Ægir - 01.07.1905, Blaðsíða 8
4
ÆGIR.
Flultar: 128,000,00
Til skóla í Bodö sem kennir
meðferð á fiski afurðum..... 4,800,00
Laun 3 umsjónarmanna við
fiskiveiðarnar m. m......... 17,400,00
Laun og önnur útgjöld fyrir 8
fiskiumboðsmenn í öðrum
löndum ....................... 30,000,00
Ferðastyrknr fyrir fiskimenn
sem kynnast vilja ýmsu fiski-
veiðum viðvíkjandi ............ 3,000,00
Til sjófræðiskenslu fyrir fiski-
menn .......................... 5,000,00
Til umferðakenslu i báta bygg
ingu........................... 3,000,00
Til tilrauna við ýmsar fiskiað-
ferðir á ýmsum stöðum ........ 23,500,00
Til fiskiveiðafélaga með því
skilyrði að þau leggi til
x/i móts víð ríkissjóðstillagið 25,460,00
Til fiskifélaga skilyrðislaust ... 7,600,00
Til eftirlits með Lofótsfiskiríinu
og víðar .................... 130,700,00
Til að safna upplýsingum um
fiskiveiðar á ýmsum slöðum
og senda fréttir um þær ... 3,500,00
Hluti Noregs til alþjóða haf-
rannsókna ................. 14,700,00
Til flskimatsmanna.......... 26,700,00
Til rannsókna á þorskungviði í
fjörðum ...................... 800,00
Til vatnsbóla í verstöðum... 10,000,00
Samtals kr. 425,160,00
Fyrir utan þessar beinu styrkveit-
ingar hafa Norðmenn lánsstofnanir, sem
eingöngu eru ætlaðar til lánveitinga skipa
og bátaútgerðár, og' eru þær þessar og
bundnar eftirfarandi skilyrðum:
Sjóðir til eflingar fiskiveiðum.
Stórþingið liefir stofnað sjóði þessa
þannig, að lán eru veitt úr ríkissjóði með
þægilegum kjörum. Nú sem slendur eru
til tveir slíkir sjóðir.
»Félagið til eflingar norskum fiski-
veiðum« gekst fyrir því, að »Hinn eldri
íiskveiðasjóður« var stofnaður árið 1889
og var sá sjóður aukinn unz hann árið
1899 var orðinn kr. 700,000.
Sjóðurinn veitir þessi lán:
A. Lán til eflingar fiskveiðum með svo-
feldum kjörum:
1. Af lánum, er nota skal til þess að
útvega og útbúa skip, eru hvorki
goldnir vextir né afborgun fyrsta
árið; síðan ávaxtast lánið 21 2°/o, og
skal endurborgast á 10—15 árum
með jöfnu árgjaldi.
2. Sem tryggingu hefir hið opinbera
veðrétt i skipinu með öllum tilheyr-
andi, skipsáhöldum og vátryggingar-
upphæðinni. Lánað er út á ný skip
alt að 8/4 viðingarverðs þeirra, en
2/3 þegar um gömul skip er að ræða,
þó þannig, að fyrir þeim hluta láns-
ins, sem yfirstígur 2/a virðingaverðs
nýrra skipa og J/2 virðingarverðs
gamalla skipa verður, auk veðréttar-
ins í skipinu, að gefa aðra trygging'.
Ut á eitt skip er ekki lánað meira
en kr. 20,000. í vírðingaverði skips-
ins eru ekki reiknuð veiðarfæri.
3. Skipið verður að vera vátrygt
gegn sjóskemdum og eldi i höfn,
fyrir að minsta kosti 2/s virðingar-
verðs. Lán er að eins veitt þeim
fiskimönnum og sjómönnum, sem
eru hluthafar í rekstri skipsins, og
þó einkum til skijja, sem eingöngu
tilheyra sjálíum fiskimönnunum.
Að öðru jöinu er lán sérstaklega
veitt til skipa, sem að eins eru ætl-
uð til fiskiveiða og smíðuð eru hér
á landi (Noregi). Lán til lúkning-
ar eldri sknldum eru ekki veitt.
B. Lán eru veitt til kaupa, stærri báta
með nýju og góðu lagi, sem hæfir eru
til djúpfiskiveiða. Annaðhvort verður
hlutaðeigandi sveitarfélag aðábyrgjast