Ægir - 01.05.1912, Side 16
68
ÆGIR.
bagar i þessu efni ekkert annað en kunn-
áttu- og framkvæmdarleysi og löggjafar-
slefna vor, sbr. greinina »ÚtflutningsgjaId
af sjávarafurðum« lijer í blaðinu.
Verslunarskýrslurnar segja, að niður-
soðinn fiskur hafi verið fluttur út hjeðan
árið 1909 fyrir 44 þús. krónur.
Hlaðið „Farmand“
segir, að íiskimarkaðurinn á Spáni og
Ítalíu sje um martsmánaðarlokin langlum
daufari en áður vegna þess, live vel hefur
aflast í Noregi nú í velur.
Einnig hefur Trípólisstríðið ill áhril' á
markaðinn, bæði vegna mannfjökla þess,
er ítalir sendu til Tripólis, og hins, að
svo margir af almenningi verða kaup-
leysingjar.
Vegna kolaverkfallsins
varð nær helmingur allra bolnvörpunga
á Englandi og Skotlandi að hætta veiðum
seinni hluta martsmánaðar. Enda munu
hjer við land liafa verið líltölulega mjög
fáir enskir hotnvörpungar við veiðar á
vetrarvertiðinni.
Japanar
hafa hingað til slundað mest fiskiveiðar
á róðrarbátum. En þeir fylgjast með tím-
anum í ellingu fiskiveiðanna eins og öðru.
Þeir fá sjer botnvörpunga, og nú ganga
þar til fiskjar um 500 mótorbátar.
Kaaadamcnn
deila nú mjög um botnvörpuveiðarnar.
Við Ameríkustrendur stunda fáir botnvörp-
ungar veiðar, sem steudur, en þeim fer
fjölgandi. Einstaka maður vill hafa botn-
vörpuveiðarnar með öllu frjálsar, einnig
fyrir innan landhelgi. Aðrir vilja gersam-
lega banna þær jafnt utan landhelgi sem
innan, það er að banna innlendum mönn-
um að gera út botnvörpunga. Jafnvel slór-
auðkýíingafjelög hafa bundist fyrir fjelags-
skap, sem hefur þetta markmið. En búast
má þó við, að endalyktirnar verði þær,
að samin verði sjerstök botnvörpungalög
eins og hjá oss og öðrum þjóðum lijer í
álfu, og í likum anda.
Saltfisksinnflutningnr tii Spánar 1911
segja norskar »Konsulatberelninger« hafi
verið eins og hjer greinir:
Ilvaðan Tons
Noregi 16,876
Bretlandi .. 9,620
Löndum Brela í Aineríku 7,140
Danmörku 833
Löndum Dana i Európn 7,647
Frakklandi 4,097
Þýskalandi 1,738
Gibraltar 1,940
Portúgal 1,127
Belgíu 29
Ítalíu 28
Bandaríkjunum 8,
Melilla 4,
Marokko 1
Alls var innflult 1911 51,095 tons.
Lönd Dana (Danske Besiddelser) í Ev-
rópu eru auðvitað ísland og Færeyjar;
en hversu mikið hefur komið frá íslandi
sjerstaklega, veit maður ekki fyr en versl-
unarskýrslurvorar fyrir árið 1911 koma út,
en það mun verða, ef að venju lætur, i
árslok 1913. Fiskur frá Danmörku er
sjálfsagt íslenskur fiskur, sem fyrst hefur
verið fluttur til Danmerkur. Ennfremur
segir erindrekinn, sem skýrsluna sendir,
að nokkur hluti þess, sem sagt er vera
frá Pýskalandi, hafi komið frá Danmöiku,
en undir þýsku fiaggi, og þá einnig ís-
lenskur fiskur.
Prentsmiðjan Gulenberg.