Ægir - 01.11.1905, Blaðsíða 9
ÆGIR.
49
Fyrir utan þau skip, sem áður eru tal-
in, og aflauppliæðin er tilnefnd á, má nefna
skip H. B. St. & Co. Bíldudal, 11 að tölu,
liafa fiskað á útgerðartímanum frá byrjun
april til loka ágústmánaðar 357,186 fiska.
Að meðaltali 12 fiskimenn á hverju.
Skip Á. Ásgeirssonar á ísafirði, 13 að
tölu, hafa fiskað hér um hil 330 þús.;
þau eru smærri, og því fámennari en ann-
arstaðar.
Skip tilheyrandi Ó. Jóli. & Co. Pat-
reksíirði, 3 að tölu, liafa fiskað 81,000. 2
þilbátar liafa þar að auki stundað veiði
þaðan, og fiskað um 10,000 fiska hver.
Frá Önundarfirði stunduðu 3 þilskip
fiskiveiðar og öfluðu samtals um 50,000.
Aflaupphæð Hafnarfjarðarskipanna er
ekki kunn enn þá, en að öllum líkindum
mun það vera kringum 600 þús. að minsta
kosti.
Allur ársaflinn á íslenzk þilskip verð-
ur því nú c. 5 milj. liska. Þar með eru
ekki talin botnvörpuskip eða lóðagufuskip,
að eins seglskip.
Síldarveiði ineð reknetuni.
Þessi veiði er smátt og smátt að ryðja
sér til rúrns hér við Island þó hægt fari
enn þá. Ægir hefir ekki getað fengið afla-
skýrslur frá Norðurlandi yfir veiði af skip-
um þaðan, en aflinn lieíir yfirleitt verið
talsvert minni en í fyrra.
Prjú skip stunduðu síldarveiði héðan frá
Reykjavík, og er afli þeirra sem hér segir:
Kutter August c. 50 smál. (félagið Draupn-
ir) aflaði 560 tunnur frá því snemma í
apríl til 20. sept. Skipverjar voru 9 að
meðaltali.
Slup Kristján c. 20 smál. (reknetafélagið
við Faxaflóa) fiskaði um 330 tunnur frá
því í byrjun maí til seint í ágúst. Skip-
verjar 7—8 að meðaltali.
Kutter Inguar c. 80 smál. að stærð (Duus
verzlun) fiskaði 380 tunnur frá byrjun
ágúst til 20. sept. Skipverjar 14 menn.
Frá Hafnaríirði stundaði síldarveiðar
gufuskipið »Leslie« (eign kaupm. Á. Flyg-
enring og kaupm. Thor Jensen) og fiskaði
frá byrjun ágústs til septembermánaðar-
loka um 500 tunnur.
Frá Vestnrlandi stundaði 1 skip síldar-
veiði meiri part útgerðartímans, Kutter
Karmö (eign Isl. Handels Jc Fiskericomp.
Patreksfirði) og fiskaði um 300 tunnur.
Eitt skip (H. B. St. & Co. Bíldudal) fór
út til síldarveiða í byrjun sept., eftir að
hafa hætt þorskveiði, og liskaði á viku-
tíma við Horn 60 tunnur.
Önnur skip hafa ekki, að oss er kunn-
ugt, tekið þátt í þessari veiði héðan frá
Suður- eða Vesturlandi svo teljandi sé.
Félagið Draupnir.
Þrátt fyrir lítinn síldarafla í ár, og þar
af leiðandi lítinn ágóða af útgerðinni, var
það samþykt á fundi meðal félagsmanna,
að setja í skipið »August 15 hesta Alpha-
mótor til útgerðar næsta ár.
Enn fremur var það samþvkt eptir uppá-
stungu frá formanni (kaupm. Thor Jenscn)
að veita skipstj. Geir Sigurðssyni 50 kr.
verðlaun fyrir liirðusemi og vandvirkni á
meðferð aflans.
Hvalveiðarnar á Vestfjörðuni.
Af 8 livalveiðastöðvum, sem áður voru
á Vestfjörðum eru nú að eins 2 eftir scm
stunda veiði: á Hesteyri í Jökulfjörðum og
Suðurej’ri í Tálknafirði.
Hvalveiðastöðin á Hesteyri hefir aflað
á 4 báta 162 hvali, sem hafa gefið af sér
7497 tunnur af lýsi, 32,300 pd. skíði, 221
000 pd. kjötmjöl og 586,200 pd. beina-
mjöl. — Hvalveiðastöðin á Tálknafirði
hefir aflað á 4 báta 132 hvali, sem hafa
gefið 7126 tunnur lýsi (vigt 210 pd.), 46,000