Dagur - 16.06.1998, Síða 1
+
Bæjjarráð aðeins
smpað konum
Viðræðiun haldið
áfram iiin samemingu
Hafuasamlags Eyja-
fjarðar og Hafnasam-
lags Norðurlands.
Á fyrsta fundi sveitarstjórnar nýs
sveitarfélags sem varð til við
sameiningu Árskógshrepps,
Svarfaðardalshrepps og Dalvík-
urbæjar var samþykkt með mót-
atkvæðum Sjálfstæðisflokks eft-
irfarandi bókun:
„Þar sem þegar hefur verið
kosið um nafn á sameinað sveit-
arfélag og niðurstaða fengist,
þykir okkur rétt að sú niðurstaða
verði send yfirvöldum, þ.e. fé-
lagsmálaráðuneyti, til staðfest-
ingar eða synjunar. Við viljum
benda á að Ornefnanefnd sem
situr að störfum til 1. ágúst nk.
hefur ekki umboð til að fjalla um
þessi mál.“ Þess má geta að nafn-
ið Árdalsvík fékk flest atkvæði
kjósenda, en kosið var um tillög-
ur sem sameiningarnefnd lagði
fram.
I samstarfssamningi B og S-
lista, sem mynda meirihluta í
nýja sveitarfélaginu segir m.a. að
unnið verði að nýju aðalskipulagi
fyrir sveitarfélagið þar sem gert
sé ráð fyrir iðnaðar- og atvinnu-
svæði með tilliti til nýtingar
þeirra auðlinda sem hvert svæði
hefur upp á að bjóða. Áfram
verði unnið sem best úr þeim
fjármunum sem fást til uppbygg-
ingar Hafnasamlags Eyjafjarðar
og haldið verði áfram viðræðum
við Hafnasamlag Norðurlands
um sameiningu hafnasamlag-
anna með því hugarfari að sann-
gjarnt samkomulag náist um
sameiningu þeirra. Fylgst verði
með stefnumörkun Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar og unnið mark-
visst með Ferðamálamiðstöð
Eyjafjarðar að eflingu ferðamála
og koma á samstarfi aðila á
svæðinu í ferðaþjónustu.
Fundin verði varanleg lausn á
staðsetningu malarvallar í sam-
ráði við íþróttafélögin; unnið
verði að lagningu reiðvega í sam-
ráði við hestamenn og Vegagerð
ríkisins; stuðlað verði að aukinni
samvinnu íþróttafélaga og
samnýtingu íþróttamannvirkja;
unnið verði að stefnumörkun fyr-
ir Byggðasafn, Héraðsskjalasafn
og bókasöfn hins nýja sveitarfé-
lags og lausn fundin á húsnæðis-
vanda þeirra. Lögð verður hita-
veita á Árskógsströnd og kannað-
ir möguleikar á hitaveitu í Svarf-
aðardal. Þau íbúðarhús sem ekki
geta tengst hitaveitu njóti endur-
greiðslu á hitunarkostnaði.
I bæjarráð voru kosnar þijár
konur og er formaður Katrín Sig-
uijónsdóttir af B-lista en einnig
eiga sæti þar Ingileif Ástvalds-
dóttir af S-lista og Svanhildur
Árnadóttir af D-lista. Varmenn
kvennana eru allir af andstæðu
kyni við þær og forseti bæjar-
stjórnar er einnig karlmaður,
Kristján Hjartarson. Formenn
helstu ráða og nefnda verða:
fræðsluráðs Kolbrún Olafsdóttir,
æskulýðs- íþrótta- og menningar-
ráðs Kristján Olafsson, félags-
málaráðs Áslaug Þórhallsdóttir,
umhverfisráðs Valdimar Braga-
son, landbúnaðarráðs Gunn-
steinn Þorgilsson, stjórn Dalbæj-
ar Símon Ellertsson og Hafna-
samlags Eyjafjarðar Sveinn Jóns-
son.
Næsti fundur bæjarstjórnar
verður í dag klukkan 17.00 í
safnaðarheimili Dalvíkurkirkju.
gg
Mike Herd, í miðið, á tali við Jóhann Úla Hilmarsson frá Náttúrufræði-
stofnun, til vinstri, og Þorstein Þorsteinsson, sundlaugarvörð á Akureyri,
sem er hafsjór af fróðleik um rjúpurnar í Hrísey og hefur verið BBC-
myndatökumanninum innan handar. mynd: gg
Moldarbað karra mynd-
að fyrir Attenborough
Myndatökumaður frá BBC á
Englandi hefur síðustu daga
dvalið í Hrísey í tjöldum til að
freista þess að ná á filmu þegar
rjúpakarrinn baðar sig í moldar-
flagi til þess að leynast betur fýT-
ir fálkanum þegar hann svífur
yfir í ætisleit. Karrinn tekur
seinna á sig brúna litinn en
kvenfuglinn og því gripur hann
til þessa ráðs að baða sig í mold.
