Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.09.1955, Qupperneq 7

Ægir - 15.09.1955, Qupperneq 7
ÆGIR 229 gerðu tilraunir með þau í sambandi við síldveiðarnar s.l. sumar, en með nokkuð misjöfnum árangri. Mun þar eflaust hafa valdið misjafnlega mikil nákvæmni þeirra, er með tækin fóru og ennfremur misjöfn útkoma tækjanna sjálfra í hverju skipi. Þrátt fyrir þetta fékkst samttalsverðveiði, sem óhætt er að fullyrða að þakka má eingöngu umræddum -,,Asdic“-tækjum. Fullvíst má það teljast, að vér getum vænzt þess í framtíðinni að ná enn betri árangri en hingað til hefur náðst með tækjum þessum. Rannsóknarskipið Ægir. Allir þeir, sem við síldveiðar fengust s.l. vertíð, munu vera á einu máli um það, að Ægir hafi unnið mjög þýðingarmikið og gott starf með rannsóknum sínum í sumar. Ekki sízt þegar á það er litið, að í raun og veru er hér um byrjunarstarf að ræða og það mjög margþætt. En það gefur auga leið, að það hlýtur að vera erfitt starf fyrir þá menn, sem þessum rannsóknum stjórna, að þurfa alltaf að sinna mörgum störfum samtímis. Til dæm- is að leita að síld með ,,Asdic“-tækjum °g dýptarmælum, hafa á hendi allar átu- rannsóknir, sjávarhitamælingar og fleira, sem allt er tímafrekt og krefst margra faglærðra manna, sem því miður voru of fáir um borð í Ægi í sumar, til að geta haft undan að vinna úr öllum þeim verk- efnum er til lögðust á vertíðinni. Vonandi verður úr þessu bætt í framtíðinni, svo fiskirannsóknirnar tefjist ekki af þeim sökum. Ennfremur er það von okkar, sem við þessar síldveiðar fáumst að hátt- virt Alþingi gefi gaum að þessum þýðing- armiklu rannsóknum og leggi rétt mat á gildi þeirra fyrir þjóðarbúið í heild og sníði fjárveitingar til. rannsóknanna í réttu hlutfalli við það. Mætti í þessu sambandi benda á þá stað- reynd, að óhætt er að áætla, að fyrir leið- beiningar Ægis hafi veiðzt s.l. vertíð um 25—30 þúsund tunnur, fyrir utan alla óbeina aðstoð við flotann, sem að sjálf- sögðu gerði sitt til að meira veiddist en ella hefði orðið. Ég vil nota þetta tækifæri, og veit ég mæli þar fyrir munn allra, sem lífsafkomu sína eiga undir þessum síldveiðum, til að færa beztu þakkir Alþingi, ríkisstjórn, fiskifræðingum og öllum öðrum, sem að þessum rannsóknum stóðu fyrir þeirra aðstoð í þessu sambandi. Akureyri, 7. sept. 1955. Guóm. Jörundsson. Vciðitilraunir tneú f3L.arsenvörpuff Undanfarin ár hafa verið gerðar hér við land margvíslegar tilraunir til að veiða síld með flotvörpu. Hafa verið gerðar til- raunir með margs konar vörpur, en ár- angur hefur orðið lítill. Hafa flestar til- raunirnar farið fram við Suðvesturlandið, enda er talið, að mest von sé um veiði með slíkum veiðarfærum á þeim slóðum. Enn er þessum tilraunum haldið áfram og fer nú fram ein slík með svonefndri ,,Larsenvörpu“. Er það tveggja báta flot- varpa, sem gefið hefur ágæta raun upd- anfarin ár á síldarmiðunum við Skagen í Danmörku. Hafa Jóhann Sigfússon út- gerðarmaður í Vestmannaeyjum og Kjart- an Friðbjarnarson í Vestmannaeyjum undirbúið tilraunaveiðina og fá þeir til þess nokkurn styrk frá atvinnumálaráðu- neytinu. Fengnir voru til landsins tveir danskir síldarskipstjórar, sem vanir eru að fást við veiðar með þessari vörpu, og auk þess voru veiðarfæri og allur útbún- aður fenginn frá Danmörku, svo unnt væri að gera tilraunina á hinn fullkomn- asta hátt. Fæst nú væntanlega úr því skorið hvort gera megi sér vonir um, að unnt sé að veiða síld í þetta veiðarfæri hér við land svo um reglulega útgerð geti verið að ræða. Þegar þetta var skrifað höfðu borizt Framh. á bls. 240.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.