Ægir - 01.08.1932, Qupperneq 24
202
ÆGIR
Skýrsla No. 2. 1932
til Fiskifélags Islands, frá erindrekan-
um í Norðlendingafjórðungi.
Öll fiskiútgerð hefur verið með minnsta
móti þetta sumar, hér norðan Iands, og
þó að bátafjöldinn hafi á sumum stöðum
verið svipaður og að undanförnu hefur
útgerðin verðið almenntrekin með minni
krafti en áður, þar sem alstaðar hefur
orðið að spara, sem mögulegt er.
Á Hvammstanga eiga heima 6 trillu-
bátar. Hafa þeir gengið að mestu leyti
undanfarin ár og þá með 3 manna áhöfn
hver. En nú hef ég engar skýrslur fengið
þaðan ennþá, enda byrja róðrar þar
venjulega ekki fyr en eptir þann tíma
árs. Sama er að segja um Skagaströnd
og Kálfshamarsvík. Róðrar til söltunar
byrja optast nær ekki fyr, en hafsíld fer
að fást, því þó stundum hafi komið smá-
sildarhlaup á vorin inn undir Blönduósi,
er sú beita svo stopul, að ekki er á hana
að treysta. Sá fiskreytingur, sem fæst
framan af sumri ef nokkur er, selst jafn-
harðan í sveitirnar og kemur því hvergi
á skýrslur. Bátar eru á þessum stöðum
til jafnmargir og i fyrra, en hve margir
verða notaðir til fiskiróðra, veit ég enn
ekki um, en mun upplýsa það síðar,
væntanlega um næstu mánaðamót.
Vestan Skagafjarðar eru 1 vélbátur
með þilfari og 9 opnir trillubátar. Þeir
eru nýbyrjaðir róðra og hafa lítið fengið
enn, sama er að segja um Hofsós og
Höfðaströnd, þar eru lOlil 11 trillubátar,
sem róið er með höppum og glöppum.
Á öllum þessum trillubátum eru venju-
legast 3 menn á hverjum, að minnsta
kosti þegar róið er með lóð.
Frá Siglufirði ganga veiðiskip og bátar
með fæsta móti i ár, eða 6 skip og bátar
yfir 12 tonna, 15 vélbátar undir 12 tonn-
um og 7 trillubátar. Liggur þetfa í því,
að nú eru tiltölulega sárfáir aðkomubátar,
sem hafa þar bækistöð sína, hjá því sem
verið hefur.
Úr ólafsfirði hafa gengið 15 vélbátar,
þar af einn yfir 12 tonna og 16 — 17
trillubátar.
Af Dalvik hafa gengið 14 vélbátar og
4 til 5 trillur, auk þess 4 árabátar annað
slagið. Á Dalvík og í ólafsfirði eru menn
hættir róðrum, að minnsla kosti um tíma,
en snúa sér fyrst um sinn að því að verka
fiskinn sinn til þess að spara sér þau
útgjöld, enda er aflinn mjög rír, og allt
í óvissu um nokkra sölu á fiskinum.
í Hrísey eru 15 vélbátar og 5 opnir
trillubátar. Þar eru menn, sumir hverjir,
hættir róðrum og stunda nú fiskverkun
í bili.
Á Árskógsströnd hafa gengið 15 trillu-
bátar, og munu þeir skjökta eitthvað
við róðra innfjarðar fyrst um sinn.
Á Hjalteyri eru til 5 trillur og einar
2—3 þar í grendinni, en mjög lítið hafa
þessir bátar stundað sjó og lítið fiskað,
nema þá til sölu hingað í bæinn og 1
sveitirnar eitthvað.
Úr Grýtubakkahreppi ganga ennþá 7 vél-
bátar og 4 opnir trillubátar annað slagið.
Úr Flatey ganga aðeins 7 trillubátar
og 1 árabátur. Veiðin byrjaði þar seint,
en líklega halda þeir þar úti fram eptir
sumrinu.
Á Húsavik eru 12 vélbátar og álíka
margar trillur en munu ekki ganga til
fiskjar að staðaldri.
Á Raufarhöfn eru 5 dekkaðir vélbátar,
flestir fremur litlir og auk þess 3 triílu-
bátar, og á Langanesinu að vestan eru
3 vélbátar og 6—7 trillur. í þessum
tveimum veiðistöðvum hefur aflinn verið
sérstaklega lítill að þessu en lagast nú
væntanlega eitthvað, er hafsild fer að
fást til beitu.