -ÞG/Kvennasmiðjumgnd: GVA -----Kvennasmiöjan- KJARABARÁTTA FLUGFREYJA Formaður Flugfreyjufélags Islands, Margrét Guðmundsdóttir, ávarpaði útifundinn á Lækjartorgi í gær og var það undirbúningshópurinn fyrir 24. október sem ákvað að bjóða henni sér- staklega að tala á fundinum vegna atburða síðustu daga. En svo bar við aðfaranótt 24. október að Aiþingi samþykkti lög til að stöðva verkfall flugfreyja og vísa kjaradeilu þeirra og Flugleiða til Kjaradóms. „Þessi dagur er helgaður kjarabar- áttu kvenna. Þaö er kaldhæðnislegt aö einmitt þá skuli kjarabarátta kvenna- stéttar vera brotin á bak aftur með þessum hætti og okkur þótti eðlilegt að formaður Flugfreyjufélagsins kæmi fram á útifundinum þess vegna,” sagði Álfheiður Ingadóttir úr undirbúnings- hópnum aðspurö. Nokkur fjöldi kvenna, sem var að leggja síöustu hönd á verk sín fyrir opnun sýningarinnar Kvennasmiðjan aðfaranótt 24. október, lagði niður vinnu til að fylgjast með umræðum um þessi mál á Alþingi og sýna flugfreyj- um samstöðu í baráttunni. TIL SKEMMTUNAR Hér á eftir fara skemmtidagskrár allra sýningardaganna lesendum til hægðarauka. Ekki þarf þó að taka fram að Kvennasmiðjan mun daglega birta dagskrá hvers dags fyrir sig. En fyrst, öll vikan: I kvöld, föstudag: Helga Thorberg og Rósa Þórisdóttir flytja efni sem þær kalla „Til hvers”. Laugardagur: Kl. 16 „Barnaspil”, tón- list flutt af börnum. Um kvöldið: Hljómleikar Sinfóníu- kvenna. Sunnudagur: Stjúpsystur skemmta. Því næst verður tískusýning frá versluninni Maríurnar. Mánudagur: Messa. Að lokinni mess- unni verða sýnd föt hönnuðanna Unnar og Þórdísar. Þriðjudagur: Breskur flautuleikur, ballet og söngur Kórs Kársnesskólans. Miðvikudagur: Atriöi úr Reykjavíkur- sögum Ástu, breskur flautuleikur og að honum leiknum veröur fluttur leikþátt- ur eftir Helgu Thorberg. Fimmtudagur: Svart og sykurlaust skemmtir og síðan verður sýning á föt- um eftir hönnuðinn Dóru Einarsdóttur. Kvölddagskrá hefst ævinlega kl. 20.30. Þessi dagskrá er birt með þeim fyrir- vara að enn fleira kann að verða á dag- skránni, en sem sagt, Kvennasmiðjan flytur fréttirnar jafnóðum. Góöa skemmtun! Dagurinn í dag er helgaöur heilbrigðisstéttunum, en þær eru í bás nr. 14. Eftírtaldar starfsgrf^jjpM^fr sínstörf og kjör: jljátrunarfreðitigar, meinatæknar, ljósmæður, sjúkralið- ar, röntgentæknar, iðjuþjálfar, læknaritarar, læknar, lyfjatæknar, tannlæknar, aðstoðarfólk tann- lækna, tannsmiðir, tannfræðingar, sjúkraþjálfarar og félagsráðgjafar.

x

Kvennasmiðjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennasmiðjan
https://timarit.is/publication/568

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.