Ægir - 01.08.1932, Blaðsíða 19
ÆGIR
197
*
við þá, ef þeir lesa þetta, að athuga
hvort miklu muni skeika um heildar-
aflann og senda mér þá athugasemdir
um það.
Sumir af bátum þeim, sem veiðar
stunda af Austfjörðum, eru orðnir svo
lélegir, að tæpast er hægt að sækja sjó
á þeim, nema í blíðu veðri. Eru nokkrir
þessara báta hart nær þrítugu og þótt
klastrað hafi verið nokkuð í þá á þeirra
löngu æfi, er ekki að búast við öðru,
en að þeir séu búnir að lifa sitt fegursta.
— Nú er fjárhagsástæðum manna þann
veg farið, að ég sé ekki fram á, að eig-
endur hinna gömlu báta, geti keypt aðra
i staðinn, og að útvegurinn gangi frekar
saman, en þegar er orðið, þýðir það meira
atvinnu- og bjargarleysi. Enginn má taka
orð mín svo, að ekki séu til góðir bátar
á Austfjörðum, en þar sem ég þekki bezt
til — á Eskifirði — er þetta svo um suma
bátana, og hef ég nokkurnveginn fulla
vissu fyrir því, að svipað sé ástatt í sum-
um öðrum veiðistöðvum.
Ferðalög.
Ég get lýst því yfir, að ég hefði gjarnan
viljað ferðast nokkru meira en ég hef
gert. En tvennt er það, sem því veldur,
að ég hef ekki gert það. Annað eru af-
leitar samgöngur og svo er hitt, að með-
an stendur yfir annatími sjómanna, þá
gengur oft erfiðlega að ná saman fund-
um. Á Austfjörðum mun þetta vera
fremur hægt, þegar fer að halla sumri.
Hinn 3. júní fór ég til Hornafjarðar.
Kom ég þar aðfararnótt laugardags. —
Töldu Hornfirðingar hentugast, að ég
frestaði fundarhaldi til sunnudags, en þá
átti að messa á Höfn. Leist mér þetta
rétt vera, því ekki mundi það skaða
Hornfirðinga að fá guðsblessun nokkra,
áður en ég færi að halda að þeim mlnu
spjalli. Notaði ég því laugardaginn til
að fara austur í Lón. Eins og kunnugt
er hafa komið fram óskir um það, að
fá símalínu að Firði í Lóni. Telja menn,
að sjómenn á Hornafirði mundu meira
nota Papós, sem nauðhöfn, ef unnt væri
að láta vita, hvar þeir væru, en i sunnan
og suðvestan átt, getur verið ágætt á
Papós, þótt illfært eða ófært sé inn á
Hornafjörð. Vestast í Lóninu inn af Papós,
eru tveir bæir. Heitir sá er fjær sjó stend-
ur: Efri-Fjörður, en sá er sunnar og nær
ósnum stendur: Syðri-Fjörður. Vega-
lengdin á milli þessara bæja er nálægt
3—4 kílómetrar. — Aðal-simalínan um
Lónið liggur á milli þessara bæja, þó öllu
nær Efra-Firði. Nú má gera ráð fyrir,
að ef sími verður lagður að Firði, þá
yrði línan tekin frá Volaseli, sem er
næsta símstöð, en þá er spurning, hvort
er hentugra, að leggja símann að Efra-
Firði eða Syðra- Firði? Öllu skemmri
línu mundi þurfa að Efra-Firði og Lóns-
menn sumir, munu kjósa það fremur,
vegna þess, að þar er bílstöð. En vegna
báta, sem hleyptu á Papós eða lægju
undir Papós-skerjum, kæmi simi í Syðra-
Firði tvimælalaust að meira liði, því að
þaðan sjást bátarnir svo glögglega, að
unnt mun að þekkja þá, eða I það
minnsta að lýsa þeim nákvæmlega, og
væri sú lýsing símuð til Hornafjarðar,
mundi það gera aðstandendur rólegri
og jafnvel oft fyrirbyggja, að leit yrði
hafin. Annars virðist mér, að ef sima-
lína yrði lögð að öðrum hvorum þessum
bæ, þá sé sjálfsagt, að leggja síma i báða.
Á hvorutveggju er þörf, en aukakostn-
aður mjög lítill.
Ur Lóninu fór ég riðandi út á Papós
til að skoða ósinn. Er nú sjálfsagt orðið
mjög breytt við Papós, frá því, að hin
gamla verzlun stóð þar með blóma, og
þó enn þá meira breytt frá þvi, að hinir
fornu Papar tóku sér þar bólfestu, en