Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 3

Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 3
whismk)/.! ■níonan. . uinnan Kjonn ívennasmidjunni. Anna Bjarnason, Katrín jhildur Anna voru hródugar með afrakstur ít af bás 15 kemur út daglega á meðan sgn- -ÞG/Kvennasmiðjan: GVA Mesta vandamálið á þessum árum, þegar þlaðamenn áttu ekki bíl til að geyma í ferða- galla til að grípa til, var skótauið. Öfá skipti mátti maður ganga í grófum stígvélum inn á fínar samkomur, sem alls ekki var til siðs, eða ekki síður að lenda í fjörugrjóti við strandað skip í sjölöðri á háum hælum. Hefur undirrituð áreiðanlega verið orðin flínkasti Islendingur í að tipla á háum hælum í hraun- um, fjörugrjóti eða ís og snjó, jafnvel að stökkva um borð í skip í slíkum útbúnaði. Og varð ekki meint af. Þvert á móti. Þykist hafa uppskorið stórkostlegustu atburðina í lífinu, eldgos, jöklaferðir og fleiri góð ævintýri. Ot á við varð ég ekki vör við að manni væri ver tekið en strákunum — eiginlega þvert á móti — eða kannski ég hafi bara ekki tekið eftir því í ákafanum. Vitanlega þurfti maður eins og aðrir blaðamenn að afla sér trausts þeirra sem leita þarf til. Þó komu fyrir skond- in atvik. T.d. þegar síldin kom hér í Faxaflóa og allt í einu var farið að salta úti á Nesi með tilheyrandi komu fréttamanna á staðinn. Framkvæmdastjóri hringdi og bað mig vinsamlegast að lesa fyrir sig fréttina mína, sem ég gerði. Löngu seinna tjáði hann mér að honum hefði ekkert litist á þegar þessi stelpa kom trítlandi á háum hælum inn í gegn um blóðvatnið og sullið á gólfinu. Svo kom í ljós að stelpan var sú eina sem skrifaði um síld eins og síld. Hann hafði ekki hringt í hina fréttamennina. Gat ekki vitað að sú á háu hælunum var eini fréttamaðurinn sem hafði haft kynni af síld og síldarsöltun — á Hjalt- eyri á sumrin. Nú eru nær tveir tugir blaðamanna af kvenkyninu á Morgunblaðinu. Þær ganga í ýmis verk á ritstjórninni. Þeim stjórna vitan- lega karlmenn á öllum vígstöðvum. Með einni undantekningu þó, í ljósmyndeild. Emilía Björnsdóttir reynir að hafa stjórn á strákun- um með myndavélarnar. -E.Pá fívennasmidian■ útg. Bás 15 Blaöamannafélag Islands og Félag Bóka- gerðarmanna. Ábm.: Þórunn Gestsdóttir og Magdalena Schram. Verðkr. 10.00. Prentvinnsla: Prentsmiðja Frjálsrar fjölmiðl- unar. Áfram stelpur „Það er ekki á færi annarra en okkar sjálfra að koma launamálum okkar í lag,” sagði Þóra Kristín Jónsdóttir kennari á útifundinum á Lækjartorgi í gær. Allir fimm ræðumennirnir sem þar töluðu fjölluðu um launamál kvenna. Einn ræðumanna sagði að jarðvegurinn væri unninn — til þess hefðum við notað kvennaáratuginn. Nú þyrftum við að bera okkur eftir þjörginni. vio veroum ao sianaa saman ao nug- sjónum okkar. Við verðum að sýna áræði, kraft og þor. Við verðum að vinna að því að fá sömu laun og karlar fyrir sömu vinnu. Við verðum að vera samstíga. Við megum ekki sofna á verðinum. Við getum, viljum og ætlum. Þetta má segja að hafi verið rauði þráðurinn í hvatningarorðum ræðu- mannanna. „Guð var að betrumbæta sköpunarverk sitt, manninn, þegar hann skapaði konuna,” sagði einn ræðumanna við góðar undirtektir fundarmanna. Geysilegur fjöldi var á úti- fundinum og stemmningin mikil. Veðurguöirnir voru konum hlið- hollir. Margar heillaóskir bárust konum á Lækjartorgi, frá konum víðs vegar um land. Alls staðar hafa konur haldið hátíðlegan tíu ára kvenna- frídaginn. Kvennasmiðjan vill taka undir hvatningarorð ræðumanna dagsins. Nú eigum við leikinn. Þar sem á vantar að konur njóti jafnréttis á við karla, er það kvennanna að taka til hendinni. Við getum, viljum og ætlum. Áfram stelpur. -Þórunn.

x

Kvennasmiðjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennasmiðjan
https://timarit.is/publication/568

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.