Dagur - 16.06.1998, Page 4
!
4 - PRIBJVDÁGUR 16. 'J Ú N1 1998t
AKUREYRI NORÐURLAND
Nefndir og ráð
hjá Akureyrarhæ
Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjar-
stjórnar Akureyrar var haldinn 9.
júní sl. og þar var m.a. kynntur
málefnasamningur meirihluta-
flokkanna, Akureyrarlista og
Sjálfstæðisflokks, og kosið í
nefndir og ráð. I bæjarráði sitja
Sigurður J. Sigurðsson (D), Val-
gerður Hrólfsdóttir (D), Asgeir
Magnússon (F), Jakob Björnsson
(B) og Oddur Helgi Halldórsson
(L) en forseti bæjarstjórnar er
Sigurður J. Sigurðsson.
Aðrar helstu nefndir Akureyr-
arbæjar eru þannig skipaðar að
formaður atvinnumálanefndar er
Valur Rnútsson en aðrir nefndar-
menn Sverrir Ragnarsson, Matt-
hildur Siguijónsdóttir, Elsa Frið-
finnsdóttir og Björn Snæbjörns-
son. I bygginganefnd eru Knútur
Karlsson formaður, Gísli Jóns-
son, Oddný Stella Snorradóttir,
Sigfríður Þorsteinsdóttir og Frey-
dís Agústa Halldórsdóttir. I fé-
lagsmálaráði eru Oktavfa Jó-
hannesdóttir formaður, Jakob
Björnsson, Asta Sigurðardóttir,
Jóhanna H. Ragnarsdóttir og
Þóra Akadóttir. I framkvæmda-
nefnd eru Asgeir Magnússon for-
maður, Jakob Björnsson, Oddur
Helgi Halldórsson, Þórarinn B.
Jónsson og Vilborg Gunnarsdótt-
ir. I skipulagsnefnd eru Vilborg
Gunnarsdóttir formaður, Guð-
mundur Jóhannsson, Gísli Bragi
Hjartarson, Stefán Jónsson og
Hallgrímur Indriðason.
Formaður skólanefndar er Jón
Kr. Sólnes en aðrir nefndarmenn
Valgerður Hrólfsdóttir, Kristín
Sigfúsdóttir, Guðmundur O.
Guðmundsson og Marsibil Fjóla
Snæbjarnardóttir. Formaður
menningarmálanefndar er Þröst-
ur Asmundsson en aðrir nefnd-
armenn Páll Tómasson, Helgi
Vilberg Hermannsson, Valgerður
Jónsdóttir og Ágúst Hilmarsson.
I húsnæðisnefnd eru Jóhann Sig-
urðsson formaður, Alfreð Al-
marsson, Eygló Birgisdóttir, Gísli
Kr. Lórenzson og Einar Hjartar-
son. I stjórn veitustofnana eru
Valgerður Hrólfsdóttir formaður,
Páll Tómasson, Hilmir Helga-
son, Asta Sigurðardóttir og Svav-
ar Ottesen. I umhverfisnefnd eru
Jón Ingi Cæsarsson formaður,
Friðrik Sigþórsson, Sigfríður
Þorsteinsdóttir, Sveinn Heiðar
Jónsson og Sunna Borg. I jafn-
réttisnefnd eru Sigrún Stefáns-
dóttir formaður, Eygló Birgis-
dóttir, Hinrik Þórhallsson,
Mínerva B. Sverrisdóttir og Páll
Jóhannsson. I íþrótta- og tóm-
stundaráði eru Þórarinn B. Jóns-
son formaður, Steingrímur Birg-
isson, Sigrún Stefánsdóttir, Sig-
mundur Þórisson og Nói Björns-
son.
Formaður áfengis- og vímu-
varnarnefndar er Kristín Sigfús-
dóttir og Hafnasamlags Norður-
Iands Björn Magnússon. GG
Costa Marína á Pollinum
Fyrsta skemmtiferðaskip árins skreið inn á Pollinn á Akureyri í gærmorgun. Það var Costa Marina sem kom frá
Norður-Noregi og er með 750 farþega. Héðan fer skipið til Shetlandseyja. Margir farþeganna stigu um borð í
rútur til að berja náttúru Mývatnssveitar augum. Skipið er það fyrsta af 27 sem hingað koma í sumar og það
þriðja stærsta, 25.500 tonn. Stærsta skipið, Vision of the seas, er 74.000 tonn og 280 metra langt, og það er jafn-
framt það síðasta, verður á Akureyri / /. september. gg/mynd: br/nk
GSM-símar í verðlaim
Það getur verið ábatasamt að
reynsluaka nýjum bíl. Það fengu
þeir Gísli Brynjólfsson, Þor-
steinn Friðriksson og Hannes
Helgason að reyna nýverið, en
þeir reynsluóku öll nýrri Opel-
bifreið hjá Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar á Ak-
ureyri sem hefur söluumboð
fyrir Opel-bifreiðar.
