Ægir - 15.09.1955, Síða 6
228
ÆGIR
Bv. Jörundur á leið inn
Eyjafjörð, hlaðinn sild.
í framtíðinni? Því er að sjálfsögðu vand-
svarað og munum við fæstir sem við
veiðar fáumst, þora eftir 11 ára þreng-
ingar, að láta nokkra bjartsýni í ljós,
í því sambandi. En óneitanlega varð okk-
ur mörgum hlýrra um hjartaræturnar í
upphafi síldarvertíðarinnar, þegar við aft-
ur sáum hina stóru glitrandi vinkonu okk-
ar steipast úr háfnum inn á þilfarið. Því
miður reyndist það of fáliðaður hópur,
þegar öll kurl komu til grafar. Þó má
eflaust fullyrða, að allverulega mikið
meira magn af síld hefði veiðzt þessa ver-
tíð, ef hin þráláta sunnan- og suðvestan-
átt hefði ekki stöðugt torveldað veiðarn-
ar, því það var næstum hægt að segja,
að helzt aldrei kæmi heill logndagur á
vertíðinni.
Mitt álit er það og eflaust fleiri, að
talsvert meira síldarmagn hafi gengið upp
að norðurströndinni en undangengnar ver-
tíðir. Því til sönnunar má benda á það,
hve nijög oft veiðiskipin fengu góðar
lóðningar á bergmáls og „Ásdic“-tæki sín.
Og ennfremur benti hinn góði veiðidag-
ur 27. júlí mjög í þá átt, þar sem síld
sást, að sjálfsögðu mismunandi mikið, að
heita mátti um allt veiðisvæðið frá Kol-
beinsey og austur í Þistilfjarðardýpi.
ÁtuskilyrSi og sjávarhiti.
Á síðastliðnu vori sáust þess glögg
merki, að rauðátan var ekki eins snemma
á ferðinni við Norðurland eins og að und-
anförnu. Enda sagði það fljótt til sín á
síldarvertíðinni, að allverulega mikið meiri
rauðáta var á veiðisvæðinu, en að undan-
förnu og það sem betra var, að hún hélzt
lengur við á hverjum stað, en áður.
Eitt var það, sem mér virtist einkenn-
andi fyrir þessa vertíð, hve oft bar á því á
síldarsvæðinu, þar sem ég hafði fengið
góða rauðátu í átuháfinn, að yfirborð
sjávarins, stundum 4—6 faðma niður, var
algerlega átulaust. Þetta hafði þær af-
leiðingar í för með sér, að síldin stóð
dýpra í sjónum og óð ekki. En hins vegar
bar nokkuð mikið á því að fuglager sæti
á blettinum, þar sem síldartorfa var und-
ir og notaðist veiðiskipunum all oft af því-
Um sjávarhitann er það að segja, að
hann var hinn ákjósanlegasti, eða að öll-
um jafnaði frá 7,5 til 8,5°. En það er sá
hiti, sem talinn er hæfa síldinni bezt hér
við land á meðan hún er að ná sinni hröðu
fitun á svo skömmum tíma.
Asdic-tækin.
Nokkur skip eru nú komin með hin
svokölluðu „Asdic“-tæki (Simrad) o g