Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.09.1955, Qupperneq 5

Ægir - 15.09.1955, Qupperneq 5
ÆGIR 227 Síldarvertíðin Norðanlands 1955 / hverju var síldarverfíðin frábrugðin hinum fyrri aflaleysisvertíðum? Nú er liðinn meira en heill tugur ára síðan breyting sú varð á göngum sildarinnar, sem hefur orðið svo afdrifarík fyrir þennan atvinnu- veg, sem raun er á. Á hverju ári hafa menn skyggnazt eftir ummerkjum, sem gæfu til kynna einhverja breytingu til hins betra, en árang- urslaust. Vertíðin í sumar bar öll einkenni aflaleysis- vertíðanna, enda þótt sumir telji sig hafa séð merki um einhverjar breytingar. Síldin hélt sig langt undan landi, áta var lítil á miðunum og síldin óð illa. Þá var veiðin aðallega framan af vertíðinni, i júli, en svo hefur jafnan verið þegar aflabrestur hefur verið. Aftur á móti virð- ist það liafa verið regla, að þegar afli hefur verið mikill hefur ágúst verið bezti veiðitíminn. Hin sífelldu vonbrigði hafa leitt til þess, að leitað er nýrra ráða i því skyni að veiða síld- ina þrátt fyrir erfið skilyrði. Nýjar aðferðir, sem m. a. styðjast við notkun nýrra og full- komnari tækja en áður þekktust, eru reyndar °9 gefa von um, að e. t. v. verði unnt að sigr- ast á nokkrum þeim erfiðleikum, sem hrjá þenn- an veiðiskap. Vertíðin í sumar var mjög þýð- ingarmikil einmitt í þessu tilliti og á e. t. v. eftir að marka tímamót í sögu síldveiðanna hér við land. Með tilliti til þessa hefur Ægi þótt rétt, að fá sem gleggst yfirlit yfir vertíðina og einmitt frá manni, sem sjálfur hefur um mörg ár tekið þátt í veiðunum og jafnan verið í fremstu röð aflamanna. Er það Guðmundur Jörundsson skip- stjóri og útgerðarmaður frá Hrísey. Var hann enn í sumar skipstjóri á skipi sínu bv. Jörundi fvá Akureyri, en það skip var aflahæsta skip a síldveiðunum. Fer grein Guðmundar hér á eftir. Ritstj. Við skjóta yfirsýn virðist ekki vera hsegt að segja, að nokkur veruleg breyt- i^g hafi átt sér stað á gangi og hátterni síldarinnar s.l. vertíð við Norðurströnd- lna frá því sem verið hefur undangengin Guðmundur Jörundsson. ár. Þó var það tvennt, sem sérstaklega vakti athygli manna. Það fyrra var, að all oft kom það fyrir, að síld kom aftur og aftur upp á sama svæðinu, með nokk- urra daga millibili. En það er ekki hægt að segja, að hún hafi gert slíkt svo telj- andi sé undangengin aflaleysisár. Hitt atriðið var það, að hér kom nú fram aft- ur hin stóra og jafna „vestansíld“, sem ég vil svo nefna og okkur var vel kunn á árum áður og veiddist í stórum- stíl á mið- og vestur-síldarsvæðinu. Greinilegt var það, að mjög lítið var síldin á mið- svæðinu blönduð yngri árgöngum og mag- urri síld, eins og undanfarið. Þá kemur að þeirri spurningu, hvort ganga þessarar stórsíldar upp að Norður- landinu kunni að boða nokkra breytingu

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.