Dregið var úr nöfnum þeirra
sem reynsluóku og fengu vinn-
ingshafamir nýja GSM-síma, af
gerðinni Bosch Com 207, að
launum. A myndinni eru Sig-
urður Ejþór Valgeirsson sölu-
maður, Iris Þorsteinsdóttir sem
tók við GSM-síma föður síns,
Þorsteins Friðrikssonar, og Gísli
Brynjólfsson, en svo skemmti-
lega vildi til að hann varð 49 ára
sama dag. Skemmtileg og óvænt
afmælisgjöf það, til hamingju
með daginn, Gísli! GG
Hátí ð ardag skiá á
Meimtaskólavelli
Skátafélagið Klakkur sér um 17.
júni hátíðarhöldin á Akureyri í
ár, sem heljast að venju með há-
tíðardagskrá á Klöppunum. Há-
tíðardagskrá verður síðan á
Menntaskólavellinum klukkan
17.00 þar sem margt verður til
gamans gert fyrir unga sem
aldna. Um kvöldið fer fram
skemmtidagskrá á Ráðhústorgi
þar sem m.a. má heyra Islenska
kórinn í Gautaborg þenja radd-
böndin, en stjórnandi hans er
ættaður frá Dalvík. Dagskrá há-
tíðarhaldanna á Akureyri birtist á
öðrum stað í blaðinu. GG
Iðnaðarsafnið opnað á
þj óðhátíðardaginn
Iðnaðarsafnið á Akureyri verður
opnað á morgun, 17. júní, klukk-
an 17.00, en safnið er staðsett í
gamla Hekluhúsinu gegnt
Punktinum. Það er Jón Arnþórs-
son sem hefur haft veg og vanda
af því að koma safninu á laggirn-
ar. Þar verður að finna margt for-
vitnilegt úr langri sögu iðnaðar-
ins á Akureyri, ekki síst meðan
starfsemi Iðnaðardeildar Sam-
bandsins var með sem mestum
blóma á sjötta og sjöunda áratug
aldarinnar.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar- 1
stjóri, opnar safnið formlega
með ávarpi ásamt því að ræsa
gömlu Gefjunargufuflautuna
sem í hálfa öld vakti stóran hluta
Akureyringa. gg
Ættarmót, hestamót, söngmót, drykkjumót
GEIRA.
GUÐSTEINS
,.; SON
4 SKRIFAR
Landsmenn eru nú að koma sér
í stellingar fyrir útilegur, ferða-
lög um rykmettaða vegi, ættar-
mót og móttöku Vestur-Islend-
inga, en ferðir þessara fyrrum Is-
lendinga til fyrirheitna landsins
sem forfeður þeirra forðuðust á
sínum tíma eins og heitan eldinn
hafa verið að aukast á undan-
förnum árum. Það finnst mörg-
um Mörlandanum, ekki síst Ak-
ureyringum og Eyfirðingum,
mikil upphefð í því að þekkja eða
fá í heimsókn einhverja fjar-
skylda ættinga sem búa á slétt-
um Kanada, og kannski best ef
þeir tala sem allra minnst í ís-
lensku, það er svo svakalega
gaman þegar þeir rembast við
þetta erfiða tungumál okkar og
bera það allt fram í nefnifalli.
Vestur-Islendingar í Mormóna-
ríkinu Utah hafa stöðugt verið
að auka tengsl sín við ættingja
sína á Islandi og þessa dagana er
hér á ferð 20 manna hópur. I dag
kemur til Akureyrar 16 manna
hópur frá Utah og dvelur hér í
dag. Þarna er því tilvalið tæki-
færi að kynnast lífinu á sléttum
Ameríku og láta reyna- á ís-
lenskukunnáttu þessara fjar-
skyldu ættingja okkar.
Forseti okkar, Ólafur Ragnar
Grfmsson, kom til Utah í fyrra,
og þá var rætt um væntanleg há-
tíðarhöld á íslandi árið 2000
vegna 1.000 ára afmælis kristni-
tökunnar. Það má þvf búast við
mörgum Vestur-Islendingum í
landnám Helga magra árið
2000. En á meðan höldum við
bara okkar striki í ættarmótun-
um og drekkum með og rífumst
við þá ættingja okkar sem ekki
hrökkluðust af þessu skeri fyrir
margt löngu. Það er kannski
miklu skemmtilegra, því þá er
hægt að iáta ákveðna kurteisi
lönd og leið, SKÁL!
Þeir sem ekki komast á ættar-
mót vegna þess að þeir eru af svo
ómerkiíegri ætt eða eru hálfgerð-
ir ættlerar þurfa ekki að missa
móðinn því aðeins eru um þjár
vikur til Iangstærsta ættarmóts-
ins, Landsmóts hestamanna. Þar
er bara spurt um ættir hesta, ef
eitthvað er að marka ættbókar-
færslur, en ekki ættir tvífætling-
anna og því verður alveg svaka
gaman á allt að 10 þúsund
manna ættarmóti að Melgerðis-
melum. Svo er bara að halda
niðri í sér andanum í Ijórar vik-
ur, endurhlaða batteríin, og
mæta með endurnýjuðum krafti
á Flalló Akureyri, SkAL! Þar spyr
heldur enginn um ættir, bara um
þú veist, það sem er f pokanum,
og allir eru ofsalegir vinir....
þangað til einhver fær á kjaftinn
fyrir að vera allt of mikilí vinur
kærstunnar, ég meina kærustu
vinarins. Það þarf því engum að
Ieiðast í Iandnámi Helga magra
næstu vikurnar.
LEGSTEINAR Fáið myndalista hjá Utfararþjónustu Kirkjugarða Akureyrar MOSAIK Ý Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít
Höfðakapella Sími 461-4060