Ægir - 01.11.1905, Blaðsíða 5
ÆGIR.
45
slitna, í stað þess að 2 gengis mótorar
missa strax gangþolið þegar renniflöturinn
sem öxulsveifin gengur eftir fer að slitna,
því þá fer venjulega eitthvað af gasinu til
ónj7tis. Og ef að slíkir mótorar eru í bát-
um sem eiga að þola sjóvolk, þá er liætt
við að þeir bili þegar mest á ríður.
Enn fremur er það auðvitað, að slitið
er meira á snúningshröðum 2 gengis mó-
torum en á snúningshægum 4 gengis mó-
torum. Eg vil samt sem áður ekki neita
því, að 2 gengis mótorar eru hljóðminni,
en mikið dýrari þegar til viðgjörðar
kemur.
Priðjn spurningunni virðist máske liafa
verið svarað af dómnefndinni i Marstrand.
En það virðist mér þó ekki hafa verið gert.
Án þess að eg á nokkurn hátt vilji
draga úr þeim heiðri sem benzínmótorinn
fékk á sýningunni, — nefnilega gullme-
dalíu —, er þó þetta við það að athuga,
að hann átti alls elcki að setjast í floklc
með mótorum sem ætlaðir eru í fiskibáta.
Þvi eg alít það blátt áfram glapræði að
gera slíkt, því það er sitt hvað mótor í
skemtibáta innfjarða en mótor í íiskibáta
á liafi úli. Og það er þetta sem er svo
villandi fyrir fiskimenn, sem ætla að fá
sér mótora til notkunar við fisiveiðar.
Að lyktum vil jeg geta þess, að jeg liefi
þá sannfæringu, að liinir algengu 4 gengis
steinolíumótorar eru nú sem stendur hinir
áreiðanlegustu og beztu mótorar í íiskibáta,
og að benzínmótorar geta alls ekki fullnægt,
að minnsta kosti eltki hér í norðanverð-
um Noregi.
Læknisskoðun á sjómönuum.
(Dansk Söfartstidende).
Frá 1. okt. þ. ár er ekki leyfilegt nein-
um sjómanni á Þýzkalandi að ráða sig á
nokkurt þýzkt skip nema að hann áður
liafi verið rækilega skoðaður af lækni sem
gefur vottorð um líkamlegt og andlegt heil-
brigði sjómannsins. Það eru tilnefndir
mjög margir sjúkdómar og kvillar, sem al-
gerlega úliloka manninn frá að gefa sig
við sjómensku, og tilgangurinn er Hka sá
að fyrir bygga algerlega að þeir menn
stundi sjó, sem af veiklun og heilsuleysi
ekki eru færir um það. Berklavcikur mað-
ur má t. d. ekki, undir neinum kringum
stæðum ráðast á þilskip, þar eð það er að
réttu álitið að samneyti hans við aðra skip-
verja, í þröngum hásetaklefum, geti liaft
liættu í för með sér fyrir aðra liáseta sem
búa saman með lionum í lengri tíma.
Kindarar og kolamokarar á gufuskipum
eiga að vera fullþroskaðir og sterkir menn
og yngri en 18 ára má enginn ráðast til
þess starfa, sömuleiðis á sjón og heyrn að
vera í heilbrygðu ásigkomulagi á öllum
þeim mönnum sem vinna á þilfarinu.
Það er skylda útgerðarmanna og skip-
stjóra að gæta þess að reglum þessum sé
fylgt, og ef þeir eru í höfn utanríkis og þurfa
að fá fólk, og læknir er ekki viðstaddur,
þá verður skipstjórinn sjálfur, að svo miklu
lej7ti að liægt er, gera þessa fyrirskipuðu
rannsókn.
á þilskipum, og 07. gr. farmannalaganna.
Eftir öll þau ár, sem farmannalögin
hafa verið í gildi hér, eru þau víða ekki
skilin enn þá. Sjómenn liafa alment þá
skoðun, að lögin séu þeim í óhag ef þeim
er beitt, og má, eins og hér á landi hagar
til, færa slíkri hugsun margt til málsbóta.
Allir eru ráðir hásetar, en þó með mis-
munandi launum eftir því sem þeir eru
þektir menn eða ekki. Hér gera hásetar