Ægir - 01.06.1952, Blaðsíða 49
Æ G I R
155
FISKIBÁTUR TIL SOLU
„DORA VENÖ", 100 br. rúml., smíáuá í Nýborg
1947. 220 ha. 2ja strokka Hundested motor. Sam-
byggá vinda, sterkbyggá. Hvílur fyrir 10 menn. Skip-
inu hefur veriá haldiá vel viá. Afhending strax.
Hugsað verð d. kr. 315.000. — Sendiá tilboá.
Almenningur tryggir hjá ,,Almennum“
Vér bjóðum yður allar tryggingar
með beztu fáanlegum kjörum.
í/G~ Munið að trygging er nauðsyn! 'W8
Álmennar tryggingar h ■ Austurstræti 10 - Sími 7700
Nánari upplýsingar gefur:
Paul Meyendorff
235, Vesterport, Köbenhavn V.
Símnefni: Felixship.
Brezkur togarafiskur
fer í fiskmjölsverksmiðjur.
Brezka blaðið „Fish Trades Gazette“
ræðir um það 19. júlí síðastl., hvílíkum
vandræðum það valdi brezkri togaraútgerð,
live langt þurfi að sækja á fiskimið á
þeim tíma árs, þegar heitast er í veðri og
mest hætta á að fiskur skemmist. Getur
blaðið þess, að síðasta hálfan mánuð hafi
hvern dag legið óselt 10 þús. kit af fiski
á markaðnum í Bretlandi. Við þennan fisk
hefur ekki verið hægt að gera annað en
láta hann í fiskmjölsverksmiðjur sökum
þess, að fisksalarnir hafa ekki getað selt
hann, enda talið hann svo lélega vöru, að
ekki væri bjóðandi til manneldis.
Mjög hefur verið rætt um það, hvernig
fram úr þessum vanda yrði ráðið, en menn
ekki orðið á eitt sáttir. Reyndar eru allir
á einu máli um það, að togararnir verði
að hafa skemmri útivist, koma með fisk-
inn nýrri til hafnar en verið hefur. Reyn-
ist kleift að ltoma með óskemmdan fisk á
markaðinn, helzt sem nýjastan, er ekki
vonlaust um að fá megi kaupendur að sum-
arafla brezkra togara. Rætt er um, að tog-
ararnir megi ekki vera lengur í hverri veiði-
ferð en 16—18 daga, til þess að fiskurinn
verði seljanlegur. Það mun hins vegar al-
mennt álit togaraeigenda, að því verði
trauðla við komið sökum þess, hve skipin
verða að sækja á fjarlæg mið. Er heldur
ólíklegt, að útgerðin gæti borið sig, ef
binda ætti útivist togaranna við jafn-
skamman tíma og fyrr er greint. En sem
dæmi um það, hve illa hefur horft hjá
brezltri togaraútgerð í sumar er þess getið,
að i maímánuði tókst ekki að fá kaup-
endur að 970 þús. stónum af fiski í Hull
og Grímsby og 530 þúsund stónum í apríl-
mánuði. Samtímis og þetta gerist berzt
mikið á land af fiski af erlendum skipum
og eru brezkir útgerðarmenn gramir yfir
því, að ekki skuli vera komið í veg fyrir
slikt.