Ægir - 01.01.1914, Qupperneq 15
ÆGIR
11
»April« h/f »ísland«.
1. ferð 368 £
2. — 650 -
3. — 325 -
4. - 355 -
5. — 560 -
6. — 493 -
Alls 2751 £
»Earl Monmouth«
frá ísafirði.
1. ferð 425 £
2. — 530 -
3. — 460 -
4. — 400 -
Alls 1815 £
Merkið £ þýðir pund sterling, sem
gildir hjerumbil 18 kr. 20 a. Þetta verð-
ur alls um = 24032 £ = 437,382 kr.
eða nálega hálf million krónur.
Erlendis
íslensk síld til Noregs.
Þann 20. desember 1913 var komið á
land í Noregi 126,858 tunnur afíslenskri
saltaðri sild.
Stærsti botnvörpungur Breta.
Hinn stærsti enski botnvörpungungur
heitir »Passing« og er írá Grimsby, hann
er 145 fet að lengd, kolarúmin taka 320
smálestir og hraðinn er 11 mílur dansk-
ar á 4 klukkustundum. Retta skip á að
stunda fiskiveiðar hjer við land nú á
vertíð og fram í miðjan júlímánuð og
saltar fiskinn. Síðan er áætlað að hann
fari til Newfoundlands og stundi veiðar
þar, en flytji fiskinn nýjan í land. Lifr-
arbræðslu áhöld eru á skipinu og verð-
ur lifur því brædd um borð og lýsinu
safnað í geymira. Fiskimjöl verður einn-
ig framleitt á skipinu, slorið þurkað í
þar til gerðum kössum, og siðan malað,
svo ekkert fari til spillis. 600 hesta krafta
gufuvjel er í skipinu.
Ný fiskþurkunaraðferð.
Frá Grimsby er svo skrifað, að tveir
kaupmenn í borginni hafi unnið að því
í Qelagi að finna ný tæki til fiskþurkun-
ar. Með uppfyndingu sinni spara þeir
lóðargjöld, vírnet og reita, sem til þessa
hefir notað verið. Eins og hjer, hefir
fiskur þar, verið þurkaður við sól og
vind, og megnið af þeim fiski, er frá ís-
landi og Færeyjum hefir flutst til Eng-
lands, svo sem þorskur, stórýsa, langa
ogeupsi verið þurkaður þannig, til þess
síðar að sendast sem verslunarvara suður
á Miðjarðarhafsströnd.
Með hinni nýju aðferð þurka kaup-
menn þessir fiskinn hversu sem viðrar,
jatnt í þurki sem rigningu, og eru tækin
sem eru viðhöfð, vjel til þess að fram-
leiða þurt þjettað loft og herbergí til þess
að leiða loftið inn i. 1 herbergið er fisk-
ur, sem þurlca á, hengdur upp og loft-
inu síðan hleypt inn. Enn sem stendur
er bæði vjel og herbergi í smáum stýl,
þar eð þetta er byrjunin og hin fyrsta
tilraun, þó þurka þeir 12 smálestir af
fiski í einu, en þeir eru sannfærðir um
að með þessari aðferð sje hægt að þurka
mörg hundruð smálestir i einu, með því
að stækka vjel og hús. Þeir telja þetta
mikinn vinnusparnað og ómetanlegt gagn
að haldið sje áfram að þurka fiskinn
hverju sem viðrar.
Aðferð þessi hefir vakið mikla eftirtekt
og er þegar ráðgert að koma upp slík-
um tækjum í mörgum enskum sjópláss-
um. Enn sem komið er, eru það aðeins
tveir fiskverkunarmenn, sem nota þessa
vjel og aðferð og heita þeir Croft og
Swaby.
Að veiða flsk við rafmagnsljós
var reynt á Englandi fyrir mörgum
árum. Tvö net voru lögð um nótt; á
öðru var lampi með rafmagnsljósi; var
það fult af fiski, er vitjað var um það;
á hinu netinu var ekkert Ijós, og kom
því nær enginn fiskur í það. Síðan var