Ægir - 01.06.1952, Page 30
136
Æ G I R
vettvang flestir þeir menn, er haft hafa
l'orustu um að byggja grunn að þeim miklu
og margvíslegu framförum, sem þegar er
lokið við eða eru á döfinni.
Þótt Matthías Þórðarsori frá Móum hafi
dvalið álíka lengi erlendis sem á íslandi,
er honum ekki einungis annt um allt ís-
lenzkt, það kvikuliggur í hjarta hans. Vit-
anlega eru honum ekki jafnhugstæð öil
málefni þjóðarinnar, annað tekur hann
öðru fremur eins og gengur. Ungur tók
l.ann ástfóstri við útgerð, sjómennsku og
siglingar. Á því hefur ekki orðið hreyting,
þólt árunum hafi fjölgað. Enn ræðir hann
um þessi mál af hressilegu fjöri, víðsýni
og fádæma kunnugleika. Hann hefur lengzt
ævinnar verið að afla sér fróðleiks í þess-
um efnum og miðla öðrum. Hann er sí-
skrifandi, lesandi og leitandi frétta á þessu
sviði, næmur fyrir gagnlegri tilbreytni og
nýjungum og iðar í skinni að gera þær að
almenningseign. — Ég lief oft rætt við
menn, sem hafa haft brennandi áhuga á
einu og öðru, en fáa hef ég fyrir hitt, er
lagt hafa í viðræðuna jafnmikla hógláta
gleði og innilega sem Matthías. Ég held,
að það hljóti að vera skrýtinn fugl, sem
ckki finnur til léttleika fyrir brjóstinu við
að lieyra hann túlka þau mál, sem honum
liggja á hjarta.
Ævisaga Matthíasar, „Litið til baka“,
lýsir manninum vel á marga lund, en hún
jafnast Jdó ekki á við það að sjá hann og
heyra. Matlhias er laus við það að vera
einkennilegur á nokkurn hátt, en í slcap-
höfn hans eru þó einhverjir þeir töfrar,
sem festa manninn í minni.
Um leið og Ægir sendir Matthíasi hug-
heilar árnaðaróskir áttræðum og þakkar
honum allan velgerning fyrr og síðar, vill
hann vona, að honum megi endast til loka-
dægurs sá varmi og bjarti hugsjónaeldur,
er skipaði honum framarlega í sveit is-
lenzkra aldamótamanna.
Bræðslusíldarverðið
í sumar.
Um 20. júní sendi stjórn Síldarverk-
smiðja ríkisins frá sér svofellda tilkynn-
ingu:
„Atvinnumálaráðherra hefur ákveðið
samkvæmt tillögum stjórnar Síldarverk-
smiðja ríkisins að heimila síldarverk-
smiðjunum að kaupa hræðslusíld föstu
verði í sumar á kr. 60.00 hvert mál síldar.
Vegna verðfalls á síldarlýsi síðan í fyrra,
sem nemur um kr. 70.00 á því lýsismagni
sem fæst úr hverju máli síldar, jafnhliða
því, að útgerðarkostnaður hefur farið vax-
andi, hefur atvinnumálaráðherra ákveðið
samkvæmt tillögum stjórnar S. R., að gef-
in skuli út bráðabirgðalög um að fellt skuii
niður framleiðslugjald af bræðslusíld í
Hlutatryggingasjóð bátaútvegsins að þessu
sinni, að upj)hæð kr. 4.80 á hvert mál síld-
ar, þótt meðalafli á hverja síldarnót kynni
að fara fram úr sex jnisund málum. Verð-
ur j)á áætlunarverð bræðslusíldar kr. 54.69.
Er kaupverðið kr. 5.31 hærra en áætl-
unarverðið sökum þess, að við ákvörðun
kaupverðsins er ekki gert ráð fyrir að
greiða afborganir af nýju síldarverksmiðj-
nnuni í Siglufirði og' Skagaströnd vegna
þeirra sérstöku aðstæðna, sem nú eru fyrir
hendi.
Samkvæmt j)essu tilkynnir stjórn Síld-
arverksmiðja ríkisins, að verksmiðjurnar
kaupi síld í sumar föstu verði fyrir 60
krónur málið, og taki við síldinni til
vinnslu af þeim, er jæss óska heldur, og
greiði 85% af áætlunarverðinu kr. 54.69
við móttöku, það er krónur 46.49 og end-
anlegt verð síðar, er reikningar verksmiðj-
anna liafa verið gerðir upp.
Verksmiðjustjórnin stóð einhuga að til-
lögum um síldarverðið til atvinnumálaráð-
herra.
Bræðslusíldarverðið í fyrra var krónur
110.16, árið 1950 kr. 65.00 og árið 1949
kr. 40.00.
Móttaka bræðslusíldar hefst í byrjun
júlí.“
L. K.