Ægir

Árgangur

Ægir - 15.09.1955, Síða 3

Ægir - 15.09.1955, Síða 3
48. árg. Nr. 15 Æ G I R RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS Reykjavík, 15. september 1955. IJtgerð og TOGARARNIR Enn voru flestir togaranna á karfaveið- um fyrir innanlandsmarkað. Afli við Vest- ur-Grænland fór minnkandi og fóru skipin þá að færa sig á heimamið og fengu þar sæmilegan afla. Einnig var reynt við Aust- ur-Grænland, á Jónsmiðum, en afli var nú enginn þar. Hefur orðið þar mikil breyting á frá því, sem var um svipað leyti á fyrra ári, en þá var þar mikill karfaafli. Þá hófu nokkur skip veiðar fyrir Þýzka- landsmarkað. Hafa þau fengið reitings- afla á Halamiðum, aðallega þorsk. Er lagt upp úr því að fá blandaðan afla með karf- anum svo sem þorsk og þó einkum stór- ufsa, en hann er eftirsóttur á Þýzkalands- markaðinum. Tvö skip fóru á miðin undan Austfjörðum sunnarlega, þar sem helzt er búizt við að ufsann sé að fá en um aflabrögð var ekki vitað. Þá voru 2 skip á saltfiskveiðum við Vestur-Grænland en afli hefur verið treg- ur þar undanfarið. Munu þau sigla með fiskinn til Esbjerg. VESTFIRÐIN GAF J ÓRÐUN GUR (ágústmánuður). Steingrímsfjörður. Þrír bátar úr Hólma- vík og tveir frá Drangsnesi voru á rek- netjaveiðum. Afli hefur verið góður með köflum. Annar Drangsnesbátanna, sem byrjaði veiðar seint í júlí, hafði fengið afilabrögð um 900 tn. í lok ágúst. Tveir Hólmavík- urbátanna voru á síldveiðum nyrðra og byrjuðu því ekki veiðar fyrr en eftir miðj- an ágúst. Aflahæsti báturinn þar hafði fengið um 350 tn. um mánaðamótin. 3 og 4 smábátar úr Hólmavík hafa stundað færa- veiðar og aflað vel með köflum, um 1000 kg. í sjóferð, 3 menn undir færi. Djúpccvík. Vb. Örn var á reknetjaveið- um, byrjaði í júlí, og aflaði allvel fyrst, en miður í ágúst. Hafði fengið um 700 tn. í lok mánaðarins. ísafjörður. Tveir bátar, Andvari og Ver, hófu reknetjaveiðar um 25. júlí og hafa oft aflað vel. í mánaðarlokin hafði Ver fengið 900—1000 tn., Andvari 760 tn. Auð- björn, er var á síldveiðum nyrðra, og Sæ- dís, byrjuðu nokkru eftir miðjan mán- uðinn. Aflinn hefur verið mjög rýr síð- ustu dagana. Fjórir smáir þilfarsbátar stunduðu færaveiðar og öfluðu bærilega framan af, en stormar hömluðu veiðum seinni partinn. Smábátar hafa ekki svo teljandi sé stundað veiðar, fáeinir skot- izt nokkrum sinnum til fiskjar. — Tog- ararnir hafa verið á karfaveiðum og afl- að vel. ísborg lagði á land 439 smál. úr 2 veiðiferðum, Sólborg 694 úr 2 veiði- ferðum. Rækjubátarnir hafa aflað mjög vel í sumar. Hnífsdalur. Tveir bátanna, Mímir og Páll Pálsson, tóku upp reknetjaveiðar eft- ir miðjan mánuðinn, er þeir komu af síld-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.