Þegar hann svo tekur sig á loft
eftir þetta bað með tíðum
vængjaslætti fylgir karranum
mikill rykmökkur.
Mike Herd, myndatökumaður,
segist víða hafa farið um heim-
inn og dvalið í felum til að ná á
filmu sérstæðum atvikum dýra.
Hann lofar kyrrðina í Hrísey, eyj-
an sé algjör Paradís, en oft hafi
hann verið við myndatökur í
svæfandi hita innan um flugur
og pöddur, svalt Ioftið í Hrísey og
kyrrðin sé alveg einstök. Mike
Herd er hér á vegum Davids
Attenborough, en náttúrulífs-
þættir hans hafa hlotið heims-
frægð. Moldarbaðið í Hrísey
verður væntanlega á dagskrá
næsta vetur á BBC. GG
Sumarhátíð Iðavalla
Sumarhátíð leikvallarins Iðavallar var haldin ígær og var m.a. grillað fyrir ungviðið og foreldra þeirra. Hestar
komu á svæðið að frumkvæði eins föðurins og fleira var til gamans gert áður en börnin fara I sumarfrí eins og
þeir fullorðnu. Iðavelli verður þó ekki lokað í sumar. 52 börn eru á Iðavelli, nánast sami fjöldi fyrir og eftir hádegi.
Loksins götuljós
Mesta slysa- og árekstarhorn Ak-
ureyrarbæjar eru gatnamót
Hörgárbrautar og Hlíðarbrautar
en þar hafa orðið um 50 umferð-
aróhöpp á síðasta hálfa áratug.
Þar verða oft mjög harðir
árekstrar og eignatjón mikið,
m.a. vegna þess að bifreiðar sem
koma norðan Hörgárbraut á leið
til Akureyrar hafa ekki dregið úr
ökuhraðanum að neinu marki,
rétt eins og ökumenn hafi ekki
áttað sig á því að þeir eru komn-
ir inn í bæinn.
Nú stendur loksins til að setja
upp umferðarljós á gatnamótin á
vegum Vegagerðar ríkisins,
mörgum til mikils léttis. Fleiri
gatnamót verða „Iýst“ á þessu
ári. Má þar nefna gatnamót
Hrafnagilsstræti og Þórunnar-
strætis sem „státar" af mörgum
árekstrum og eignatjóni og einn-
Gatnamótin umtöluðu.
ig er stefnt að uppsetningu á
umferðarljósum á gatnamótum
Skógarlundar og Þingvallastræt-
is, en óvíst er að takist að setja
þau ljós upp á þessu ári. GG
Úrslltm á Raufarhöfn til ráöuneytis
Kröfu þess efnis að sveitarstjórn-
arkosningarnar á Raufarhöfn
yrðu dæmdar ógildar hefur verið
hafnað af kjörnefnd skipaðri af
sýslumanninum á Húsavík. Kær-
andinn var Helgi Olafsson, sem
skipaði 10. sæti á lista Raufar-
hafnarlistans, sem fékk 117 at-
kvæði en Alþýðubandalagið 118
atkvæði. Helgi hefur setið í sveit-
arstjórn Raufarhafnar um árabil
en var nú ekki í öruggu sæti.
Kært var að lögheimili stúlku
hafi verið flutt til Raufarhafnar
frá Reykjavík eftir að frestur til
aðsetursskipta hafði runnið út.
Kjörnefndin áleit hins vegar svo
að heimilt hafi verið að llytja
stúlkuna á kjörskrá á Raufarhöfn
þar sem munnleg flutningstil-
kynning hafi legið fyrir 20. apríl
sl.
Helgi Ólafsson sættir sig hins
vegar ekki við þann dóm þar sem
stúlkan hafi verið á kjörskrá í
Reykjavík þremur vikum fyrir
kjördag og hefur skotið málinu til
félagsmálaráðuneytisins til úr-
skurðar. Helgi segir ennfremur
að starfsfólk hreppsskrifstofunn-
ar hafi verið á „gráu svæði“ vegna
pólitískra tengsla auk ljölskyldu-
tengsla við Margréti Eiríksdóttur.
Hún er mágkona Þórs Friðriks-
sonar, sem var í 2. sæti á lista Al-
þýðubandalagsins. Margrét, sem
hefur verið við nám í Reykjavík
flutti lögheimilið þangað til þess
að vera betur í stakk búin að fá
vinnu með skólanum. Hún sótti í
vetur um pláss á rækjufrystitog-
aranum Rauðanúp í sumar en
var tjáð að til þess þyrfti hún að
flytja lögheimilið aftur til Raufar-
hafnar. Það dróst hins vegar úr
hömlu. Margrét er komin austur
til Raufarhafnar og byijuð að
vinna hjá Reyni Þorsteinssyni,
efsta manni á lista Alþýðubanda-
lagsins. En Raufarhöfn er lítið
pláss og erfitt að komast hjá
tengslum í byggðarlagi þar sem
segja má að allir séu tengdir eða
venslaðir öllum. GG
II-