Ægir - 01.07.1905, Blaðsíða 12
8
ÆGIR.
hingað til verið mjög litið notað af inn-
byggendunum, bæði af framkvæmdarleysi
og vöntun á vinnukrafti til að stunda
veiðarnar.
Eins og fyr er frá sagt bafa íslend-
ingar nú ráðið til sín marga norska fiski-
menn, sem jafnframt því sem þeir stunda
róðra eiga að kenna þeim að fiska bæði
skynsamlega og á réttan hátt. Fiski-
mennirnir fara til íslands í næstu viku.
Fiskitíminn er ákveðinn 4 mánuðir,
og eru skilmálarnir, sem þeir eru ráðnir
fyrir mjög góðir«.
★ ★
T *
Alb. Pessir menn sem bér um ræðir
eru þeir, sem br. kaupm. Þorst. Jóns-
son réð í Lofoten i vetur eftir leiðljein-
ingu og upplýsingum mínum, og' er kaup
þeirra ákveðið um 25 kr. um mánuðinn
og V2 hlutur. Þeir komu til íslands
snemma í júní, og margir þeirra bafa í
byggju að búsetja sig _ á Austfjörðum til
frambúðar. Abyrgðarm.
Frosinn íiskur lífgaður aftur.
(Eftir Tlie Pacific Fisherman.)
Af því eftirsókn eftír lifandi fiski
er jafnan meiri á heimsmarkaðinum en
á dauðum fiski og' bann þar að auki er
i bærra verði, þá bafa menn i Ameríku
fundið það ráð að frysta lifandi fisk og'
geyma hann svoleiðis í lengri tima, og
senda á ýmsa staði upp í landið, befir
bann svo við það að vera þýddur í
sjó eða köldu vatni smám saman lifnað og
verið seldur lifandi á torgum og' fiiski-
sölubúsum.
Síldarveiðin í Norðursjónuni.
Síðastbðið ár veiddnst 2x/2 milliónir
tunnur af síld í Norðursjónum, þar af
íiskuðu Skotar belminginn og Hollending-
ar rúmar 650,000 tn.
Fiskiveiðar Norðnianna.
Til 20. maí í ár hafa Norðmenn aílað
398/io milliön fiska. 1904 fiskaðist til
sama tíma 428/io millión. 1903 428/io
og' 1902 404/io millión. Þannig liafa Norð-
menn fiskað talsverl minna en undanfarin
ár, aftur á móti hefir fiskurihn verið
stærri og feitari.
Þilskip við Faxaflóa
hafa í vortúrnum atlað fremur vel,
talan fremur há, og fiskurinn með vænsta
móti, bæðsta tala er hjá »Guðrúni frá
Gufunesi« 32,000 fiskjar og fieiri eru með
frá 25—30,000. — Úr Reykjavík og Sel-
tjarnarnesi gengu í vor lil fiskjar 44 sldp,
þau bafa aflað til samans 802,000 eða að
meðaltali rúm 18,000 bvert, en það
mun vera hér um bil 1000 fiskar á mann,
og er það góður afli þegar tekið er tillit
til livað fiskurinn er vænn og verðið hátt
í fyrra fiskuðu 40 skip hjeðan úr bæn-
um og af Seltjarnarnesi 670,000 fiskjar á
vorvertíðinni.
Einn botnvörpung
enn Jiá, hafa nokkrir menn bér í
Reykjavík kevjit sér, og skal nú Jicgar
byrja fiskveiðar. Skipstjórinn er islenzk-
ur Árni Eyjólfsson að nafni, og hefir í
nokkur ár siglt sem skipstjóri með botn-
vörpuskipi frá Englandi, og sýnt mjög
mikinn dugnað.
Ileyrst hefir að margir bér í Reykja-
vík og nágrenninu hefðu í byggju að
selja þilskip sín ef kostur er og kaupa
aftur botnvörpuskip, og sýnir þetta virð-
ingaverðan ábuga fyrir að fylg'ja með
tímanum í fiskiveiðamálunum.
Uni 50 síldveiðaskip
frá SvíJjjóð er búist við að stundi
síldarveiði við Norðurland í sumar oger
það töluverð viðbot við norska llotann.
Rrýn nauðsyn ber til að alvarleg' gang'-
skör sje gjörð svo lljótt sem auðið erað
því að vernda hagsmuni íslands, og
stemma stigu við yfirtroðslum þessara
útlendinga á réttindum landsmanna.
Nú þegar veriö er að enda viö aö setja ritið,
fréttistþað aö yfirforingi »Heklu«, Ivapt. Schack,
lætur af yflrstjórn og Capt. Tuxen tekur viö.
Fáir menn hafa á jafnstuttum tíma unniö sér
jafn einróma hylli, og þaö að verðleikum, sem
Capt. Schack, og óskum vér lionum allra heilla
um leið og vér hjóðum hinn velkominn.
í næsta blaði
tökum vér meðal annars, til íbug-
unar bvað gera beri fyrir sjávarútveginn
í heild sinni.
Prentsmiðjan Gutenberg.