Ægir

Árgangur

Ægir - 15.09.1955, Síða 4

Ægir - 15.09.1955, Síða 4
226 ÆGIR veiðum nyrðra. Hafði Mímir fengið um 300 tn. um mánaðamótin. Bolungarvík. Stærri bátarnir þrír, Ein- ar Hálfdáns, Flosi og Völusteinn, tóku upp reknetjaveiðar, er þeir komu af síld- veiðunum nyrðra rétt fyrir miðjan mán- uðinn. Öfluðu þeir vel, sá aflahæsti um 600 tn., hinir rúmar 500 tn. hvor. Tveir smærri bátar, 8 og 11 lesta, voru líka á reknetjum og öfluðu vel framan af mán- uðinum. Suðureyri. Einn stærri bátanna, Freyja II, var á línuveiðum. Aflinn mjög rýr, mest um 4000 kg. í sjóferð. Annar 27 lesta bátur, Gyllir, var á færaveiðum. Þá bættist þarna við nýr 5 lesta þilfarsbátur, og fór á færaveiðar um miðjan mánuð- inn. Báturinn er smíðaður hjá Marselí- usi Bernharðssyni. Eigendur eru Bjarni Friðriksson fyrrv. vitavörður og synir hans. — Færaaflinn hefur líka verið mjög tregur. Flateyri. Togarinn Gyllir var að veið- um og aflaði vel. Lagði upp 470 smál. Guðmundur Júní byrjaði um 20. ág. 4 og 5 smábátar hafa stundað kolaveiðar í net með góðum árangri. Enginn bátur er á þorskveiðum. Þingeyri. Tveir smábátar á línuveið- um, öfluðu vel síðustu dagana, mest um 1400 kg. í sjóferð, aðeins tveir á bát. Patreksfjörður. Togararnir voru báðir á karfaveiðum og öfluðu vel. Gylfi fékk 679 smál. í tveimur veiðiferðum. Ólafur Jóhannesson fór eina ferð. Vb. Andri hefur verið á reknetjaveiðum síðan 20. júlí og hefur aflað vel. Hafði fengið um 1300 tn. 1. sept. SÍLDVEIIDIN NORÐANLANDS- OG AUSTAN Vikuna 13.—20. ágúst var síðasta vikan, sem herpinótasíld veiddist og þá úti fyrir Austfjörðum. Mun síðasta síldin hafa veiðzt 19. ágúst. Gerði þá slæmt veður og lágu skipin, sem þá voru orðin fá eft- ir, þar sem meginhluti flotans hafði hald- ið heimleiðis fyrir þá viku, í landvari og biðu eftir að veður batnaði. Kom í ljós er veðrið lægði, að veiðinni var lokið og héldu skipin þá heim. Nokkur skip fóru þá til reknetjaveiða en afli hefur verið tregur. Heildaraflinn 2. sept. var sem hér segir (í svigum samanburðartölur frá fyrra ári 4. sept.). í bræðslu 25.895 mál (124.723) í salt 175.016 uppsaltaðar tn. (56.790) í fryst. 13.117 uppmældar tn. (13.801) Hefur heildaraflamagnið því orðið tæp- lega 19000 málum og tn. meira en á fyrra ári. Skýrsla um afla einstakra skipa er birt á öðrum stað í blaðinu. REKNETJAVEIÐAR SUNNANLANDS OG VESTAN Síldveiðar með reknetjum hófust að ráði sunnanlands í ágústmánuði og einkum eft- ir að herpinótabátarnir komu af veiðum að norðan. Veiði var þó ekki almennt mikil fram- an af og auk þess var tíðin mjög stirð. Þá tafði það og fyrir, að verkfall var hjá verkakonum í Keflavík og á Akranesi síðari hluta ágúst en leystist um mánaða- mótin. Stundar nú allmikill fjöldi báta þessar veiðar og hefur afli það sem af er september oft verið ágætur, en tíðar- far heldur stirt framan af. Þó hefur afli í Breiðafirði verið mun tregari en sunn- ar, einkum sunnan Reykjaness í Grinda- víkursjó, en útaf Vestfjörðum hefur afl- ast sæmilega. Ekki hefur orðið eins mikið vart við háhyrning á síldarmiðun- um eins og á fyrra ári, enda vart kom- inn sá tími, sem hann er aðgangsfrekastur. Heildaraflamagn reknetjabátanna sunn- anlands og vestan 3. sept. var sem hér segir: í salt (uppsaltaðar tn.) 14.457 I frystingu (uppmældar tn.) 38.794

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.