Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.1927, Side 8

Ægir - 01.02.1927, Side 8
24 ÆGIR son, tannlækriir Br. Björnsson og frí- kirkjuprestur ólafur Ólafssön, lóku mál- ið í sínar hendur og kvöddu til ráða ineð sér ýmsa hina bestu menn er kunnugir voru sjávarútveginum, hverjum pólitisk- um flokki, sem þeir fylgdu, og var það viturlega gert. Eftir það fékk málið hvar- vetna hinar bestu undirtektir. — Undirbúningur til stofnfundar félags- ins var haldinn á Hótel íslandi 7. febr. 1911, en stofnfundur þess á sama stað hinn 20. febrúar sama ár, og er þvi félagið 16 ára í dag. Forsetar þess hafa verið: Hannes Hafliðason, tvisvar á tímabilinu 1911—1922. Matthías Þórðarsoon 1913, þar til hann gerðist erindreki erlendis og sagði af sér forsetastarfi á miðju ári 1914. Jón Bergsveinsson 1922—1924 og Kristján Bergsson núverandi forseti frá 1924. Fiskifélag íslands keypti „Ægir“ af Matthíasi Þórðarsyni 1911 og 5. árgangur er sá fyrsti, sem félagið gefur út. Hr. Matthías Þórðarson hélt áfram ritstjórn til ársloka 1913. Um nýjár 1914 tók við ritstjórn Svein- björn Egilson og hefir hana enn. í apríl 1912 voru Fiskifélagsdeildir þegar orðnar 11, með 429 félögum. 1927 eru þær taldar 48. Reykjavik, 20. febr. 1927. Sveinbjörn Egilson. Skýrsla erindreka Austfirðingafjórðungs frá 1. okt. til 31. des. 1926. Eftir að september líður fer fiskirí að hætta hér á norðanverðum Austfjörðum og má segja, að öll útgerð sé hætt alt frá Sevðisfirði til Langaness, en þó afl- aðist dálítið hér á Seyðisfirði og suður- fjörðunum i októher, en gæftir voru frem- ur stirðar. A Fáskrúðsfirði var ágælur afli í október og nóvember, þegar á sjó gaf. > Verð á öllum fiski hækkaði i október. Stórfiskur prima var seldur frítt á skip á kr. 125.00 skpd. og var það 10 og 13 krónum hærra en áður. Labrador-verkað- ur fiskur var þá seldur á 70 og 72 kr. sk- pd., áður fyrir 65 til 68 kr. Um áramótin var allur fiskur hér eystra seldur, enda þó að eitthvað liggi hér eft- ir, þá er liann allur seldur, og verður ef- laust afskipaður í febrúar n. k. Fiskirí hér á Austurlandi hefir verið í góðu meðallagi hvað fiskimagn snertir. En vegna hins lága verðs á fiski saman- horið við kaupgjald og allar útgerðar- vörur, þá er víst undantekningarlítið tap hjá öllum útgerðarmönnum. Meðan að ekki kemst jafnvægi á verðlag útlendra vara og innlendra afurða, og meðan kaup- gjald ekki kemst í samræmi við það, þá er ekki liklegt að sjávarútgerð hér geti borið sig. í október fór ég með Goðafossi til Eski- fjarðar og hélt þar fund í Fiskideildinni. Þaðan fór ég til Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar. Á Reyðarfirði var ekki hægt að koma á fundi. En á Fáskrúðs- firði hélt ég fundi í deildinni. Á báðum þessum stöðum skýrði ég ítarlega frá gerðum siðasta Fiskiþings, sýndi fram á hvaða þýðingu Fiskifélagið og Fiski- þingið hefði fyrir sjávarútveginn og lagði áherslu á, að Fiskifélagsdeildirnar og sjó- menn yfirleitt styrktu það á allan hátt og leituðu til þess með áhugainál sín. Einn- ig skýrði ég fyrir nefndarmönnum hvað Fiskifélagið hefði gert í björgunarmálinu, sérstaklega á síðasta Fiskiþingi, og hve afarmikla þýðingu það hefði fyrir sjó- menn og útgerðarmenn ef það kæmist verulega í framkvæmd. Jafnframt hvatti

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.