Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1866, Page 723
DM FJÁRHAG ÍSLANDS.
713
skildum lækninum í Húnavatns og Skagafjarðar sýslum, er annað-
hvort lagt jarðnæði, eða þá í þess stað peníngaupphæð sú, sem
hér er talin.”
Við A. I. 16. (,í fjárhagslögunum fyrir árið 1864/es voru lækn-
inum í syðri hluta Vestur-umdæmisins veittir 25 rd. fyrir jarðnæði
og í laun 1000 rd., en af þessum síðast nefndu peníngum voru
600 rd. laun þau, sem áður voru lögð hverjum hinna þriggja elztu
héraðslæknum á íslandi, og 400 rd. var viðbót samkvæmt lögum
19. janúar 1863. Læknir sá, sem híngaðlil hefir gegnt þessu em-
bætti, andaðist í marz mánuði 1864, og embættinu var því slegið
upp sem lausu með launum þeim, sem áður voru lögð hverjum
hinna þriggja ýngstu af héraðslæknum á íslandi, nefnilega 500 rd.,
og var þess um leið getið, að dómsmálastjórnin hefíú í hyggju í
fjárhagslögunum fyrir í hönd faranda fjárhagsár að útvega manni
þeim, sem kynni að verða skipaður í þetta embælti, þá söinu launa-
viðbót, sem í lögum 16. janúar 1863 var veitt embættismönnum
þeim á íslandi, sem um þær mundir voru í embættum eða settir
yrði í emhætti þau, sem þá værulaus; en samkvæmt frumvarpi því
til nefndra laga, sem lagt var fyrir ríkisþíngið, var launaviðbót þessi
talin þannig, að laun lækna skyldi í upphafi vera 600 rd. á ári, og
skyldu þau hækka með 100 rd. fyrir hver 3 ár, sem þeir væri í
embætti, uuz 1000 rd. væru komnir. Samkvæmt þessu eru laun
þessa embættis hér talin með 600 rd. auk 25 rd. fyrir jarðnæði,
og skal þess hér getið, að launahækkun sú, sem hér er stúngið
uppá, er nauðsynleg til þess að geta gjört sér nokkrar vonir
um að þetla embætti, sem enginn ennþá hefir sókt um, verði
skipað.”
Við A. I. 18 og 19. „Samkvæmt lagafrumvarpi því, sem hér
að framan er getið (athugasemd við A. I. 3 og 10) ætti læknirinn
í Húnavatns og Skagafjarðar sýslum og læknirinn í Eyjafjarðar og
Þ'ogeyjar sýslum, sem báðir eru skipaðir 31. marz 1856 í embætti
þau, er þeir nú hafa, að fá í laun 900 rd. á ári frá 1. apríl 1865,
°g eru því laun þessara embættismanna hér talin með þessari
upphæð.”
Að öðru leyti en því, sem hér að framan segir, eru laun em-
63*