Ægir - 01.10.1905, Blaðsíða 7
ÆGIR.
39
sig á Austurlandi, og voru allir yíirleitt
mjög vel þokkaðir. Nokkrir urðu eftir og
og' fengu sér vistir til vetrarins, og margir
liyggja til hingað komu næsta sumar, og
vilja þá hafa mótorbáta til veiðanna;
höfðu jafnframt orð á að setja sig niður
hér til staðaldurs ef jarðnæði fengist með
viðunanlegum kjörum.
Fiskiveiðastjórn Norðmanna
(Norges Fiskeristyrelse) hefir sent »Ægir«
eftirfarandi grein, sem er umburðarbréf frá
verzlunar- og iðnaðarráðaneytinu norska
til allra amtmanna í Noregt til útbýtingar
meðal landsmanna og hljóðar svo:
»Til Fiskiveiðastjórnar Norðmanna eru
komnar fjöldamargar kvartanir yfir þvi að
pjáturtunnur þær, sem eru hafðar undir
meðalalýsi og fluttar eru í verzlunina, séu
iðuglega of litlar; þessar kvartanir eru því
miður — eftir fengnum upplýsingum — á
nægum rökum bygðar.
Það er þar að auki ljóst, að þeir sem
smíða tunnurnar, oft eru ókunnir hinum
gildandi lögum í þessu efni eða að minsta
kosti hafa mjög óljósa hugmynd um þetta
atriði.
Ráðaneytið álitur sér því skylt, að
vekja athygli kaupmanna jafnt sem pjátur-
smiða á nefndum Iögum, og' þá ábyrgð sem
menn taka sér með því að fylgja þeim
ekki; en fremur að ítreka við embættis-
menn og aðra eftirlitsmenn, að gæta þess,
að þessum ákvörðunum sé fylgt.
I.
[Hér eru upptalin gildandi norsk lög og á-
kvarðanír þessu viðvíkjandi].
Af þessum ákvörðunum ber sértaklega
að taka lillit til eftirfarandi gildandi reglu.
Hin suonefmla fiskitunna (lýsistunna) á
taka 116 potta, þó er ley/ilegt að hán taki
2 pottum minna, eða í pottum meira.
II.
Ef í verzlunni fyrirfinnast fiskitunnur
(lýsistunnur) sem ekki ná þessu ofanskráða
máli, má búast við því að þær muni
verða gerðar upptækar, og' þar að auki
að viðkomandi verzlunarmanni sé hegnl
með fjárútlátum.
III.
Það er skylda tollþjóna, lögregluþjóna
og annara eftirlitsmanna að gæta þess, að
fiskitunnurnar (lýsistunnurnar) taki Iögá-
kveðið mál, og þetta gerist hlntaðeigendum
öllum til vitundar.
Kristjanía 31. ágúst 1905.
Sofus Arctander.
Aths. Oss þykir það mjög mikils vert, að
menn hér á landi geti gaum að þessari fyrir-
skipun, — allir þeir sem eittlivað fást við
bræðslu á meðalalýsi —; svo þeir baki sér ekki
það tjón, sem af því getur hlotist, að varan
yrði gerð upptæk, ef hún flyttist til Norvegs.
Abgm.
Fiskiveiðar Frakka mishepnast.
(Símskeyti tíl »Nationaltidende«).
Paris 2. sept.
Samkvæmt síðustu fréttum frá íslandi
og New-Foundland eru íiskiveiðar Frakka
á báðum þessum stöðum enn þá lakari
en í fyrra.
Árið 1902 var aflinn 134 mill. pd. al'
fiski. Árið 1903 46 mill. pd. og nú í ár
er aflinn talinn að muni verða tæpar 20
mill. pd. Þetta er alger eyðilegging fyrir
fiskimennina í Bretagne.
Hull botnvörpungar fiska í Hvítaliaflnu.
(Eftir „The Ship Gazette“).
Mánudaginn 11. Sept. komu 3 botnvörp-
uugar til Hull frá nýjum fiskimiðum er
þeir hafa fundið. Þeir voru sendir al' út-
gerðarmönnum til Hvítahafsins til reynzlu
og komu þaðan aftur hlaðnir af stórri
lúðu ; — liðugar 600 körfur hvort skip. —
Fiskurinn er ágætur. Þessi tilraun liefir
hepnast ágætlega, og fleiri skip eru farin
þangað til fiskiveiða.